
Hinn lítilláti en þó vel limaði dr. Gylforce hefir lítt tekið sér far með vinum vorum - vögnunum - undanfarið hvar hann hefir verið hneppandi öðrum hnöppum. Skandall - en ekki hvað???
Það hefir þó borist honum til eyrna að breytingar á leiðakerfinu standi fyrir dyrum um áramótin. Margt er þar vel gert samkvæmt heimildum doksa & gott til þess að vita að kerfið sé í stöðugri endurskoðun & þróun. Til að mynda á að auka þjónustu í úthverfunum með aukinni tíðni hverfaleiða og jafnvel með nokkrum almennum leiðum.
Dr.-inn fær t.d. leið 35 með korterstíðni á annatímum virka daga sem er auðvitað góð búbót fyrir vagnverja sem búa í námunda við Stútulautina. Nema hvað.
Þó hepði hinn kópvægsi doksi viljað sjá byggðasamlagið endurvekja leið 36 eins & margopt hefir hér komið fram. Það er skrýtið að láta tæplega 5000 manna byggð í vesturbæ Kópavox sitja í leið 35 í um 20 mínútur & aka austur Nýbýlaveg, inn í Engihjalla, niður í Hlíðarhjalla & vestur Hlíðarveg unz loksins er að skipta yfir í aðra vagna.
Dr.-inn hefir gaman af setu þessari en hún er hvimleið þegar vér vagnverjar þurfum að komast á milli staða með eins skjótum hætti & mögulegt er.
Byggðsamlag, brettu nú upp ermar & komdu með lausn á þessu!
Bloggar | 3.11.2014 | 14:28 (breytt kl. 14:31) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þá hefir nýsnævi breitt úr sér hér á höfuðborgarsvæðinu & vitaskuld víðar. Ugglaust gerir þetta vinum vorum - vögnunum - erfiðara um vik & var t.d. ferð leiðar 35 kl. 9:07 frá Hamraborg frestað.
Vonandi aka vagnarnir með varúð í dag & forðast árekstra.
Bloggar | 21.10.2014 | 09:41 (breytt 10.6.2015 kl. 19:40) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hinn óþrjótandi en þó unaðsfulli dr. Gylforce hefir nýtt Týsdaginn til hins ítrasta hvað vagna & vagnverja áhrærir. Maður lifandi. Doksi kallinn hefir þróað þrjá unaðshringi í hinu kynngimagnaða leiðakerfi höfuðborgarsvæðisins á þessum degi sem hann hefir kallað því geðþekka nafni "Þriðjudagsþruman."
Fyrst ber að nefna hið brjálæðislega Breiðholtsbúgí með leiðum 35 & 4. Þar eru í aðahlutverki hinn funheiti & engilsaxneski MAN vagn á leið 35 & meginlandsvagnar Crossway & Citelis. Doksi kallinn svífur þá með leið 4 um lendur Breiðhyltinga & má hafa sig allan við í tungumálakunnáttu sinni þegar rætt er við breiðhylska vagnverja. Nema hvað.Önnur þruman er endurnýjun á kynnum doksa við hina glæstu Mercedes Benz 222-223 vagna þeirra Fjarðarmanna er taka nú slaginn á leið 11. Áður fyrr brunuðu þeir milli Fjarðar & Hlemmtorgs á leið leiðanna, leið 1, en eru nú á annatíma milli Mjóddar & Ness. Dr. Gylforce tekur yfirleitt þrásetu góða með þýska stálinu & yfirgefur ekki dásemdina fyrr en við annað stopp við Hlemminn, eptir góðan hring um Seltjarnarnes. En ekki hvað???
Þriðja þruman er til þess ætluð að ná í hinn sænskættaða, 3ja hásinga & þægilega 198 Volvovagn á leið 1. Doksi kallinn skellur sér vitaskuld í leið 35 - ekki annað í boði hér út við Kársnes & Kastala - & svá í leið 4 upp í Mjódd. Þar einhendir dr.-inn sér í stuttan Heuliez vagn á leið 21 & fer frá Mjódd í unaðsrúnt að Firði. Því næst er komið að 3ja hásinga dýrðinni. Gaman væri að lengja þennan rúnt & fá innsýn í 250-252 Heuliezvagnana á leiðum 43 & 44 & er það í bígerð.
Doksi þriðjudagsþrumu
þrammaði í
með hverja einustu frumu
& ávallt sexý.
Myndir: citybus.piwigo.com/
Bloggar | 10.10.2014 | 11:16 (breytt 1.12.2014 kl. 10:34) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

Venju samkvæmt kom hinn engilsaxneski & funheiti MAN 305 vagn aðvífandi við mennta- & menningarsetrið við Kársnes & Kastala. Dr.-inn kvaddi námsþyrsta ungviðið hér vestra & hélt eystur í Engihjalla.
Frá hinu kópvægskra eystri hélt dr. Gylforce með meginlands Citelisvagni númer 134 á leið 4 í Mjódd þeirra Breiðhyltinga. Eptir eptirgrennslan & víðáttumiklar vagnarannsóknir þar langaði doksa kallinn að sækja þá Gaflara heim. & það var úr - en ekki hvað???

Gjörhygli Gylforce-sins vöchtu hinsvegar hinir stuttu en stífbónuðu 250-252 Heuliezvagnar þeirra Fjarðarmanna sem taka vachtina á leiðum 43 & 44. Þessa vagna hefir doksi eigi setið í & gat það ekki að þessu sinni en hyggst gjöra það hið fyrsta.

Gaflaraglaumur
Gylforce-i hjá.
Dásemdar draumur,
doktorsins þrá.
Í óæðri aumur
orðinn nokk smá.
Gefinn vel gaumur
gulleitum já.
Myndir: citybus.piwigo.com/
Bloggar | 30.9.2014 | 22:05 (breytt 1.10.2014 kl. 09:35) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

Dr. Gylforce böðlaðist út í bálhvassan mánudaginn hvar hann fýsti í hinn engilsaxneska & funheita MAN 305 vagn sem ekur hringinn hér um Voginn. Hinn alvoti doktor skáskaut sér inn í vagninn úr skýlinu & tók enn einn eðal hringinn. Hvar endar þess unaður???
Gæfur & góðlyndur
gekk út í skýli
óð vatnið - vel syndur
eins& vesælt síli.
Mynd: citybus.piwigo.com
Bloggar | 29.9.2014 | 13:43 (breytt kl. 13:46) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

Hlakka til að eiga eina góða þrásetu með honum ...
Mynd: citybus.piwigo.com
Bloggar | 26.9.2014 | 09:45 (breytt kl. 09:46) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

Sem fyrr var urmull vagna í boði fyrir doksa kallinn en hann vitaskuld hóf keikur sinn leik á einum sænskættuðum vagni frá Kynnisferðum. Eptir góðan rúnt með 302 Volvovagninum á leið 35 vatt dr. Gylforce sér vasklega inn í meginlands Crossway vagn númer 144 á leið 4.
Hinn aldni vagnverji hapði litla vagnverjann sér til fulltingis & hugðist taka með honum snotran rúnt um fagrar lendur Breiðhyltinga & sýna honum hin kynngimögnuðu listaverk sem prýða nú blokkir Breiðholtsins.

Í hinum kópvægska miðbæ léku hinn ungi & aldnvi vagnverji mjög kunnugleg stef til þess að komast í fegurstu laut jarðarkringlunnar, Stútulautina.
Yfir&út!
upp í holtið breiða.
Labba um með litla kút
sjá listina seiða.
Myndir: citybus.piwigo.com
Bloggar | 22.9.2014 | 21:41 (breytt 24.9.2014 kl. 11:07) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

Hinn sérvitri & snarpi dr. Gylforce snéri sér um hæl að vögnunum - vinum vorum - í gær hvar veður var dágott & doksi í eiturstuði. En ekki hvað???
Dr. Gylforce fýsti í sænskt þema í vögnunum & hélt sig því við leiðir 1, 28 & 35 hvar Volvo-inn er helst að finna. Doksa langaði líka í leið 6 hvar urmull er þar af Scania Omnilink vögnum en náði því ekki að þessu sinni.
Í Mjódd þeirra Breiðhyltinga sá dr.-inn hinsvegar hinn glæsta MB vagn á leið 11. Gamli & góði 223 vagninn sem færði hinn kópvægska kumpán um koppagrundir á leið 1 hér forðum daga. Þvílík sæla.
Doksi kallinn beið öngvra boða & vatt sér inn í þýska vagninn. Leið 11 ók þýðlega frá Mjódd, um Bústaði & Há leiti hvar hann sté út við Hlemmtorgið. Doktor eptir streð & strit
stundaði herkænsku.
Reifur hélt á vagnavit
í Volvoana sænsku.
Myndir: citybus.piwigo.com & wikipedia.org
Bloggar | 17.9.2014 | 14:40 (breytt kl. 14:43) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

Hinn þjóðrækni & þingfasti dr. Gylforce hugðist gerast þaulsætinn í sófa sínum á miðvikudagskvöldið & horfa á imbakassann. Þar átti & að hefjast stefnuræða forsætisráðherrans & umræður á eptir. Spennandi. Nema hvað.
Dr.-inn skellti poppi í maskínuna & klaka í Maxið; nú skyldi gaumur gefinn með ráðamönnum þjóðarinnar & það af áhuga & áfergju!
Hinsvegar fékk doksi kallinn sig alveg fullsaddan af þrugli þingheims fljótlega & uppgötvaði sér til mikillar hamingju að stutt væri í að leið 35 myndi koma askvaðandi framhjá Stútulautinni. Málið dautt!
Dr.-inn gafst upp á hinu háa Alþingi & hélt á vit vagna. Hinn sænskættaði 302 var að þessu sinni á leið 35 & fékk doksi nánast sérferð með honum að Hjallahverfi okkar Kópvæginga. Hvar voruð þið mínir virðulegu kópvægsku vagnverjar??? Allir að fylgjast með Simma Dé & Bjarna Bé??? Tæplega.
Í Mjódd Breiðhyltinganna tyllti dr. Gylforce sér tignar- & tígulega í 134 Citelisvagninn sem ók leið 4 þetta annars ágæta miðvikudagskvöld. Margir vilja kalla dag þennan "vippudag" hvar maður nefninlega "vippar" sér úr fyrri hluta vikunnar yfir í þann síðari. Hvað um það.
Vagnstýran á Citelisvagni númer 134 - sem optast er á leið 2 - keyrði vagninn þýðlega um lendur kópvægskra Smiðja, Túna, Brekkna. Að lúkningu áði vagninn í Hamraborgina háu & tók þar góða tímajöfnun.
Úr miðbæ Kópavogs hélt hinn geðþekki dr. Gylforce í þekktar stærðir. Amen.
Síþruglandi Simmi Dé
svo doksi hélt á leið.
Ekki skárri Bjarni Bé
bullandi silfurskeið!
Mynd: citybus.piwigo.com/
Bloggar | 15.9.2014 | 12:24 (breytt kl. 13:41) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

Dr.-inn beið öngvra boða & brunaði með 145 Crossway vagninum á leið 4 frá Efstahjalla & alla leið um Hóla & Sel þeirra Breiðhyltinga. Gylforce-inn linnti eigi látum fyrr en hinn ársgamli meginlandsvagn hapði áð á nýjan leik við Mjódd þeirra Breiðhyltinga.
Dr. Gylforce virtist vera orðinn eilífur augnakarl í hinum sænskættaða 301 vagni á leið 35 en Týsdaginn góða bauð Vesturbæjarverktakinn upp á 302 Volvoinn að þessu sinni sem færði doksa kallinn fagurlega í hið kópvægska Hjallahverfi.

Doksi orðinn lítt abbó
út í stóra Breiðholt.
Unaðsverkið hans Erró
er orðið þeirra stolt.
Myndir: ruv.is & citybus.piwigo.com/
Bloggar | 11.9.2014 | 16:45 (breytt kl. 17:27) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Sept. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.9.): 1
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 124130
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 21
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar