Hafinn akstur um Urriðaholt
hamingjan vex í bænum.
Styrkur svæðisins sem & stolt
í strætó vistvænum.
Segja má með sanni að í dag hafi leið 22 hafið akstur með formlegum hætti. Leiðin sú ekur um hið vistvæna & vottaða hverfi Urriðaholts.
Boðið er einungis upp á akstur á annatímum virka daga til að byrja með. Að mörgu leyti er það skiljanlegt & skynsamlegt að byrja rólega.
Enda þótt þessi hvíta smárúta frá Hópbílum sé eflaust ágæt hepði farið betur á því að bjóða upp á t.d. rafvagn um þetta vel skipulagða & fallega hverfi.
Illu heilli komst dr. Gylforce ekki um borð í leið þessa þennan annars magnaða mánudag en mun efalítið taka hús á honum þegar líða fer á vikuna.
Yfir&út!
Samgöngur | 7.9.2020 | 18:29 (breytt kl. 18:29) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gleði meðal Garðbæinga
Gylforce til í fögnuðinn.
Það mun samt öngvin þvinga
þá í vagnaunaðinn.
Ný leið - nýr unaður
Í dag er vert að fagna hvar ný leið í hinu lostfagra leiðakerfi hefur akstur. Reyndar byrjar hún bara sem pöntunarþjónusta frá Hreyfli þennan blauta hvíldardag en á morgun hefst aksturinn fyrir alvöru. Maður lifandi!
Leið 22 verður með óvenjulegu sniði af hálfu byggðasamlagsins. Á annatímum, kl. 7-9 & kl. 14-18 virka daga, ekur 18 manna smárúta leið þessa & verður hún líklega ekki fagurgul eins & vagnar vorir. Þess á milli verður pöntunarþjónustan í boði en slík þjónusta er t.d. fyrir hendi á leiðum 23, 27 & 29. Nema hvað.
Vonandi taka Garðbæingar búsettir í Urriðaholti vel í vagninn & hlakkar dr. Gylforce mjög til að taka unaðshring um þetta fallega hverfi.
Samgöngur | 6.9.2020 | 10:46 (breytt kl. 11:04) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hún verjanna ró raskar
rallhálf á djamminu.
Á fyrirmælum flaskar
ferð endar í djeilinu.
Kolvitlaus kennd kona
Eitthvað finnst doksa kallinum fréttir af ofurölvuðum vagnverjum vera að færast í aukana. Getur það verið???
Eða eru fjölmiðlar farnir að gefa dagbók lögreglunnar meiri gaum???
Humm, humm???
Bloggar | 5.9.2020 | 11:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vagnar! Ríkisbubba vekið
værum blundi af.
Um Urriðaholt skal ekið
ekki þó alltaf.
Voldugir auðmenn í vögnum???
Samgöngur | 3.9.2020 | 22:47 (breytt kl. 22:49) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ástæðurnar ærnar
illa farið gat.
Rígfestið rærnar
reyrið - akkúrat!
Kynnisferðir komast í hann krappan
Betur fór en á horfðist hjá verktakanum innvið sundin blá í morgun, hvar rærnar virðast hafa losnað á leið 15 meðan vagninn var við akstur. Illu heilli.
Hinn hollenski VDL-vagn lenti í kröppum dansi á morgunvaktinni en vagnstjórinn hefir verið vel með á nótunum & náð að afstýra skemmdum & slysi.
Vagninn var tekinn úr umferð & væntanlega hafa viðgerðarmennirnir tekið vel á átakslyklinum til þess að gera hinn hollenska kláran á vígvelli veganna eins fljótt & auðið var.
Bloggar | 3.9.2020 | 16:24 (breytt kl. 16:25) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Innan fárra ára
akandi sjálfur.
Um alla útnára
& aldrei hálfur.
Ekur sjálfur innan fárra ára
Það verður ei ofsögum sagt að spennandi tímar séu framundan hvað almenningssamgöngur varðar. & reyndar samgöngur almennt. Maður lifandi!
Í mörgum löndum í kringum okkur er allt á fullu við að prófa sjálfkeyrandi strætisvagna. Yfireitt er um að ræða litla vagna sem eru með einum starfsmanni til að byrja með. Má benda á lönd eins & Danmörku, Noreg og Finnland í því sambandi.
Framkvæmdastjóri byggðasamlagsins er opinn & jákvæður í garð þessara sjálfakandi vagna og er það vel. Meira að segja hefur Strætó reynt að fá til sín slíka vagna til reynslu en ekki orðið ágengt ennþá í þeim efnum.
Vonandi finnur framkvæmdastjórinn fé til þess að leigja einn sjálfkeyrandi vagn. Það yrði virkilega athyglisvert - maður lifandi!
Yfir&út!
Samgöngur | 2.9.2020 | 20:25 (breytt kl. 20:27) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sjálfkeyrandi vagna nú vill
vagnana tók í gaggó.
Ölvaður í denn sem ekill
hepð´átt að taka strætó.
Ég brun´innan í mér (með strætó)
Það hlaut að koma að því að borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins væru með puttann á púlsinum & búnir að átta sig á breyttu ferðamynstri fólks í framtíðinni. Nema hvað.
Fulltrúarnir vilja skora á stjórn Strætós um að hefja tilraunir með sjálfkeyrandi vagna. Það er um að gera að prófa nýja hluti - en ekki hvað???
Á næstu árum má jafnvel sjá ákveðnar leiðir í Borgarlínunni margumtöluðu með sjálfkeyrandi & umhverfisvænum strætisvögnum. Sérstaklega þær sem koma til með að aka stóran hluta leiðar sinnar á sérrýmum. Hvað um það.
Það fór vel á því að oddviti Sjálfstæðismanna í borgarstjórn, sellóistinn geðþekki, hepði framsögu um málið því í eyrum Gylforce-ins er þetta hljómfögur framtíðarmúsík.
Samgöngur | 1.9.2020 | 21:41 (breytt kl. 21:56) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Á drottningarviðtal við Dóru leit
dellan tóm þar kraumar.
Um Borgarlínuna allt best veit
búninga samt saumar.
Búningahönnuður bullar
Hið geðþekka dagblað, Morgunblaðið, slengir fram viðtali við búningahönnuð einn hvar hann hefir undarlegar & athyglisverðar skoðanir á Borgarlínunni. En ekki hvað???
Enda þótt gott sé að sem flestir hafi skoðanir á jafn mikilvægu og veigamiklu verki eins og línan er, verður þó viðkomandi að hafa kynnt sér málið. Er það ekki???
Búningahönnuðurinn virðist vera með böggum hildar vegna þess að framkvæmd þessi muni jafnvel setja sveitarfélög á hausinn & fara ansi illa með fjárhag ríkissjóðs. Þar virðast áhyggjuefnin einkum vera sú að verið sé að leggja spor og teina út um allan bæ. Það var og.
Stór hluti Borgarlínunnar verður í sérrýmum svokölluðum sem verða hvorki spor né teinar, heldur venjulegur vegur. Reyndar þarf að hafa í huga að langir vagnar verða á reinum þessum og því ekki gott að vera með hringtorg og krappar þröngar beygjur og þess háttar.
Án þess að dr.-inn sé nú sérfræðingur í vegagerð hlýtur að vera hægt að breyta þessum sérrýmum í venjulega vegi ef stjórnvöld og meirihluti fólks hafnar Borgarlínunni og ákveðið verður að hætta við hana á einhverjum tímapunkti.
Þá sætum við raunar uppi með kostnað vegna stoppistöðva og vitaskuld umhverfisvæna vagna en þá mætti líklega selja.
Það er sjálfsagt að setja fram gagnrýni á Borgarlínuna. Nema hvað. Til að mynda hvort það sé réttlætanlegt að eyða svona miklu almannafé - 70 milljörðum hið minnsta - í aðeins um 12% af öllum ferðum á höfuðborgarsvæðinu? Og munu íbúar nýta sér línuna??? Verða komnar aðrar lausnir til þess að ferja fólk sem eru þægliegri, ódýrari og umhverfisvænni???
Þetta eru spurningar sem fólk ætti að rökræða en ekki slengja fram einhverri vitleysu um teina þegar margopt hefir verið bent á að Borgarlínan er einfaldlega umhverfisvænir langir strætisvagnar - og á hjólum.
Nóg af rausi - yfir&út!
Lífstíll | 31.8.2020 | 16:18 (breytt kl. 16:18) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Með auðmýkt & andakt
arkar doksi af stað.
Vagn auka á morgunvakt
verjar renna í hlað.
Dr. Gylforce hélt loksins á vit vagna í blæðandi morgunsári gærdagsins, hvar hann hitti fyrir sænskættaðan aukavagn sem spillti nú ekki fyrir. Öðru nær. Maður lifandi!
Hinir gömlu sænsku jálkar fengu að mestu leyti frí frá vígvöllum veganna í sumar en eru mættir til leiks. Dr.-inn sté inn í hinn geðþekka 116 Omnilink sem var aukavagn á leið 3 á föstudagsmorguninn. Nema hvað.
Síðasta vetur fengum vér vagnverjar opt annan sænskættaðan gamlan jálk á þessari aukavakt, Volvo 188, en svo virðist sem hann sé farinn yfir móðuna miklu & kvatt vígvelli veganna fyrir fullt & allt.
Hvað um það.
Dr.-inn skipti um vagn í Mjódd okkar Breiðhyltinga & hélt svá síðar um daginn á vit margra vagna.
Þvílíkur unaðsfrjádagur - maður lifandi!
Lífstíll | 29.8.2020 | 14:40 (breytt kl. 14:40) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bílar og akstur | 25.8.2020 | 07:53 (breytt kl. 07:57) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar