Í dag boðar dr.-inn mikinn fögnuð ...

66602530 2226690280733889 3647696397139968000 nAukin er tíðnin - unaður
á mér ekki stendur.
Mjúklega líður - munaður
um mikillegar lendur.

Aukin tíðni á ný

Mínir virðulegu vagnverjar!

31460773 10155643512463348 5792576195446964224 nÍ dag verið óhræddir, því, sjá, dr.-inn boðar ykkur mikinn fögnuð sem veitast mun öllum verjum:

Yður er í dag frelsið fætt, sem eru vagnar á vígvöllum veganna, í borg hins skeggjaða Dags.
Og hafið þetta til marks: Þið munuð finna rafvagna, hljóðláta, akandi um götur (með þéttri tíðni).

Dýrð sé vögnum á vígvöllum
& friður á jörðu og velþóknun vagnstjóra yfir oss vagnverjum.

Amen.




« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband