Öngvinn vissi vart
veðrið hvaðan á sig
stóð & þvílíkt start
á strætó en hvernig?
APSAKIÐDr. Gylforce var líkt & aðrir landsmenn sem límdur við skjáinn síðastliðinn fimmtudag hvar þríeykið upplýsti að grímur skyldu vera brúkaðar í almenningssamgöngur frá og með hádegi 31. júlí. Nema hvað.
Dr.-inn skildi þessi skilaboð á sama hátt & stjórnendur byggðasamlagsins sem gerðu vel að mati dr.´s í að bregðast skjótt við & vera tilbúnir á örstuttum tíma.
Nú hefir hinsvegar komið í ljós að ekki er skylda að vera með grímu fyrir vitum sínum í vögnunum á höfuðborgarsvæðinu. Þó er mælt með því, sérstaklega fyrir þá sem eru með undirliggjandi sjúkdóma.
Nokkrir vagnverjar brugðust ókvæða við þessum hringlandahætti sem var nú óþarfi. En hvað um það.
Yfir&út!
Flokkur: Bloggar | 1.8.2020 | 16:56 (breytt kl. 16:58) | Facebook
Færsluflokkar
Bloggvinir
Apríl 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 32
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 15
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það reyndist þá eftir allt saman ekki ástæðulaust að stofna teymi til að bregðast við upplýsingaóreiðu á tímum covid.
Guðmundur Ásgeirsson, 1.8.2020 kl. 21:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.