Frá Hlemmi að Firði
fór doksi án trega.
Verjans mikils virði
að vera tímanlega.
Hinn ærukæri & áreiðanlegi dr. Gylforce átti litla stund aflögu í gær, hvar hann var fljótur að nýta hana & hélt á vit vagna. Nema hvað.
Dr. Gylforce hélt með þýðum Iveco Crossway vagni að Hlemmi okkar Reykvíkinga. Þar sá Gylforce-inn hinn glæsta & glæsilega 3ja hásinga sænskættaða Volvo 199 vagn á leið leiðanna, leið 1.
Dr.-inn settist inn & þaut sænska stálið á rúmum 30 mínútum suður að Firði. Enn & aptur verður að segjast að slíkur ferðatími er ásættanlegur. Vagninn var vel setinn & leið hálftíminn eins & 5 mínútur á leið, leið leiðanna, leið 1.
En ekki hvað???
Lífstíll | 23.2.2017 | 11:19 (breytt kl. 11:33) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hinn ljúfi & fráleitt lundýgi dr. Gylforce hefir lokið pílsgrímsför sinni til Lundúna, hvar hann komst enn & aptur í hinar sjúklegu álnir & algjöra alsælu. Enn & aptur; já, enn & aptur - maður lifandi!
Nú sem endranær var urmul vagna & vagnverja að finna í þessari makalausu & mergjuðu miðstöð samgangna og viðskipta; fjármála & þjónustu. En ekki hvað???
Ungi & aldni vagnverjinn ólu manninn einkum í leiðum 9, 10, 27 & 49 enda bjuggu þeir í Kensington hverfi í Vestur-Lundúnum.
Aukinheldur fóru þeir feðgar á fjörurnar við hverfaleiðina 70, sem fer um Suður-Kensington á um 9-11 mínútna fresti virka daga sem & leið 274 þegar þeir tóku hús á dýragarðinum, London Zoo.
Leiðir 9 & 10 aka á um 6-10 mínútna fresti frá morgni til miðnættis & er afar þægilegt að hoppa inn & út úr þeim.
Fyrsta verk vagnverjanna var vitaskuld að fylla á Oyster-strætókortið til þess að geta komist út um hvipp & hvapp í höfuðstað Bretaveldis.
Þessi ferð var unaður í alla staði & getur doksi kallinn vart beðið eptir að komast aptur til hinna bresku vina sina, vagnanna.
Nema hvað.
Huggulegt ég mjög það hapði
hjá henni Betu beib.
Í Lundúnum með sir & lafði
látlaust í vagna greip.
Lífstíll | 22.2.2017 | 14:21 (breytt kl. 14:30) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Alls ekki farinn að fúna
laukferskur hugurinn.
Á leið senn til Lundúna
með litla verjann minn.
Kórrétt, hárrétt, laukrétt. Dr. Gylforce er á leið á leið með litla vagnverjann til Mekka.
Nú skal sá stutti kynnast dýrðinni - maður lifandi.
Bloggar | 16.2.2017 | 15:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hinn trúi & tryggi dr. Gylforce tróð sér meðal vina vorra - vagnanna - á dögunum, hvar hann áði við hið áður vinalega & viðmótsþýða Hlemmtorg.
Nú er sem öld sé önnur - en ekki hvað???
Við Hlemminn er orðið alltof þröngt um vini vora aukinheldur sem urmull af rútuskröttum eiga þarna leið hjá sem bætir ekki ástandið nema síður sé.
Mýmörg hótel hafa á reit þessum risið og verður að segjast að hátt er ekki risið á sumum þeirra; nema þá kannski holdris á einstaka karleplum á herbergjunum - maður lifandi.
Brátt breytist byggingin - Hlemmurinn - í Mathöll & ljóst á öllu að vagnarnir eru á útleið frá þessu annars ágæta & þekkta kennileiti borgarinnar. Hvað um það.
Í millitíðinni verður doksi kallinn eilífur augnakarl við Hlemminn, arkandi á leið. Nema hvað.
Villuráfandi í vagninn fór
vafraði hann að Hlemmi.
Alls konar fólk að drýgja hór
að mér sótti tremmi.
Myndir: visir.is o.fl.
Samgöngur | 14.2.2017 | 16:06 (breytt kl. 16:18) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hinn órafjarlægi ólátabelgur dr. Gylforce óar óhugsandi við því hve stutt er yfir í Voginn fagra frá seli hans & laut; Stútulaut. Maður lifandi!
Dr.-inn valhoppaði um vinalega göngustíga við Selhrygginn & eptir aðeins fimm mínútur var doksi kallinn kominn að stoppistöð leiðar 28 við hinn kópvægska Hvammsveg. Þvílík nautn að vita af henni svo nærri. Þvílík gleði!
Á annatíma iða um Lindir, Kóra & Smára sex Hollendingar af splunkunýrri VDL-gerð á leið 28 sem bætast nú við leiðir 3 & 4 hér við Stútulautarselið.
Magnað - nema hvað!
Yfir í Voginn fagra fór
fimm mínútna spölur.
Vagninn kom úr Mjódd & kór
keyrði mig á útsölur.
Bloggar | 7.2.2017 | 15:07 (breytt kl. 16:08) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hinn fíkni & fýsilegi dr. Gylforce fór heldur betur á fjörurnar við fortíðina á fimmtudaginn (í gær), hvar hann hitti fyrir hina sterku & sænskættuðu Scania Omnilink vagna. Maður lifandi.
Hinn ruglkenndi doksi reikaði & rölti um Mjódd sína síðdegis í gær, hvar hann sá hinn sænskættaða 102 Omnilink á leið 4 - & var sá á leið með dekk sín & drif niður í bæ. Málið dautt; inn vildi dr.-inn!
Omninlink II (102 vagninn) leið þýðlega um vígvelli veganna með urmul vagnverja um borð uns hann kom að Háaleitisbraut. Brautin sú er ansi hlykkjótt & átti Svíinn í mesta basli við að halda dekkjum sínum á réttum stað. Hvað um það.
Við Hlemmtorgið var 101 Omnilinkinn að búa sig til ferðar á leið leiðanna, leið 1. Þessi eðal dreki var keyptur árið 2001 & vappaði inn á vígvellina í janúarmánuði 2002, sumsé 15 ára þjarkur - & á nóg eptir!
Vagnstýran gómaði vagnverja tvo af erlendi berginu, hvar kort þeirra eiga að renna út 29. febrúar en sá dagur er víst ekki á dagatalinu á þessu ári! Spurning hvar þessir öndvegis piltar hafa fengið kort þessi?!?! Hvað um það.
Dr.-inn fékk tæplega 40 mínútna unaðsrúnt frá Hlemmi að Firði & hóaði þar í spánnýjan Iveco Crossway á leið 21 til þess að komast aptur áleiðis að laut sinni.
Yfir&út!
Í vagna spái spánnýja
spennandi & hlýja.
Í nepjunni nostalgía
í notalegum Svía.
Myndir: citybus.piwigo.com
Bloggar | 3.2.2017 | 10:49 (breytt kl. 12:58) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kúldrast eins & karlepli
kúri í fjarka & þrist.
Bus-arnir í brennidepli
að bruna með þeim er list.
Hinn snarpi & snöggi dr. Gylforce hefir snarlega tekið eptir því að málefni strætó eru svo sannarlega komin á dagskrá. Það er fagnaðarefni & gleður hið gamla hró dr.´s.
Í því sambandi nægir að nefna næturvagna, gæludýr í vagnana að ógleymdu hinu gleymda leyndarmáli í samgöngumálum okkar vagnverjanna; samgöngukortið.
Samgöngukort of dýrt
Gæludýr í vagnana
Það er einlæg ósk dr.´s að vinnu við að koma upp næturvagna verði hraðað eins & kostur er & þeir settir inn í leiðakerfið í ágúst. Strætó bs. breytir kerfinu bara tvisvar á ári; janúar & ágúst. Hvað um það. Meir um það síðar - þó ekki nærbuxur.
Dr.-inn skáskaut sér í leið 4 seint í gærkvöldi hvar hann fýsti í fjögurra vagna ferð. Maður lifandi.
Dr.-inn var með í unaðsferðum frá Stútulautarselinu sæla með leið 4 að Mjóddinni & síðan leið 12 að Hlemmtorgi okkar Reykvíkinga. Nema hvað.
Við Hlemmtorgið rak dr. Gylforce glyrnur sínar í hinn kynngimagnaða 3ja hásinga 199 Volvo-vagninn á leið leiðanna, leið 1, & þurft þá ekki að spyrja að leikslokum; dr.-inn skellti sér suðureptir!
Dr. Gylforce lék að lúkningu svá kunnugleg stef til þess að komast í Stútulautina fögru við Selin; fór í fjarkann & þaut í þristinn.
Amen.
Bloggar | 2.2.2017 | 13:05 (breytt kl. 13:13) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar