Gott út á Granda ...

juni2020Gylforce-inn vill út að Granda
mjög gott með leiðum tveim. 
Vagnverjinn ungi með að vanda
Valdís er okkar geim.

Hinn ungi & aldni vagnverji gerðu sér góðan dag í vinum vorum - vögnunum - í brakandi blíðu hvar þeir héldu í afar góðan & skjótan rúnt út að Granda. Nema hvað.

20171101130348-fae3b6a7Ferðin úr Mjódd að Granda er ákaflega góð & passa vagnarnir mjög vel saman. En ekki hvað???

Ef farið er með leið 3 úr Mjódd okkar Breiðhyltinga er aðeins um 1-2 minútna bið á Lækjartorgi eptir leið 14 sem heldur rakleitt út á Granda.

799508Ferðatíminn er aukinheldur ekki af verri endanum; aðeins rúmlega 20 mínútur í unaðsvögnum & ekki spillti fyrir að þeir feðgar skelltu sér á rafskútur & geystust um lendur Grandans á þessum mögnuðu tækjum.

Yfir&út!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það virðist vera einhver sprunga í skiltakassa rúðunni í honum að framan.

Jón Þórarinsson (IP-tala skráð) 27.6.2020 kl. 21:56

2 Smámynd: Dr. Gylforce

Já Jón en þessi mynd er gömul, hlýtur að vera búið að laga það núna :)

Dr. Gylforce, 27.6.2020 kl. 22:22

3 identicon

Já það getur vel verið.

Jón Þórarinsson (IP-tala skráð) 28.6.2020 kl. 01:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband