Færsluflokkur: Bloggar

Risið upp við dogg ...

straeto_10Hinn fráleitt nánasarlegi & nýtni dr. Gylforce hefir notið vagna á höfuðborgarsvæðinu undanfarna daga hvar hann er loksins kominn heim í heiðardalinn. Nema hvað. 

Dr. Gylforce dró augað í pung á miðvikudagskvöldið & heilsaði nokkrum Crossway vögnum á leiðum 2,3, & 4 með virktum. Í dag á Strætó bs. 12 slíka vagna en fljótlega á næsta ári verða þeir orðnir 32 talsins. Þá eru þeir Fjarðarmenn með 20 slíka í gangi þannig að þá verða rúmlega 50 slíkir á vachtinni hverju sinni & hætt við að mínir sænskættuðu verði orðnir mikill minnihlutahópur. Hvað um það.

Doksi kallinn hjó aukinheldur eptir því að hinar kópvægsku Kynnisferðir eru orðnar ansi fátækar í vagnakosti. Í sumar þurfa þeir aðeins fjóra vagna á leiðum 28 & 35 en verða þó að fá lánsvagn endrum & sinnum frá verktaknum suður í Hafnarfirði. Verktakinn verður að hressa upp á flotann fyrir næsta vetur.

20120612031405-d32bbcf0Í kvöld tóku hinn ungi & aldni vagnverji sér far með leið 1 & 35. Þeir fengu sænskættaða Volvo & Scania Omnilink í ferðum sínum. Ljóður var þó á þegar í Hamraborg var komið. Feðgarnir tylltu sér tignarlega í hinn sænskættaða 301 vagn á leið 35 kl. 18:05 & gerðu svo ráð fyrir að vagninn léti úr vör tveimur mínútum síðar. En aldeilis ekki.

Vagnstýran stóð úti ásamt vagnstjóranum á leið 28 & smókuðu þau sig í gríð & erg. Rettan var kláruð & máttum vér vagnverjar bíða í heilar 5 mínútur áður en sá sænskættaði lagði af stað. Þetta er algjörlega óásættanlegt að mati doksa & leiðinlegt að vagnstjórar virði ekki tímatöflur. Það ætti eiginlega að tilkynna svona dónaskap til byggðasamlagsins.

Doksi fékk sér gott í gogg
gekk svo milli vagna.
Hleður nú í brjálað blogg
því bullið mun ei þagna.


Mynd: www.ruv.is

Aðdráttarafl Eyjafjarðar ...

CAM00916[1]
Hinn virti & vitri dr. Gylforce hefir farið hamförum meðal eyfirska vagna í dvöl sinni hér nyrðra undanfarið & átt hverja þrásetuna á fætur annarri. En ekki hvað???

Eyfirskir vagnstjórar & vagnverjar eru kurteist fólk upp til hópa & er hægt að komast ferða sinna með þremur leiðum innanbæjar. Til taks eru þrír vagnar hverju sinni & hefir það vakið gjörhygli dr.´s að öngvir sænskættaðir vagnar (Scania - Volvo) eru á eyfirskum vígvöllum veganna. 

Nyrðra eru þrír Mercedes Benz vagnar, einn mjög litið notaður, tveir meginlangds stuttir Heuliezvagnar & svá er hér Ikarusvagn. 

Dr.-inn hefir dvalið lengstum í leiðum 3 & 4 í dag & í gær & fengið fyrirtaks ferðir. Í boði hafa verið MB Citaro, Heuliez & Ikarusvagn. Leiðakerfið hér er uppbyggt á þann veg að hver leið ekur um sem flest hverfi bæjarins. Þannig fer t.a.m. leið 1 frá miðbæ að Glerártorgi & hring um hverfin þar, kemur svá aptur að miðbæ & fer svo næst um Drottningarbraut, upp með Skautahöll & um nýju hverfi Eyfirðinga. Nema hvað.

CAM00895Þrjár leiðir koma um Túnin hvar doksi dvelur þessa stundina. Allar leiðirnar eru á klukkutímatíðni & því hægt að taka vagninn á 20 mínútna fresti að meðaltali. Tíðnin hrynur svá niður á kvöldin & um helgar & er það eitthvað sem Norðlendingar ættu að huga að.

Aukinheldur vekur það furðu að öngvinn vagn gengur að flugvellinum & því erfitt að koma flugleiðina í Eyjafjörðinn & ætla svá með vagninum niður í miðbæ. Þessu þarf að kippa í liðinn. 

Að öðru leyti er unaðslegt að vera hér en þó er ekki lokið fyrir það skotið að doksi kallinn sé farinn að sakna þeirra appelsínugulu sunnan heiða.

Í strætónum ég staðar nem
stari, spyr & svara
veit þó eigi hvaðan ég kem
né hvert ég er að fara.

Gnægð & gnótt ...

CAM00914CAM00913CAM00915Hinn eilífi en fráleitt eymdarlegi dr. Gylforce er enn staddur í eyfirskum unaði hvar hann hefir komist í fleiri vagna & vitaskuld allt fríkeypis hér á Eyrinni. Nema hvað.

Annars virðast eyfirskar sveitir vera góðar & grösugar. Gnægð er skógar - á Frónbúar mælikvarða - & gróðursæld slík að um himneska paradís er að ræða.

Beit er hér allt frá fjöru inn til heiða. Fiskur bregst ekki norðan heiða & má sjá gnótt af honum í ósum, vötnum, sprænum & jafnvel við fjöruborðið.

Rekaviður, dúnþekja & æðavarp virðist hér óþrjótandi & rúsínan í pylsuendanum er vitaskuld að ókeypis er í vini vora - vagnana.

Hinn kópvægski doktor hefir haldið sig við leið 1 þrátt fyrir að hafa flutt upp í efri byggðir Eyjafjarðar. Doksi kallinn hefir & tekið eptir því í vagnarannsóknum sínum að hér er að finna tvo eðal MB Citaro vagna. Síðast er hann dvaldi meðal Eyfirðinga var hér aðeins einn slíkur. Hvað um það. 

Annar þeirra tók slaginn á hinni fyrstu leið & hinn er á leið 4. Ikarus & Heuliezvagnar bera svá ábyrgð á leið 3. Leið 2 er í sumarfríi. Eyfirskir vagnverjar fjölmenntu í vagninn & fór dr.-inn frá Túnunum alla leið að miðbænum.


Eyfirsk alsæla ...

CAM00876Hinn eyjaði & alsæli dr. Gylforce hefir fylgst grannt með eyfirskum vögnum undanfarna daga hvar henn hefir alið manninn norðan heiða. En ekki hvað???

Það hefir vakið gjörhygli doksa að hér virðast vera sömu vagnar & síðast er dr.-inn spígsporaði um eyfirsk engi fyrir rúmum fimm árum síðan. Fátt hefir breyst & sami MB Citaro, sami Ikarus og sömu Heuliezvagnar eru á vígvöllum veganna. Öngvin endurnýjun - maður lifandi.

Dr Gylforce hóf leik med leið 1 & fékk sér til fulltingis Mercedes Benz Citaro vagn. Hin fyrsta leið er à klukkutíma fresti í sumar & heilsaði Doksi hinum norðlenska vagnstjóra með virktum við miðbæ þeirra Eyfirðinga & þaut með vagninum innúr að Skautahöllinni, uppmeð nýju hverfunum við túnin, inneptir Mýrargötu, niður Kaupvangstrætið & inn með Þòrunnarstræti. Nema hvað.

Leið 2 er ekki í boði í sumar svá næst mun & dr. fylgjast grannt með þriðju leiðinni.

Eyfirskir á Eyrinni
uppgefnir að sjá.
út um allt, á ferðinni
& árla far'á stjá.


Sumarfrí úbí-dú ...

 Mínir virðulegu vagnverjar!P2143167
Dr.-inn hyggur á leikför um landið næstu daga & mun vitaskuld kynna sér vagna landsbyggðarinnar, einkum í höfuðstað Norðurlands. Fylgist með - fylgist með!

Straeto_feb07_2

Slen & slit ...

301Hinn tápmikli & taktfasti dr. Gylforce hefir tekið leið 35 reglulega í sumar hvar hann hefir iðullega fengið hinn sænsksættaða 301 vagn þeirra Kynnisferða.

Hinir funheitu en stuttu MAN vagnar, 304 & 305, virðast alveg heillum horfnir á vígvöllum veganna & er það bagalegt því ekki þarf í raun svona langan vagn á þessari leið eins hinn sænskættaði er. Vonandi festa þeir Kynnisferðarmenn við Kársnesið kaup á einum styttri vagn til að taka slaginn á hringleið vorri um Voginn næsta vetur. Hvað um það.

Hinn 301. vagn þeirra Kynnisferða var orðinn vel lúinn eptir hringsólið í sumar um Voginn enda gladdi það hró dr.´s mjög í vikunni er hann fékk 302 vagninn á leið 35 í stað hins fyrsta. Líklega er verið að lappa upp á hann fyrir næstu átök.


Hvimleitt klúður ...

89d650d04cbed2dcbd25cb67fa2cafe3Hinn fleðaði & flístrandi dr. Gylforce hélt fullur tilhlökkunar á vit vagna í gær en varð fyrir nokkrum vonbrigðum, aldrei þess vant. Doksi kallinn tók unga vagnverjann með í för & héldu þeir feðgar í sænskættaðan hringrúnt um Voginn venju samkvæmt með leið 35.

Frá Hamraborg okkar Kópvæginga stigu hinn ungi & aldni vagnverji inn í 189 Volvovagninn á leið 1 & brunuðu í bæinn. Urmull var af vagnverjum líkt & vera ber á leið leiðanna & gaman að fylgjast með því að vagninn hélt mjög vel áætlun. Nema hvað.

Dr.-inn sá hinn skínandi fagra 198 3ja hásingavagn á leið 1 & slóst með í för. Vagnstýran bauð góðan dag sem & doksi kallinn & sveif vagninn að Hlemmtorgi á mettíma. Hvað um það.

Hinn ungi & aldni vagnverji stigu út úr vagninum en langaði í aðra för með sama vagni. En ekki hvað??? Þeir & því biðu um hríð. Vagninn átti að leggja úr vör kl. 16:15 en vagnstjórinn kom mínútu of seint & lagði svo af stað ekki fyrr en kl. 16:17. Þar töpðuðust 2 mínútur sem geta skipt sköpum þegar vagnverjar hyggja á skiptingu milli vagna.

189Ferðin var vel fjölmenn af vagnverjum & reiðfákum sem þýddi að vagninn kom upp í Hamraborg kl. 16:40. Þar með höpðu hinn ungi & aldni vagnverji misst af leið 35 sem að þessu sinni beið ekki eptir vögnunum sem koma úr miðbænum. Stundum virðist hann gera það & stundum ekki.  
Það er mjög hvimleitt þegar hverfisvagnarnir bíða ekki. Það verður að segjast. Næsti vagn á leið 35 kemur ekki fyrr en eptir um 30 mínútur & á dr.-inn erfitt með að skilja hví leiðin bíði ekki eptir bæjarvögnunum. Að vísu verður leiðin of sein allan hringinn en á móti vagnstjórinn fær öngvu að síður sína pásu. Öðru máli myndi gegna ef tíðnin væri örari.

Vonandi hysja nú vagnstjórar Kynnisferða upp um sig buxurnar & bíða eptir leiðum 1,2 & 4. Það er jú tilgangur með þessu leiðakerfi sem brátt fagnar nú 9 ára afmæli.

Hér er & hvimleitt klúður
hjá Kynnisferðunum.
Hinkrið við - ekkert múður
eptir bæjarvögnunum!

Enn ern fyrir fernd ...

20120612031929-908f7b72Hinn tignarlegi & taktfasti dr. Gylforce tók létt dansspor í gær hvar hann náði í þessa fyrirtaks fernd meðal vina sinna, vagnanna. Leiðir, vagnar & vagnverjar voru af ýmsum toga þennan daginn & afar ljúft - nú sem endranær - að sitja meðal vinanna. Hvað um það.

Dr. Gylforce hóf leik með því að hóa í huggulegan sænskættaðan eðalmálm er ók um Smárana hér í Voginum. Leið 28 bauð upp á 308 Volvovagninn en svo virðist sem hinn spánnýi & spennandi 307 VDL, 308 & 309 Volvoarnir taki slaginn í sumar á þeirri leið. Hinn fyrsti þeirra Kynnisferða, 301, rúntar svo hringinn góða á leið 35. Aðrir vagnar virðast hafa fengið hvíldina góðu í sumar. 

Dr.-inn sá hinn snotra 184 Omnicity vagn á leið 17 í Mjóddinni & bauð öngvra boða. Ugglaust er stutt í að sá fyrirtaksvagn kveðji vígvelli veganna & því kjörið að njóta hans meðan hans nýtur við. Nema hvað. 

Dr.-inn sat sem fastast í Omnicityvagninum eða alla leið að endastöð við Hlemm. Þar skiptir vagninn um leið & tekur næst hring sem leið 5.

Doktorinn frá Stútulaut spókaði sig um hríð við Hlemminn & sá urmul vagna & indæla vagnverja. Að lúkningu hoppaði hann þó inn í Crossway vagn á leið 11 upp í Mjódd & framlengdi svá ferð sína með 145 Crosswayvagni á leið 4. Greinilegt er að byggðasamlagið hefir víxlað nýju vögnunum & aka nú vagnar númer 141-146 á leið 4 en í vetur voru það 138-140. Gaman af því.

Svá er & að vænta tíðinda af nýjum vögnum & leiðabreytingum. Meira um það síðar mínir virðulegu vagnverjar. 

Doksi kallinn ennþá ern
& í indælis málum.
Hoppaði í frækna fernd
með frygðarlegum gálum.

Öngvinn vagn - öngvin velta ...

183Hinn rjúkandi & rammhvassi dr. Gylforce reið ekki feitum hesti frá vögnum helgarinnar hvar hann náði varla í vagn & er hér um sannkallað reiðarslag að ræða. Doksi kallinn hugði á ferðir báða dagana en óð hvarvetna villu & svíma & verður að gjöra bragarbót á þessu eins fljótt & auðið er. 

Dr.-num tókst reyndar að reiða fram reiðfákinn & renna sér um kópvægskar koppagrundir. Svá verður hann drífa sig með fákinn í vagninn.

Helgin fór í algjört fokk
fáum vögnum sat í
reiðarslag & algjört sjokk
en sötraði þó pepsí!*
BIGcross_arrow_corfu_s-bikes-1.jpg








Hér má sjá reiðfák doksa.



*Pepsi Max vitaskuld!

... til vítis!!!

20120612032302-2363e2b4
Hinn rammgerði & roðmi dr. Gylforce rauk út úr dyrunum við Stútulautina í gærkvöldi hvar hann langaði svo ógurlega í einn hring með þeim sænskættaða. Doksi kallinn hélt rakleitt af stað, valhoppaði niður göngustíginn & beint út í biðskýlið sitt.


Heyrðu vinur, vagninn minn
vinur snjalli kæri.
Ert´að aka hringinn þinn
eins & ekkert væri?

Hinn 301. vagn þeirra Kynnisferða tók höfðinlega á móti dr.-num & bauð honum upp á eðalrúnt um kópvægskar koppagrundir. Það voru heldur fáir vagnverjar um borð í leið 35 að þessu sinni enda sólmánuður (regnmánuður?) & heyannir í hámarki. Hvað um það.

Doksi kallinn linnti ekki látum í vagninum fyrr en hann áði aptur við fegurstu laut veraldar, Stútulaut. Maður lifandi.
  
Vagninn kemur, vagninn fer
vagnverjum til handa.
Veðurguðinn í vanda er
til vítis með þann fjanda! 

89d650d04cbed2dcbd25cb67fa2cafe3










Myndir: vb.is & citybus.piwigo.com/

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband