Stórtíð-yndi ...

straetobill 12772... dr.-inn heldur í leið 57 ásamt unga vagnverjanum á morgun & liggur leiðin norður til Akureyrar. Maður lifandi!!!


Veip er reip ...

News-Article50Hinn hjólliðugi & hugmóði dr. Gylforce hélt á vit vagna í gærkveldi, hvar hann þurfti að ganga eigin erinda. Nema hvað.

downloadDr. Gylforce leit inn í leiðir 3, 4 & 12 að þessu sinni enda allar í námunda við Stútulautarselið hans.

Eptir farsælar ferðir með leiðum 12 & 4 að Hlemmtorgi okkar Reykvíkinga hugði doksi kallinn á þristinn tilbaka heim til sín.

Í einu strætóskýlanna við Hlemminn stóð ungur maður í reykskýi. Þegar betur var að gáð reyndist hann vera vagnstjóri enda í úlpu merktu lógói frá Strætó. 

download (1)Reykingar eru ekki heimilaðar í skýlunum & hlýtur hið sama að eiga við rafrettuna. Til þess að toppa ruglið endanlega reyndist maðurinn ungi vera vagnstjórinn á leið 3 sem doksi tók!!!

Þvílíkur loðhattur & silakeppur að vera að svæla reyknum að sér inn í skýlinu - skamm skamm!

Gylforce-inn í kvöld einn greip
gæfulausan við skýlið.
Vesenaðist með sitt veip
vagnstjórasílið!


Ölinu úthýst ..

112Hinn dagfarsprúði & drýgindalegi dr. Gylforce dreif sig á dögunum á vit vagna eptir mikilfenglegar mínútur í mennta- & menningarsetrinu við Fannborg, hvar hann dvaldi aðallega í leiðum 2 & 3. Nema hvað.

Dr.-inn var heppinn & fékk hinn 16 ára gamla sænskættaða Scania Omnilink á leið 2 frá Hamraborginni. Doksa kallinum telst svo til að vagn þessi sé einn sá elsti í flotanum, ef ekki sá elsti. Hvað um það.

out-in-brum-the-drinks-bus-in-the-sunÞegar skyggja tók var röðin aptur komin að hinni annarri leið. Leiðin sú er heldur í styttri kantinum; fer frá Hlemmi eystur um Suðurlandsbraut, um Grensás, Borgarspítala & Kringlu, Hamraborg, Smáralind & tímajafnar sig svo við Versali.

busVið hina sílöngu Suðurlandsbraut gengu góðglaðir vagnverjar um borð í tvistinn. Hér voru efalítið ferðamenn á ferð en nokkur hótel & gistiheimili er að finna í kringum Laugardalinn. Höfðu þeir ölföng meðferðis en voru vitaskuld stoppaðir af með það áður en þeir komu inn í vagninn. 

Þeir fengu að svolgra miðinum niður í snarhasti & hoppa svo um borð. Vel gert vagnstjóri!

Dr.-inn kvaddi tvist við Grensás & gekk í hægðum sínum að Skeifunni, hvar hann henti sér inn í leið 3 áleiðis upp í Breiðholtið.

"Blessaðir" sagði bílstjórinn
& bauð þeim sæti.
Ekki fara inn með bjórinn
annars verða læti.


Ásgarður & auka ...

006Í baki mínu er ávallt beinn
bísperrtur að híma.
Í Ásgarði var alltof seinn
á annatíma.

Hinn hnarreisti & hnakkakerti dr. Gylforce hefir óvænt hangið í vögnunum undanfarna daga, hvar hann hefir hitt fyrir urmul vagna & viðfellda vagnverja. Nema hvað.

22471903_10155163429448348_1933561560_oEinhverju sinni háttaði svo til að hið gamla hró doktors var á flakki & flækingi við Ásgarð þeirra Garðbæinga. Doksi kallinn ákvað að hóa í leið 24 & huga að hvurnig vagninum reiðir af að komast upp í Mjódd á réttum tíma.
22473396_10155163429443348_934312076_oÍ stuttu máli kom vagninn 5 mínútum of seint í Ásgarð & fannst dr.-num vagnstjórinn gera lítið til þess að hraða för vagnsins. Leið 24 kom síðan 7 mínútum á eftir áætlun í Mjóddina. Þar hinkraði vagninn um stund sem var enn skrýtnara því allar aðrar leiðir voru löngu farnar! Hvað um það.

Í blæðandi morgunsárinu hoppaði dr. Gylforce í 3ja hásinga Volvovagn, sem er aukavagn á leið 3, við Stútulautarselið sitt. 

2017682Eins & dr.-inn hefir greint hér frá er alltaf jafn ankannarlegt að láta aukvagn á leið 3 aka eins & leið 4 um Breiðholtið. Frá Mjódd "breytist" hann í leið 3 & brunar í bæinn.

Öngvu að síður var unaðslegt að komast í einn sænskættaðan í morgun. Maður lifandi! 


Í nýja vagna komast vil ...

22449369_10155160311908348_780133403_oHinn kjörgengi & kumpánlegi dr. Gylforce var í þungum þönkum í gær & aldrei þess vant eigi á leið í vagna.

Doksi kallinn var nokk hugsi yfir nýja stjórnmálaflokknum, Miðflokknum. Nafnið er heldur sérstakt en er þá ekki málið fyrir annan flokk - sem gjarnan kallar sig kjölfestu í íslenskum stjórnmálum - að kalla sig Miðfótinn???

downloadÞeir virðast allavega hafa mikinn áhuga á honum & eiga í erfiðleikum með að halda honum innanklæða. Hvað um það.

22450470 10155160312058348 570509626 oDr. Gylforce var einsamall kúreki á heimleið í gærkvöldi, hvar hann sá glænýjan & glæstan Iveco Crossway vagn á leið 4!!! 

Loksins, loksins, nýir vagnar hjá byggðasamlaginu :)

Dr.-inn tók sér þrásetu og langdvöl í þessum nýja vagni sem hefir fengið númerið 125. Forveri hans brann nú við Grensás - ósælla minninga - & vonandi verða örlög þessa yndisvagns betri.

Í nýja vagna komast vil

& vera með þeim memm.
Í ferðum þeirra allt ég skil
þó ekki flokkinn M.


Vagninn á völlinn ...

22291576_1413341665402092_3215172409960912377_oVonandi fara sem flestir með vagninum í Laugardalinn í kvöld. 

Margar leiðir eru í boði til þess að nálgast dalinn fagra; t.d. númer 2, 5, 14, 15, 17.

Áfram Ísland!




Með vagninum á völlinn
vil ég fá að sjá.
svo örkum við öll inn
í landið Rússíá.







Mynd: FB-síða Strætó


Hollendingurinn floppandi ...

2--VDL-Citeas-and-Futuras-for-KynnisferdirHinn pólitíski & pungsveitti dr. Gylforce paufaði sér á vit vagna frjádaginn góða, hvar hann hitti einvörðungu fyrir Hollendinginn að þessu sinni. & ekki voru þeir allir fljúgandi - maður lifandi!

Dr. Gylforce stakk sér inn í hinn hollenska VDL-vagn á leið 17 frá Mjódd okkar Breiðhyltinga þegar færi gafst til. Doksa kallinn langaði að kanna hring hans um Breiðholtið, hvar hann reynist opt knappur timinn til þess að aka um Vestur- & Austurberg & koma svá aptur í Mjóddina. Nema hvað.

Hin seytjánda leið er á ábyrgð Kynnisferða & yfirleitt ekin af tveimur hollenskum VDL-vögnum. Að þessu sinni hjó gjörhygli Gylforce-ins eptir því að upplýsingataflan í vagninum virkaði ekki.

22119600 10155128902743348 1889476187 oHin íðilfagrarödd Herdísar grýlu heyrðist ekki nema endrum & sinnum & sagði bara eitt: Mjódd - tenging við aðrar leiðir. Skipti þá öngvu að vagninn var lengst upp í efra-Breiðholti aukinheldur sem á skiltinu stóð ævinlega bara "Mjódd"!!!

Cover-Citea-The-Urban-NetworkerÞetta var döpur lífsreynsla en öngvu að síður hélt dr.-inn með vagni þessum alla leið að Hlemmtorgi okkar Reykvíkinga. Þar tók við annar Hollendingur, að þessu sinni á leið 12 sem var öllu betri. Góðu heilli.

Úr þrasi mínu & þrugli
þaut ég í Hollending,
sem var með rödd í rugli
& raunalegan hring.


Lokað við lækinn ...

IMG_2062Það var aukinheldur ánægjulegt þegar dr. Gylforce arkaði um Fjörðinn fagra, fyrr í vikunni, að upplifa aðra leið með hinni 21. leið. Nema hvað.

Venjulega ekur leið 21 niður Lækjargötu áleiðis að Firði, hvar hún hefir sína tímajöfnun. Vegna framkvæmda & endurnýjunar á Lækjargötunni beygir vagninn hinsvegar upp Hringbraut & keyrir um Grænukinn, Flensborgarskóla & Suðurbæjarlaug. Þetta er jú sami rúntur & leið leiðanna, leið 1, tekur i Firðinum.

Það var aðeins eitt sem truflaði gjörhygli Gylforce-ins í ferð þessari. Leið 21 var heldur sein að koma að Firði því nýi rúnturinn lengir leiðina. 

Leid_21Dr.-inn átti erfitt með að hóa í næstu leið því þær fóru nánast á sama tímapunkti & doksi kallinn sté úr vagninum. Þarna verða vagnstjórar að vera á tánum & bíða eptir öllum leiðunum. Maður lifandi!



Leiðirnar við lækinn
á leið nýrri nú.
Ferðin varð framsækin
ég fór hana edrú.


Gaflari gengur af göflunum ...

wtf-rusty-surfboards-logoHinn margrómaði & margsaga dr. Gylforce mjakaði sér í loksins í vini vora, vagnana, í gærkvöldi.

Dr.-inn hapði & hug á því að heilsa upp á Hafnfirðinga, hvar hann hóaði því í hinn huggulega Iveco Crossway vagn frá Kynnisferðum á leið 21 við Mjóddina. Nema hvað.

Ferðin með leið 21 var hin yndislegasta unz hún kom að Kauptúninu. Þá hjó doksi kallinn eptir því að vagninn stanzaði við hverja stoppistöð sem er ekki óeðlilegt því einhver vagnverji hapði jú þrýst þéttingsfast - en þó fimlega - á stanzrofann.

Hinsvegar fór aldrei neinn út. Gerðist þetta trekk í trekk. Aukinheldur vorum vér vagnverjarnir bara þrír í vagninum.

Eptir nokkur stopp var greinilega farið að fjúka í vagnstjórann. Hann stöðvaði vagninn, vatt sér að ungmenni með stóran klút & las yfir hausamótunum á honum.

Eptir það rann leið 21 þýðlega um þjóðlendur Gaflara & áði við Fjörðinn fagra.

Vel gert vagnstjóri!

Á stanzrofann stöðugt þrýsti
með stóran ljótan klút.
Vagnstjóranum fljótt fýsti
að fleygja honum út.


Kyrrt um hríð ...

Öngvar ferðir, ömurð ein
endalaust ég ragna. 
Sitjandi með kvart & kvein
kem mér ei til vagna.

Enda þótt dr. Gylforce sé lendur maður, vellauðugur af vagnverja að vera; hálfbergrisi að afli, vexti og kynferði; forkunnarfagur, fríður sýnum & hinn mesti atgervismaður, hefir hann ekki haldið á vit vagna undanfarið. 

Verður þá kyrrt um hríð.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband