Skrapp nú Gylforce á glaumstund
fyrst góða vagna fann.
Brósi einatt blíður í lund
& bjórinn niður rann.Hinn gleðisami & glysgjarni dr. Gylforce var í gærkvöldi á galeiðunni, hvar hann girnist mjög að gæla við þann görótta. Auðvitað!
Eptir afar vel valdar vagnaleiðir með leiðum 4 & 12, var dr.-inn óðara kominn i sollinn í miðbænum. En ekki hvað???
Gylforce-inn bauð öngvra boða við að kneyfa ölið & hapði brósa sér til fulltingis. Nema hvað.
Það vakti gjörhygli Gylforce-ins að sjá leið 3 aka upp Hverfisgötuna á leið á Hlemmtorg í stað Sæbrautar. Dr.-inn hefir hvergi séð að slíkt eigi að gera aukinheldur sem þristurinn skeiðaði svá með dr.-inn um títtnefnda Sæbraut áleiðis í Mjódd. Unaðsrúntur það - maður lifandi!
Meginflokkur: Samgöngur | Aukaflokkar: Lífstíll, Ljóð | 19.6.2021 | 15:35 (breytt kl. 15:36) | Facebook
Færsluflokkar
Bloggvinir
Maí 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | ||||
4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 |
11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 |
18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.5.): 3
- Sl. sólarhring: 10
- Sl. viku: 43
- Frá upphafi: 123415
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 41
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.