Lítt um ferðir, já ömurð ein
angistarfullur ráfa.
Í vögnum leynist veirumein
ef verjar á mér káfa.
Dr. Gylforce er með böggum hildar þessa dagana hvar verkfall er í mennta- & menningarsetrinu við Kársnes & ekkert lát á því. Þá hepði verið gráupplagt að halda á vit vagna. Nema hvað. En ó-nei, því er ekki að heilsa. Illu heilli.
Vegna hinnar vályndu veiru verður dr. Gylforce að láta sér nægja að fylgjast með vinum vorum - vögnunum - úr fjarlægð. Á næstu vikum og mánuðum fer fram útboð á nýjum rafvögnum & bíður dr. Gylforce mjög spenntur eptir því - en ekki hvað???
Enda þótt rafvagnarnir frá kommúnistunum í Kína séu ágætir vonast dr.-inn eptir því að byggðasamlagið festi fjár í nokkrum þýskum eðal MB-vögnum líkt & þessi sem kom til reynslu fyrir nokkrum vikum.
Það var úrvalseintak & mun ferðin sú seint gleymast. Maður lifandi!
Meginflokkur: Samgöngur | Aukaflokkar: Bílar og akstur, Lífstíll, Umhverfismál | 12.3.2020 | 17:07 | Facebook
Færsluflokkar
Bloggvinir
Apríl 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.4.): 10
- Sl. sólarhring: 11
- Sl. viku: 173
- Frá upphafi: 122940
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 30
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
MERCEDES-BENZ RAFMAGNSVAGNINN VAR ÞVÍ MIÐUR EKKI MEÐ NÓGU GÓÐA ENDINGU Á HLEÐSLUNUM.
Jón Þórarinsson (IP-tala skráð) 12.3.2020 kl. 19:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.