Í ræmunni var rugl
um ribbaldann Hófí.
Víxluðust vagnar - þrugl
viðvaningslegt en hví???
Dr. Gylforce brá sér í kvikmyndahús í gærkvöldi, hvar hann fór á skemmtilega mynd um hana Ömmu Hófí. Nema hvað.
Aðalpersónur myndarinnar ferðuðust góðu heilli í vinum vorum - vögnunum - grimmt en aðeins suður í Firði.
Hinsvegar brá dr.-num í brún hvar þau skunduðu inn í rafvagn við Fjörðinn. Afar sjaldgæft er að sjá þá á þeim slóðum enda væri það aðeins hægt á leið leiðanna, leið 1. Þar eru þeir sjaldan á vaktinni.
Steininn tók þó úr þegar persónurnar, Hófí & Pétur, vippuðu sér í rafvagninn er ók af stað. Næsta skot var þyrlu (eða dróna) skot en þá sást allt annar vagn!!! Þar var Iveco Crossway vagn á ferðinni - öngvinn rafvagn - maður lifandi!!!
Hvaða amatörar stóðu að þessari mynd???
Dr.-inn er furðu lostinn, jafnvel niðurbrotinn.
Meginflokkur: Samgöngur | Aukaflokkar: Bílar og akstur, Lífstíll, Umhverfismál | 17.7.2020 | 18:02 (breytt kl. 18:05) | Facebook
Færsluflokkar
Bloggvinir
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 119306
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.