Bloggar | 24.9.2015 | 13:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hinn hálfdimmi & húmaði dr. Gylforce hljóp af stað í fríkeypis vagna í gærkvöldi. Maður lifandi. Doksi kallinn mátti öngvan tíma missa. Nema hvað.
Dr. Gylforce gekk að skýli sínu & varð heldur leiður hvar hin funheita leið 35 kom 5 mínútum of seint. Doksi undraðist það því yfirleitt er ekki mikið um tafir á vögnunum á kvöldin. Hvað um það.
Dr.-inn heilsaði með virktum leið 11 í Mjóddinni & settist inn í einn af fjölmörgu Crossway-vögnum þeirra Fjarðarmanna. Vagnstjórinn sem var á vacht þetta kvöldið virtist vera á hraðferð hvar vagninn var yfirleitt um þremur mínútum of fljótur. Það er líka hvimleitt þegar það gerist & skrýtið að upplifa vagnstjóra sem virðist vera slétt sama um það.
Dr. Gylforce gekk út úr hinni elleftu leið við Hlemmtorgið & átti von á því að vagnstjórinn myndi tímajafna vagninn. Ó, nei. Hann brunaði af stað & skeytti öngvu um tímaáætlanir leiðar 11.
Langt er um liðið síðan doksi kallinn sté inn í leið 15 & gerði hann bragarbót á því. Hinn 185. Crossway vagn kom aðvífandi & tyllti dr.-inn sér tignarlega í vagninn. Hann hugði á ferð upp í Ártún með vagninum en fékk nóg af gelgjulátum í nokkrum vagnverjum & hoppaði út við Grensás.
Beint fyrir aptan leið 15 beið leið 2 & hoppaði Stútlautardoksi upp í hann & hélt í Voginn.
Hann lokaði svá hringi sínum venju samkvæmt í þeim funheita á leið 35 & hélt í fegurstu laut jarðarkringlunnar.
Lifið veil!
Urmull af fríum ferðum
fór þó seint um kvöld.
Glæstir, af öllum gerðum
& gleðin var við völd.
Bloggar | 23.9.2015 | 14:34 (breytt kl. 14:47) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hinn bísperrti & blóðheiti dr. Gylforce gat vart beðið eptir degi þessum hvar hinn bíllausi dagur er & frítt í vagnana, vini vora.
Doksi kallinn endurtekur: Það er gratís í hina glæstu & glænýju vagna - & líka í alla hina!!!
Dr.-inn spáði & spekúleraði í þessum spennandi degi en þó aðallega hvernig hann gæti náð langdvölum & þrásetum í vögnunum. Nema hvað.
Eptir drykklanga stund ákvað dr.-inn hreinlega að fara með ungviðið hér í mennta- & menningarsetrinu við Kársnes & Kastala í góðan rúnt í hinu lostfagra leiðakerfi. En ekki hvað????
Ungviðið hélt rakleitt ásamt hinum aldna vagnverja að hinum funheita & engilsaxneska 305 MAN vagni á leið 35. Öngvra boða var svo beðið & áfram haldið í leiðir 4 & 1. Þar bauð byggðasamlagið upp á nýju Crossway vagnana, 177 & 148 sem reyndar eru nú orðnir meðgöngugamlir, þ.e. 9 mánaða. Hvað um það.
Illu heilli er dr. Gylforce fastur í mennta- & menningarsetrinu þessa stundina en valhoppar út meðal vagnanna um leið & færi gefst enda lætur hann ekki þennan eðal framhjá sér & það án endurgjalds!!! Maður lifandi.
Óstýrlátt var ungviðið
á ókaldri leið.
Reyndi á raddsviðið
& röddinni sveið.
Bloggar | 22.9.2015 | 14:53 (breytt kl. 14:57) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hinn glufukenndi & gallaði dr. Gylforce er gríðarlega spenntur mjög nú í miðri samgönguvikunni hvar hann getur vart þagað eins & tjörupappi. Öðru nær.
Á morgun er nefninlega bíllausi dagurinn & þá fáum vér vagnverjar gratís í vagnana. Maður lífandi. Nema hvað.
Að morgni dags í myrkrinu
í miðri samgönguviku.
Á leið með verjum til vinnu
í vögnunum síkviku.
Mynd: straeto.is
Bloggar | 21.9.2015 | 08:30 (breytt kl. 12:20) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hinn ráfandi & reikuli dr. Gylforce reif sig út á hæsta degi við mennta- & menningarsetrið við Kársnes & Kastala. Þessa dagana er evrópsk samgönguvika hvar stjórnvöld hvetja oss til þess að blanda okkar flandri. Nema hvað.
Dr. Gylforce á nokkuð erfitt með blönd þessa hvar hann vill bara vera meðal vina sina, vagnanna. Stöku sinnum notast hann við tvo jafnfljóta en skjaldan óvininn mikla, einkabílinn. Hvað um það.
Áður en doksi kallinn hélt á vit vagna skipulagði hann næstu ferðir ungviðisins í áfanganum "Allir með strætó." Næsti áfangastaður krakkanna er að kynnast hinum kynngimögnuðu tengimöguleikum í Ártúni þeirra Reykvíkinga.
Í Ártúni geta vagnverjar tekið leiðir 5, 6, 12, 15, 16, 18, 24 & 57. Verkefni krakkanna er mismunandi & verður fróðlegt að fylgjast með framvindu þeirra á mánudaginn.
Dr. Gylforce sté hinsvegar á hæsta degi inn í hinn funheita 305 MAN vagn á leið 35 sem er aptur kominn á vígvelli veganna. Að því loknu hóaði hann í 135 Crossway vagninn á leið 4. Það er mjög erfitt að sjá framan á Crossway vagninum að hann sé númer 4. Taflan er alltof dauf & verða þeir Hestshálsmenn að gera þarna bragarbót á. Dr. Gylforce hapði ekki mikinn tíma aflögu hvar hann sté aptur & enn í leið 35 & hélt í mennta- & menningarsetrið.
.
Bloggar | 18.9.2015 | 08:50 (breytt 22.9.2015 kl. 15:12) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hinn ungi & aldni vagnverji ráku glyrnur sínar í það að hinir rauðu & reffilegu tveggja hæða vagnar - dobbeldekkerarnir - verða nú senn komnir í pásu.
Síðustu ferðir þeirra voru reyndar í gær, hinn 15. september. Feðgarnir hófu leik við hina hljómfögru Hörpu hvar þeir hoppuðu svá út við Perluna.
Eptir gott stopp & regnbogaskoðun í Öskjuhlíðinni einhentu þeir sér inn í þann rauða á nýjan leik & luku hringnum með eðalrúnti um Laugardalinn, Skipahöfn & sundin blá. Maður lifandi.
Einn hringur með þessum rauðleitu vögnum kostar 3500 krónur & er það raunar AÐEINS dýrara en í þá gulleitu. En mun skemmtilegra - en ekki hvað???
Hinir fríðu feðgar náðu þremur ferðum með þessum draumavögnum í sumar sem er dágott & hlakka til að sjá þá á nýjan leik á næsta ári.
Farvel mínir fögru vagnar!
Enn á flakki feðgarnir
fóru í síðasta sinn.
Sætsýnarnir senn farnir
til söknuðar ég finn.
Bloggar | 16.9.2015 | 13:58 (breytt kl. 14:34) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hinn óðslegi & öri dr. Gylforce átti einn sinn albesta dag meðal vinanna, vagnanna, á fimmtudaginn hvar hann náði í tíu trylltar ferðir. Doksi kallinn endurtekur; tíu tryllt tjútt!!! Maður lifandi. Nema hvað.
Dr. Gylforce fékk sænskættaðan jálk á leið 35 frá mennta- & menningarsetrinu við Kársnes & Kastala. Það var slepja & slúði úti fyrir svá doksi kallinn henti sér inn í leið 2 við Hamraborg okkar Kópvæginga.
Frá Hlemmtorgi var löngu kominn tími fyrir dr. Gylforce að taka leið 16 & kynnast Árbænum. Doksi hóaði í 167 Karosavagninn & sat þar kirfilega hvar vagninn kom að Árbæjarskóla. Þar áttu ævintýrin að gerast.
Dr. Gylforce hugðist nefnilega skáskjóta sér í fyrsta sinn í leið 26 & kanna unaðsakra Úlfarsárdals, Grafarholts & Grafarvogs. En ekki hvað???
Eptir Max drykklanga stund kom hinn stutti 249 Heuliez vagn á leið 26 við Árbæjarskóla. Dr.-inn henti sér inn í vagninn & vissi að í vændum var rúmlega 30 mínútna raðfullnæging um skærbleika akra Úlfarsárdals mínir virðulegu vagnverjar!
& það varð úr. Dr.-inn átti algera dásemd í leið 26 um Þúsaldir, Gvendargeisla, Skyggnisbraut & hvað þetta heitir allt saman hvar hann endaði för við Spöng þeirra Grafvæginga.
Leið 26 gengur aðeins á klukkustundarfresti & er það miður en einn vagn sér um akstur á leið þessari. Vonandi verður bætt úr því þegar frá líða stundir.
Doktorinn drullusvalur
dreif sig í túr.
Fagur er Úlfarsárdalur
aftan- & niðrúr!
Bloggar | 13.9.2015 | 21:48 (breytt kl. 22:21) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hinn hversdagsgæfi & kviki dr. Gylforce hepst handa í dag að kenna ungviðinu hér í mennta- & menningarsetrinu við Kársnes & Kastala á vagnana, vini vora.
Jú rétt, það er komið að hinum vinsæla áfanga "Allir með strætó." Tuttugu nemendur eru skráðir til leiks fyrir áramót & aðrir tuttugu eptir áramót sem er dágott.
Krakkarnir fá verkefni í hendurnar frá dr.-num sem þau eiga að leysa. Þau eiga að koma sér á ákveðinn stað á ákveðnum tíma í vögnunum vitaskuld & taka þar mynd máli sínu til sönnunar.
Nú er bara að sjá hvurnig tekst til að ala upp fleiri vagnverja!
Í förum ávallt fljótur
fyrsti kosturinn.
Skýst á milli skjótur
í skýlum vagnverjinn.
Myndir: forlagid.is
Bloggar | 7.9.2015 | 09:49 (breytt kl. 14:35) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hinn skinnpokalegi en þó skynugi dr. Gylforce skrapp vitaskuld á vit vagna í rigningarsuddanum. Nema hvað.
Doksi kallinn hefir verið tíður gestur - eilífur augnakarl - í leið 35 síðustu daga & gefið vögnum, vagnstjórum & vagnverjum góðan gaum. En ekki hvað???
Það hafa tveir vagnar séð um hinn kópvægska hringrúnt undanfarna daga. Þetta eru stuttu vagnarnir Heuliez 156 & hinn funheiti MAN 305. Það er vel & hafa vagnverjar tekið vel við sér enda þjóðfélagið komið á blússandi siglingu eptir sumarleyfi. Hvað um það.
Eitt er áberandi og leitt. Það er munur á þrifum, umgengni & viðhaldi á vögnunum, þ.e. hvort um er að ræða vagn frá Strætó bs. eða verktaka. Til að mynda er hinn kópvægski verktaki Kynnisferðir, sem ekur leiðum 28 & 35, lítið fyrir að taka úr umferð vagna sem eru með ónýt sæti svo dæmi séu tekin. Þetta myndi ekki sjást hjá byggðasamlaginu. Kannski er vagnahallæri um að kenna en það breytir því ekki að þetta setur heldur leiðinlegan svip á þjónustuna & gerir hana ekki jafn fagmannlega & góða.
Vér vagnverjar eigum betra skilið - & hananú!
Komið er í bátinn babb
hjá bágum verktaka.
Óhirða & algjört drabb
sem ætti að rannsaka.
Neðri mynd: citybus.piwigo.com
Bloggar | 3.9.2015 | 13:00 (breytt kl. 14:02) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hinn guðdómlegi & glysgjarni dr. Gylforce gekk til vagnarannsókna í hádeginu hvar það gekk afar vel & allt eins & best verður á kosið. Nema eitt. Nema hvað.
Í Mjódd þeirra Breiðhyltinga kom dr.-inn með hinum glænýja & glæsta Crossway vagni á leið 4. Rak þá doksa kallinn í rogastans hvar hvít rúta blasti við honum á leið 51. Hún var aukinheldur illa merkt & ljóst að forvígismenn byggðasamlagsins verða að gera betur en þetta. Hvað um það.
Dr.-inn gaf sig vitaskuld á tal við vagnverja sem að þessu sinni voru ferðamenn. Furðuðu þeir sig á því að hvíta rútan væri leið 51 enda fengið upplýsingar um annan lit á vögnum sem færu um landið. En ekki hvað???
Hvíta rútan klúður er
sem komast má hjá.
Byggðasamlaginu ber
að bæta úr goðgá!
Bloggar | 2.9.2015 | 13:43 (breytt kl. 13:54) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Sept. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.9.): 4
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 29
- Frá upphafi: 124126
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar