Undanþága fyrir almenningssamgöngur ...

60715384_588313651679346_6820313327659384832_nVið undanþágu þiggjum nú
& þjótum með vagni.
Aukin tíðni upp úr þrjú
með unaðsrafmagni.

Undanþága

Gleðifregnir berast nú frá ráðuneyti heilbrigðismála hvar byggðasamlagið hefir fengið undanþágu frá fjarlægðartakmörkunum - hinni svokölluðu tveggja metra reglu - frá & með 4. maí næstkomandi.

ahamraborgEnn eru þó fjöldatakmarkanir í vögnum vorum en miðast nú við þrjátíu vagnverja. Aukinheldur verður fremsta hurðin lokuð enn um sinn & vagnverjar beðnir um að sýna kort sín með sama hætti & áður.

131Aukin tíðni verður á leið leiðanna, leið 1, á annatíma bæði morgna & síðdegis. Verður leið þessi þá á 15 mínútna tíðni sem er gleðilegt þótt venjulega komi hún á tíu mínútna fresti. Hvað um það.

Leik- & grunnskólakort verða ekki í gildi enda erfitt að koma stórum hópum í vagnana þegar einungis 30 mega vera þar samtímis. En ekki hvað???

Vonandi taka vagnverjar við sér enda virðist faraldurinn í nokkurri rénun sem er einkar ánægjulegt. Kannski verður hægt að koma leiðakerfinu í eðlilegt horf í sumar - hvur veit???




Brunað í blíðu ...

Blaðrið á95335873_2548181658763070_6217562934508257280_n bloggsíðunni
byrjar nú í hlýju.
Brunaði í blíðunni
í bæinn að nýju.

Dr. Gylforce hefir gert sér glaða daga í glaðasólskininu undanfarið, hvar heldur fátt hefir verið af vagnverjum. Illu heilli.

Þó var ein undantekning á því. Dr.-inn mjakaði sér í miðbæinn með leið 3 hvar gott bil var milli verja eins og vera ber. Þá var dr.-num hugsað til þess að gott hepði verið líka ef Vera væri ber. Hvað um það.

31460773 10155643512463348 5792576195446964224 ndownloadHeimleiðin var ekki eins hugguleg hvar annatími var & því fullmargir verjar á ferð miðað við tveggja metra millibilsregluna:

Tveggja metra millibil
maður fær ei spörk.
Í vagninum ég sko vil
virða þessi mörk.

Það verður aukinheldur fróðlegt að sjá hvernig gengur að viðhalda henni þessa dagana en Strætó bs. hefir kallað út aukavagna, aðallega á morgnana, til þess að reyna að virða fjarlægðarmörkin.

Yfir&út!


Fyrsti leggur Borgarlínu ...

línanLínunnar leggur fyrsti
lostfagur að sjá.
Ég algjörlega mig missti
mig langar henn´að ná.

Línan lostfagra

270m bru mynd 12 01032018 utg.1ab 1024x681Fyrsti hluti Borgarlínunnar var kynntur formlega í gær. Um er að ræða 13 kílómetra leið frá Hamraborg að Ártúnsholti (og öfugt) með 25 stoppistöðvum, þar af 5 svokölluðum kjarnastöðvum.

1132412Fimm kjarnastöðvar verða í þessum fyrsta legg; Hamraborg, BSÍ, Lækjartorg, Hlemmur & Vogabyggð. Þar verður auðvelt að skipta úr línunni yfir í hefðbundna vagna aukinheldur sem stutt á að vera í verslanir og þjónustu. Nema hvað.

94120853 1377351699120816 3125911806875271168 oÞað er vel til fundið að fara með línuna um fjölmennt verslunar- & þjónustusvæði eins og Suðurlandsbraut, Múla & Skeifuna í stað þess að láta hana líða t.d. um Miklubrautina áleiðis upp í Ártún. Sú leið kemur efalítið síðar.

60718560 10156634762223655 3855669897707126784 oEf vel á takast með þetta fyrsta spor verður að hafa þétta tíðni að mati dr.´s. Í sumum skýrslum um Borgarlínuna er að finna hugmyndir um að hafa hana á tveggja mínútna fresti á ákveðnum svæðum á annatíma.

Það er vel & verður vonandi að veruleika. Annars staðar sér maður tíma eins 5-7 mínútur á milli vagna á álagstímum.

Hvað sem því líður er fátt því til fyrirstöðu að leið þessi verði komin á fulla ferð einhvern tíma á árinu 2023.

Sá er hér párar getur vart beðið!!!


Ekki feitan gölt að flá ...

94210717_1147748432228846_3559427363143942144_nEkki feitan gölt að flá
fyrir augun að berja.
Doktorinn sat & sá
sárafáa vagnverja.

Dr. Gylforce var loksins með í för meðal vina vorra - vagnanna - hvar hann hitti fyrir fáa vagnverja á leiðum sínum. Nema hvað.

Framkvæmdastjóri byggðasamlagsins getur ekki verið upplitsdjarfur þessi dægrin frekar en margir aðrir stjórnendur stofnana & fyrirtækja. Strætó bs. sér fram á allt að 600 milljóna króna minni tekjur á þessu ári & skerta þjónustu langt fram á sumar. Illu heilli.

Auki17nheldur er stefnt að því að leiðakerfið verði komið í eðlilegt horf um miðjan ágústmánuð en þangað til verðum vér að þreyja þorrann & sætta oss við 30 mínútna tíðnina.

Dr. Gylforce fékk t.a.m. sérferð með leið 17 frá Hlemmi að Mjódd okkar Breiðhyltinga rétt fyrir kvöldmatarleytið.

Í ljósi þessara aðstæðna hefir stjórn Strætós tekið þá ákvörðun að fresta kaupum á nýjum vögnum & er doktorinn ákaflega sorgmæddur yfir því; niðurbrotinn eiginlega en vonast eptir því að nýir vagnar komi fljótlega á næsta ári.

Amen.



Mun betri stoppistöðvar ...

114121235151625_653521194986042_7623221995806654464_nKjarnastöðvar koma inn
kætist ég nú pínu.
Fiðringinn nú þegar finn
fyrir Borgarlínu. 

Í Borgarlínunni verður stoppistöðvum skipt í tvennt; kjarnastöðvar & aðrar stöðvar.

878-927819a80eEin kjarnastöð verður í fyrsta áfanganum í Voginum fagra, staðsett í Hamraborginni. Aðstaða & aðgengi þar verður mun betra fyrir oss vagnverja en annars staðar aukinheldur sem við kjarnastöð eiga bæði strætisvagnar & Borgarlínan að stoppa & gott pláss á að vera fyrir reiðhjól.

Auk þess er stefnt að því að þétta byggð í námunda við stöðvarnar, hafa verslanir & þjónustu innan seilingar & jafnvel bílastæðahús.

Í því sambandi er vert að minnast áætlana Kópavogsbæjar um mikið byggingamagn í hjarta Kópavogs. Töluverð andstaða er um þær fyrirætlanir & verður fróðlegt að sjá hvernig því máli framvindur.

Meira um það síðar.

Gleðilegt sumar vagnverjar!


Borgarlínan breiðir senn úr sér ...

94120853 1377351699120816 3125911806875271168 oBorgarlínan breiðist út
breytast okkar ferðir.
Munu stúrir setj´upp stút
stöðumælaverðir???

Þrátt fyrir faraldur, farsótt & fár halda samgönguverkfræðingar Borgarlínunnar ótrauðir áfram verki sínu, hvar þeir gáfu út á dögunum athyglisverða skýrslu.

CaptureNema hvað.

Verk- og matslýsing Borgarlínu

Fyrstu-tveir-áfangar-Borgarl-1024x72274359690_1224239377765383_3740079228121513984_nMargt er allra athyglivert í skýrslu þessari. Ein mesta áskorun sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í skipulagsmálum er efalítið að reyna að breyta ferðavenjum innan höfuðborgarsvæðisins, stuðla að orkuskiptum í samgöngum og draga úr kolefnisspori samgangna. 

Gera þarf almenningssamgöngur eftirsóknarverðar með öflugu þjónustustigi (með þéttri tíðni), sérrými í gatnakerfinu & góða flutningsgetu með umhverfisvænum vögnum. Allt þetta hefir Borgarlínan.

Þá er aukinheldur fróðlegt að sjá að fyrsti áfangi línunnar, þ.e. Hamraborg-Ártún leiðin í gegnum Kársnes, BSÍ, Lækjartorg, Hlemm, Suðurlandsbraut & Voga á að vera tilbúin árið 2023.

Á næsta ári eiga því breytingar varðandi aðalskipulag Reykjavíkur & Kópavogs að vera lokið & þá ekkert því til fyrirstöðu að hefja útboð og framkvæmdir.

Takk fyrir túkall!


Fjölgun ferða ...

44474698_249924592536365_6628654316200656896_nAukaferðum við fögnum
fyrir landsbyggð.
Verjar mínir í vögnum:
Vegferðin er tryggð.

Fleiri ferðir hjá 57

2Eins & vagnverjar ugglaust vita aka bæði vagnar á höfuðborgarsvæðinu & á landsbyggðinni samkvæmt laugardagsáætlun virka daga vegna kórónufaraldursins. Því miður.

Þó hefir verið ákveðið að bæta tveimur ferðum við leið 57 sem er fagnaðarefni. Er þar um að ræða ferðir frá Akranesi & Borgarnesi snemmindis á leið í höfuðborgina.

Akstur þessi hefst í fyrramálið & vonandi taka vagnverjar vel í þessar aukaferðir.

Amen.

 


Strætóbílstjórar stráfelldir ...

171a73e0b9951750c9522b26f13b4d42Katastrófa er Covidið
kalda að mér sló.
Grímur fyrir andlitið
gera ekki nóg.

20 vagnstjórar látnir

Það berast váleg tíðindi af vagnstjórum í Lundúnum hvar 20 þeirra hafa farið yfir móðuna miklu í faraldrinum. Illu heilli. 

Loksins verður brugðið á það ráð í höfuðborg Bretaveldis að láta vagnverja ganga inn & út að aptan líkt & gert er hér á landi á.

Dr. Gylforce hapði hug á að sækja þessa rauðu vini sína heim í sumar en mun efalítið fresta þeirra för fram á næsta ár.

Yfir&út!


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband