Vesældarlegur vagnverji ...

Vagnstjóri á vakt
vesen & þrugl.
Ástand allsérstakt
andskotans rugl!

Vesenisvagnverji

Vagnstjóri á leið 14 frá verktakanum inn við sundin blá lenti í kröppum dansi á vaktinni í gær við Hlemmtorgið.

20171101130348-fae3b6a7Í vagninn komu þrír vagnverjar & hapði einn sig mest í frammi með ókurteisi & ósvífni. Steininn tók þó úr þegar hann hrækti á vagnstjórann enda durtur þessi HIV-smitaður & með lifrarbólgu C.

Góðu heilli er atvik á borð við þetta ekki algengt í vögnunum - vinum vorum - en samt finnst dr.-num hann heyra alltof mikið um svona ruddamennsku. 

Burt með þessa hegðun - strax!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband