Bloggar | 24.11.2016 | 08:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Á frjádaginn eru ellefu ár liðin síðan hinn geðþekki dr. Gylforce hóf upp raust sína með strætobloggi á straeto.blogcentral.is, sem síðar færðist yfir í þessa síðu gylforce.blog.is.
Maður lifandi.
Í tilefni af því mun dr.-inn að sjálfsögðu halda til Mekka.
En ekki hvað???
Bloggar | 22.11.2016 | 12:34 (breytt kl. 12:39) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hinn dagsfarsprúði & drottnandi dr. Gylforce lenti í heldur undarlegri upplifun þegar hann tók sér far með leið 11 frá Mjódd á miðvikudagseftirmiðdaginn. Maður lifandi.
Vagninn átti að leggja úr vör frá Mjódd okkar Breiðhyltinga kl. 16:37 en kom mínútu of seint. Þá tók hinn geðþekki bílstjóri sig til & stormaði út úr vagninum & fór í smókpásu!
Það þýddi að vagninn lagði ekki af stað fyrr en kl. 16:42 eða fimm mínútum of seint. Það var mjög óheppileg ákvörðun því þetta var (og er) á miklum álagstíma & því ljóst að vagnstjórinn hepði þurft að halda vel utan um stýrið til þess að reyna að vera á áætlun. Sem tókst öngvan veginn að þessu sinni.
Áfram hélt vagninn að tefjast enda margir vagnverjar á ferð aukinheldur sem umferðarþunginn er mikill á þessum annatíma, frá kl. 16:30-17:30.
Þegar vagninn komst loksins úr miðbænum & hapði farið um Seltjarnarnesið var hann orðinn um 15 mínútum of seinn & næsti vagn beint fyrir aptan!
Vér vagnverjar vorum því sameinaðir úr tveimur vögnum í einn, sem var eðlilegt, en hvimleitt til þess að vita að ein ferð hafi dottið út á leið 11.
Dr.-inn man nú ekki eptir því að hafa farið í svona aðgerðir hér á landi á áður. Þetta er hinsvegar nokkuð algengt í Lundúnaborg & hefir hann a.m.k. tvisvar lent í þessu þar. En þar er líka allt önnur tíðni.
Hvað um það, vonandi ná vagnstjórar hér eptir að sleppa að fá sér nagla & gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að halda áætlun.
Amen.
Myndir: citybus.piwigo.com
Bloggar | 18.11.2016 | 10:56 (breytt kl. 11:08) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mín yndislega leið 3:
Ég vil gjarnan vera memm
& víða með þér aka.
Alla leið niður á Hlemm
& aptur tilbaka.
Hinn vel stokkaði & stöndugi dr. Gylforce stóðst ekki mátið - líkt & skákmenn - & staulaðist á vit vagna meðal vagnverja í Selinu. Nema hvað.
Dr.-inn tók eðalhring um hið vonlitla & illa stæða Efra-Breiðholt en sá ekki annað en að svæðið væri hið friðsamlegasta. Að minnsta kosti nú um stund. Hvað um það.
Leið 3 áði við Mjódd okkar Breiðhyltinga um kl. 19:15 þetta blíðláta & bljúga kvöld nóvembermánaðar. Þá tók við bið í sex mínútur eptir leiðum 4, 12, 17, 21, 24 & 28.
Leið 3 var síðan um 12 mínútur á leið frá Mjóddinni að Umferðarmiðstöðinni gömlu & góðu sem er ásættanlegur ferðatími að mati doksa. Þar valhoppaði vagnverjinn knái út.
Dr. Gylforce hóaði svá í leið 15 frá BSÍ að Hlemmtorgi & komst að lúkningu aptur í leið 3 hvar hún færði hann í fegurstu & breiðhylstu laut jarðarkringlunnar, Stútulautina.
Amen.
Bloggar | 12.11.2016 | 22:47 (breytt kl. 22:50) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eptir skólans streð & strit
strætisvagninn þrái.
Held ég strax á vagnavit
vakna úr andans dái.
Hinn trumbuslagaði en fráleitt truntulegi dr. Gylforce tróð sér heldur betur í vini vora, vagnana, í gær, hvar hann komst í kynni við leiðir þrjár. Maður lifandi.
Dr. Gylforce gekk í hægðum sínum um Sæbrautina í rigningarsudda & langaði í leið 12. Þetta var síðdegis, vagninn með 15 mínútna tíðni & hapði doksi kallinn um átta eðal hollenska VDL-vagna úr að velja.
Það má segja að kastað hafi tólfunum við Sæbrautina þegar doksi kallinn rétt missti af leið 12. Á elleftu stundu steig hann inn í leið 11 & hélt með honum rakleiðis að Mjódd okkar Breiðhyltinga. Nema hvað.
Það var gleðilegt að sjá hve margir vagnverjar áttu leið með leið 11 alla leið að Mjóddinni. Rúmlega 20 stykki stukku út úr vagninum en lentu í forarsvaði fyrir utan vagninn. Byggðasamlagið mætti splæsa í hellur eða malbik þar sem leið 11 hvílir drif & dekk. Hvað um það.
Dr.-inn gerði sér dælt við leið 21 & fékk hinn stutta 331 Iveco vagninn til þess arna. Leið vagnsins frá Mjódd að Firði er ákaflega slakandi & tekur rúmlega 20 mínútur.
Dr.-inn fýsti aukinheldur í sænskættað eðal stál & því ekki úr vegi að kíkja eptir leið leiðanna, leið 1, meðal Gaflara - en ekki hvað???
Dr. Gylforce sté inn í hinn unaðslega, sænskættaða 199 Volvovagn á leið leiðanna, leið 1, rétt fyrir klukkan sex í Firðinum. Doksi kallinn hélt með þessari dásemd alla leið að Hörpu sem tekur ekki nema um 30 mínútur.
Þvílíkur eðall!
Neðsta mynd: harpa.is
Bloggar | 10.11.2016 | 09:35 (breytt kl. 09:40) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Doktorinn á brambolti
bóngóður í neyð.
Tekur hús á Háholti
& hyggur þar á leið.
Hinn víðáttumikli & velviljaði dr. Gylforce vildi ólmur hafa sænskt þema meðal vina vorra, vagnanna, í dag, hvar hann reyndi að komast einvörðungu í strætisvagna frá Svíaríki. Nema hvað.
Dr.-inn & veit að aðeins fjórar leiðir eru til taks með hina sænskættuðu Scania & Volvovagna í hinu lostfagra leiðakerfi. Þetta eru leiðir 1, 2, 6 & 15. Þá er hægt að nálgast sænska gæðastálið á aukavögnum á leið 3 á morgnana eins & doksi kallinn hefir nú optsinnis gjört eptir að honum varð vart um sel sem Breiðhyltingur. Hvað um það.
Dr. Gylforce skáskaut sér inn í leið 2 í Hamraborg þeirra Kópvæginga, hvar hann fékk hinn grængula, sænskættaða metanvagn númer 119. Unaður, maður lifandi.
Eptir þýðan akstur með metan Scania Omnilink að Hlemmi á leið 2 hoppaði dr.-inn inn í annan Omnilnk. Að þessu sinni var hann númer 114 & á leið 15 & á leið upp í Mosfellsbæ. Frábært, löngu tímabært að taka hús á Háholti þeirra Mosfellinga!
Dr. Gylforce hugði renna sér inn í leið 6 frá Háholti klukkan rúmlega 6, hvar hann vissi að þá kæmi enn einn vagninn frá Svíaríki. Hinsvegar varð hann að sinna kalli & taka vagninn korteri fyrr, hvar hann fékk þá góðan Iveco Crossway númer 173 & brunaði með honum að Hlemmtorginu.
Já, vonandi gengur þetta betur næst hjá dr.-num þegar hann kýs að kúra kankvís & kotroskinn meðal hinna skandinavísku vagna.
Amen.
Bloggar | 2.11.2016 | 22:08 (breytt 3.11.2016 kl. 12:54) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.5.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 118903
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar