Laugardagstíðni til langframa ...???

56917848_750595128674594_8861325221722849280_nLaugardags til langstíma?
Af leiðum er þó nóg.
Margir nú heim´að híma
í hægindum samt þó.

Færri ferðir

737-f78642e8c616491599_10154452593338348_1245920365_oEins & búast mátti við boðar byggðasamlagið færri ferðir vegna veirunnar. Frá & með þriðjudeginum 31. mars munu vagnarnir - vinir vorir - aka líkt & á laugardegi með örlítilli breytingu á morgnana & á örfáum leiðum. Nema hvað.

Dr. Gylforce hefir skilning á þessu í ljósi aðstæðna en vonar að vagnverjar lendi ekki í vanda vegna þessa. Sem dæmi mun leið 16 hætta akstri sem og leiðir 8, 22, 33, 34.

Aukinheldur hefir dr.-inn sagt á þessum vettvangi að hann hyggst ekki nota vagnana meðan mesta fárið ríður yfir.

Yfir&út!


Mikil fækkun ...

959-65984872ddVina minna sakna sárt
en skynsemin nú ræður.
Komast vil fljótt, það er klárt
en covidinn er skæður.

Strætó bs. sér fram á gríðarlegt tekjutap næstu vikurnar vegna veirunnar válegu líkt & önnur þjónustufyrirtæki landsins. Nema hvað.

90867976_2797048513681542_3726232378113261568_n

Ætla má að fækkun vagnverja sé um 50-60% nú þegar & líklega á sú tala bara eptir að hækka. Hvað um það.

Ekki er þó ætlunin að hætta akstri - góðu heilli. Kannski mun tíðnin minnka - því spáir doksi kallinn - en slíkt hefir þó ekki verið gefið opinberlega út. 

Fækkun farþega

Hvað um það. Nú um stundir er vagnstjórinn betur varinn með borða & spurning hvort gengið verður lengra með plasti eins & neðri myndir sýnir???


Hommaveikin & hinn hræðilegi sjúkdómur ...

sams1-1-1024x713Starfsmenn þrifu í tíu stundir
strætisvagna tvo.
Fram & tilbaka, yfir & undir
eyðni burtu þvo.

Sjúkdómsfaraldrar láta af & til á sér kræla & væri hægt að nefna þá nokkra á síðustu árum & áratugum.

imagesEinn skaut þó upp kollinum í upphafi níunda áratugar síðustu aldar; alnæmi.

67D45DFA-9E43-4593-B8C3-F59687E4F8E1Fáfræðin & fordómarnir voru miklir á þessum tíma & mátti sjá á prenti orðin "hommaveikin" & "kynvillingaplágan". Samt er þetta ekki nema fyrir um 35 árum síðan. Merkilegt nokk.

Slík var örvæntingin að tveir strætisvagnar voru settir í 10 tíma sóttkví vegna gruns um alnæmi & þorði enginn starfsmaður að stíga inn í vagnana eins & lesa má betur um hér á þessari slóð Hommaveiki & kynvillingaplága

Magnað!


Efsta mynd: dv.is


Vagnar í tvennt ...

47135007 1886459348090319 2297497982246846464 oTil bráðabirgða hefur
bætt verið starf
vagnstjórans sem grið gefur
- gerum það sem þarf.

Tvískiptur vagn

Strætó bs. reynir að halda hinum skæða vágesti í skefjum & boðar nú breytt skipulag i vinum vorum - vögnunum.

Sjálfur ætlar dr. Gylforce að gefa vögnunum frí meðan veiran lætur á sér kræla. Illu heilli. Spurning hvernig það fer með geðheilsu Gylforce-ins - maður lifandi!

Frá & með mánudeginum verða vagnarnir tvískiptir & borði settur hjá vagnstjóranum til þess að vernda hann betur. Aukinheldur verður komið fyrir bráðabirgðabauk inn í vagninum svo þeir geti greitt sem eru með farmiða eða staðgreiðslu.

Annars eru vagnverjar hvattir til að nota appið & árstíðarbundin kort.

Yfir&út!


Könnun um ferðavenjur vekur von ...

ferðavenjurUpp þokast aðeins prósentan
ömurð dags burt bolar.
Gerir doktorinn dátt spenntan
dropinn steininn holar.

Ein umfangsmesta könnun sem gerð hefir verið um ferðavenjur landsmanna leit dagsins ljós á dögunum. Það var samgönguráðuneytið og Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sem fengu Gallup til verksins.

1132412Úrtakið var tæplega 23 þúsund manns - hvorki fleiri né færri - & svarhlutfallið um 42% sem þykir nú bara dágott í svona stórri & viðamikilli könnun. Nema hvað.

74237647_1224974477691873_914946214368116736_nÁnægjulegustu tíðindin í könnuninni að mati dr. Gylforce er vafalítið að hlutfall almenningssamgangna í heildarferðum á höfuðborgarsvæðinu mjakast upp úr fjórum prósentustigum í heil fimm. Takk fyrir túkall! 

Þetta hlutfall hefir staðið í stað i heil 18 ár & því ber að fagna að talan þokist örlítið upp á við.

Enn er hlutfall einkabílsins (bílstjóri eða farþegi) á milli 70-80% þótt dregið hafi aðeins úr á höfuðborgarsvæðinu.

Hér gildir hið fornkveðna - dropinn holar steininn.

Þetta kemur, vagnverjum mun fjölga.

Amen.


Vörubíll straujaði vagn ...

1196511Illa leikinn vagninn var
vörubíll fór betur.
Þetta er meira ófremdar- 
ástandið í vetur.

Vagninn illa leikinn

Betur fór en á horfðist þegar vörubíll straujaði afturhlutann á einum vagni sem var á leið 11 á Nesveginum nú síðdegis. Nema hvað.

1196512Aðeins tveir vagnverjar voru um borð & góðu heilli voru þeir framarlega & hinumegin í vagninum þegar óhappið varð.

Ugglaust eru færri verjar um borð í vögnunum þessa dagana vegna ástandsins & kom það sér einstaklega vel að þessu sinni. 

Ef glyrnur Gylforce-ins svíkja hann ekki er hér um að ræða um 10 ára gamlan vagn frá verktakanum suður í Firði & því spurning hvort hann fari nokkuð aptur á vígvelli veganna eptir þetta hressilega hnjask???

 


Frítt suður með sjó ...


Frítt í vagna

Fríkeypis nú suður með sjó
sælir eru verjar.
Meðan veiran eitrar okkar hró
& á okkur herjar.

Bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ hafa - líkt & aðrir - brugðið á það ráð að loka framhurðum á vögnum sínum til þess að vernda vagnstjóra sína gegn veirunni.

Þeir hafa bætt um betur & ætla að hafa vagnana gjaldfrjálsa meðan á samkomubanninu stendur. 

Aukinheldur er mælst til þess að þeir sem geti noti vagnana utan annatíma geri það & dreifi þar með álaginu & mun þá vonandi ganga betur að hafa tveggja metra millibil milli vagnverja.

Yfir&út!


Dagar hinna harðlæstu framhurða ...

89586814 542258266411996 2765523411760316416 nFyrsti dagur hinna harðlæstu framhurða virðist hafa gengið vel ef marka má framkvæmdastjóra byggðasamlagsins. Hann var í settinu á daglegum blaðamannafundi yfirvalda í gær & vissi ekki af neinum vandkvæðum meðal vagnverja. Góðu heilli.

89750915_2707640305972215_3202601883919187968_nHinsvegar voru fáir á ferli - eðlilega svo sem - enda t.d. bæði framhalds- & háskólar lokaðir & nemendur komnir í fjarnám & nokkur fjöldi landsmanna situr heima í sóttkví. Nema hvað.

Framhurðin var harðlæst
hinar opnar dyrnar.
Verum róleg, ekki æst
í unaðsferðirnar.

Enn munu þó vagnverjar ganga inn í hina blágulu landsbyggðavagna að framan enda afar erfitt í framkvæmd að láta alla koma inn að aptan í þá. Hvað um það. 

Ráðstöfun þessi mun gilda meðan samkomubann ríkir í landinu. 

Vonandi gengur þetta allt vel hjá ykkur vagnverjar næstu daga.

Friður & ást!



Hönnunarkeppnin hafin ...

270m bru mynd 12 01032018 utg.1ab 1024x681Hönnunarkeppni hafin er
hlakka til að sjá
hver sigur úr býtum ber
& brúna reisa má.

Enda þótt dr. Gylforce ferðist illu heilli ekkert með vögnunum - vinum vorum - vegna veirunnar válegu þessa dagana hefir hann hugann vitaskuld við samgöngur almennings, nú sem endranær. En ekki hvað???

72954652_1224973924358595_2857662121095725056_nTil að mynda er hönnunarsamkeppni vegna brúarinnar yfir Fossvog í fullum gangi. Eins & hefir komið fram hér er um afar spennandi verkefni að ræða sem tengja mun Reykjavík og Kársnesið og allan Kópavog með mun betri hætti en áður.

brú-2Brúin verður um 270 metrar að lengd & verður hún fyrir gangandi vegfarendur, hjólandi & fyrirhugaða Borgarlínu. Sérstök matsnefnd á vegum Reykjavíkurborgar, Kópavogsbæjar og Vegagerðarinnar valdi sex hönnunarteymi til að taka þátt í samkeppninni en alls bárust umsóknir frá 17 hópum.

Niðurstöðu er síðan að vænta í maí & mun nefndin þá velja eina tillögu af þessum sex.

Það verður spennandi að sjá - maður lifandi!



Strætóstoppistöð tekur stakkaskiptum ...

20191203 hlemmur images 4 december presentation aerial 1Iðandi mannlíf & viðmót vænt
með vögnum & Borgarlínu.
Gróskumikið svæði, iðjagrænt
með götulífi fínu.

Nýtt deiliskipulag hefir verið samþykkt fyrir Hlemm & allt útlit fyrir að framkvæmdir komi til með hefjast í sumar. Maður lifandi!

hlemmur2Ljóst er að Hlemmtorgið mun gerbreytast. Bílaumferð verður verulega takmörkuð - ef einhver verður - & lögð áhersla á að almenningssamgöngur á borð við strætó og Borgarlínu fari greiðlega um svæðið.

69359358_741350379640654_2178613089925070848_nAukinheldur á torgið að iða af mannlífi, veitingastöðum & afþreyingu & möguleiki verður á að halda viðburði & hátíðar til handa börnunum. Það er vel til fundið.

Dagarnir hvar Hlemmur verður endastöð fyrir margar strætisvagnaleiðir hljóta að vera taldir. Nú er bara spurning hvert þeir eigi að fara því varla er BSÍ tilbúið að taka við svo mörgum leiðum. Svo þarf líka að hafa nýja leiðanetið í huga sem mun breyta leiðakerfinu mikið.

Það eru því miklir umbrotstímar framundan í ýmsum skilningi.

Amen.



Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband