
Það bárust döpur tíðindi nú síðdegis hvar tveir eðal sænskættaðir 3ja hásinga Volvo-vagnar nudduðust saman rétt áður en þeir ætluðu að beygja inn á Gömlu-Hringbrautina.
Betur fór en á horpðist í fyrstu; öngvin slys, hvorki á vagnstjórum né vagnverjum. Rúður brotnuðu í báðum vögnunum & þurfa þeir efalítið á hvíld að halda frá vígvöllum veganna í einhverja daga.
Vonandi koma þeir sem fyrst aptur enda eru 3ja hásingavagnar byggðasamlagsins - sem eru sjö talsins - mjög mikilvægir á leiðum 1 & 6 á annatíma.
Myndir: DV ehf / Þormar V Gunnarsson
Bloggar | 13.2.2014 | 21:53 (breytt kl. 22:01) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

Vagninn leysir hinn sænskættaða 307 vagn af hólmi & fær sama númer. Búið er að gera hann fagurgulan & öngvu líkara en að hann sé spánnýr & spennandi!
Því miður hefir doksi kallinn ekki hitt á hann ennþá en hlakkar ógurliga til þegar það & gerist. Hann hefir aukinheldur heyrt nokkra Hörðuvellinga láta mjög vel af vagni þessum & er því óbærilegt til þess að huxa að dr.-inn steinliggi heima með pest meðan þessi djásn vokir um vígvelli veganna. Maður lifandi.
vokir um Kór & Þing.
Mynd: Karl Emilsson
Bloggar | 13.2.2014 | 13:35 (breytt kl. 13:42) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Dr. Gylforce átti í miklu & góðu sambandi við hinn sænskættaða 110 Omnilink vagn er ók leið 1 af miklum myndarskap þetta annars ágæta laugardagskvöld.
Þegar dr.-inn hapði lokið sér af við að kneyfa ölið af unun & áfergju hófust mikil & tíð blíðubrögð við vagnana á vígvöllum veganna. Doksi kallinn settist opt í leið 1, leið 4, leið 35 aukinheldur sem leið 28 kom við sögu.
Í sænskættuðu sæti
sat dr.-inn hinn mæti.
Eptir svall, sukk & læti
hópst strætisvagnablæti.
Dr.-inn hefir eigi lengur tölu á vögnum sínum enda var hertoginn af Stútulaut orðinn slompaður vel & fagnaði ógurliga hvar hann fangaði að lúkningu leið 35 & hélt rakleitt með henni í fegurstu laut jarðarinnar, Stútulautina.
Bloggar | 11.2.2014 | 20:17 (breytt 12.2.2014 kl. 19:19) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

Vagnstjórinn gat varla beðið við Salalaug & rauk af stað aðeins of fljótt en vonandi kom það ekki að sök fyrir einhverja vagnverja. Hvað um það.
Hinn guli meginlands 130 Citelisvagn leið niður brekkuna að Smáralindinni á örskotsstundu & var kominn að Hamraborg okkar Kópvæginga á góðum tíma.
Doksi kallinn hefir & hoggið eptir því undanfarið að byggðasamlagið er hætt að merkja vachtir vagnanna fremst í vögnunum. Er það miður fyrir oss rannsakendur en kom eigi að sök að þessu sinni hvar 130 Citelis tekur A-vachtina á leið 2. Nema hvað.
Dr.-inn sýslaði eitt & annað við Hamraborg okkar Kópvæginga; vagnarnir komu einn af öðrum unz allir sjö vagnarnir voru komnir í höfn. Gylforce-inn hélt svo að lúkningu inn í sænskættaðan vagn á leið 28 & brunaði með honum upp að þeim hörðustu.
Lifið veil!
Mynd:http://citybus.piwigo.com/picture?/7174/category/47-reykjavik_2012
Lífstíll | 6.2.2014 | 12:02 (breytt kl. 12:06) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

Ó já, mínir virðulegu vagnverjar. Hinn heilaga þrennd, - leið 28 - leið 4 - leið 35, skal & tekin & vera vel ekin.
Eptir skólaskvaldrið
skal í vagna haldið.
Þrenndin títt & tekin
trauðla er hér spekin!
Bloggar | 3.2.2014 | 14:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hinn frækni & freknótti dr. Gylforce fagnaði mjög er hann frétti að nýr vagn væri á leið á vígvelli veganna frá kópvægska verktakanum Kynnisferðum.
Þeir munu kynna til sögunnar eðal VDL Citea vagn en vér vagnverjar höfum eigi séð þá í akstri fyrir byggðasamlagið svo doksi kallinn viti til.
Að öllum likindum mun VDL vagninn aka á leið 28 en hann leysir af hólmi hinn "eldhressa" sænskættaða 307 Volvovagn sem kom bókstaflega brunandi upp á þá hörðustu á síðasta ári & er nú gjörónýtur.
Hlakka til að heyra skell
í hurðunum á þessum.
Á vígvöllunum Vaff-Dé-ELL
við hann nú öll blessum!
Mynd: Karl Emilsson
Bloggar | 30.1.2014 | 21:29 (breytt kl. 21:31) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

Dr.-inn hefir þrásetið í leið 35 hvar þar hefir ekið hinn sænskættaði 302 Volvovagn þeirra Kynnisferða. Hinir engilsaxnesku 304 & 305 hafa hvíldina fengið undanfarna daga en verða örugglega komnir á vígvöllinn áður en langt um líður.
Í fréttum á dögunum kom fram að enn fjölgar okkur vagnverjum. Það er vitaskuld gleðiefni mikið & dylst öngvum sem í vögnunum situr; mun fleiri eru á ferli nú en t.d. fyrir um tíu árum síðan. Man doksi kallinn vel eptir æði mörgum ferðum hvar hann var eini vagnverjinn í langan tíma. Hvað um það.
Þeysandi um þéttbýlið
með þýðum vagnverjum.
Bíðandi við biðskýlið:
Brátt á vagn við herjum.
Svá var það að einum vagni var ei til setunnar boðið í Mjódd þeirra Breiðhyltinga. Sá fýsti ei í tímajöfnun & rauk af stað án vagnstjóra & -verja.
Sjá meira hér - http://www.mbl.is/frettir/innlent/2014/01/28/mannlaus_straeto_rann_af_stad/
Dr.-inn veit nú eigi hverjum lá svona mikið á að komast aptur á vígvellina en gott var að öngvin skyldi hafa slasast alvarlega í þessum hildarleik.
Bloggar | 29.1.2014 | 10:21 (breytt 30.1.2014 kl. 21:40) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)

Allt var þetta samkvæmt skruddunni góðu & gafst doksa kallinum tóm til að stunda hugarrok & þankahríð í vögnum þessum. Dr.-inn hefir verið einstaklega lunkinn við að hreppa 140 Crossway vagninn á leið 4 & sat með honum frá Mjódd að Hamraborginni háu & fögru þennan annars ágæta mánudag.
Urmull vagnverja var um borð í meginlandsvagninum sem leið þýðlega um gulu & gráu götu Smiðjuhverfisins & voru aksturseiginleikar vagnsins óviðjafnanlegir á Nýbýla-, Álfhóls- & Digranesveginum unz hann staðnæmdist við Hamraborgina.
Á kópvægskri grundu skeiðaði dr.-inn inn í hinn engilsaxneska á leið 35 & hélt rakleitt í lautina fögru.
Gylforce er skrýtinn og sköllóttur karl,
Bloggar | 15.1.2014 | 12:29 (breytt kl. 21:58) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)

Dr. Gylforce bugtaði sig & beygði fyrir Crossway meginlandsvagninum á leið 4 í Mjódd þeirra Breiðhyltinga í síðustu viku & neitaði með öllu að fara út þegar vagninn var kominn yfir á kópvægskri grundu. Doksi kallinn hélt rakleitt með vagninum alla leið að endastöð við Hlemmtorg & fór unaðshrollur um hann á torginu er hann glápti & gíndi yfir vögnunum.
Eptir eptirgrennslan & ítarlega talningu á vögnum & vagnverjum sté hinn stolti dr. inn í 189 vagninn á leið 1 & hélt upp að Hamraborg okkar Kópvæginga. Þar lék hann kunnuglegt stef & skáskaut sér í ferð með hinum engilsaxneska MAN vagni á leið 35. Doksi kallinn ýtti þéttingsfast - en þó fimlega - á stanzrofann er sá breski nálgaðist fegurstu laut jarðarinnar, Stútulautina.
Mynd: http://citybus.piwigo.com
Bloggar | 13.1.2014 | 09:20 (breytt kl. 09:22) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ekki hefir það gert ferðir dr.´s verri hér í Voginum með MAN vögnunum að frú Gylforce hefir ávallt verið með í för. Ekki amalegt maður lifande ...
Að lúkningu er ekki úr vegi að skella inn mynd af fyrsta liðvagni sem kom hingað upp á skerið. Hann var til reynslu & hvarf svo aptur á braut eptir nokkrar ferðir. Doksi kallinn man nú ekki hvaðan myndin er & biðst velvirðingar á því.
En fallegur er hann þessi þýskættaði fyrsti liðvagn. Á því leikur & öngvin vafi.

Bloggar | 4.1.2014 | 22:57 (breytt kl. 23:00) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Sept. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.9.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 18
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 18
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar