Færsluflokkur: Bílar og akstur
Batteríin fyrr búin
í brunagaddi dags.
Drattast af stað díselknúinn
dröslar mér heim strax.
Kuldinn og rafvagnarKuldinn sem verið hefir gerir það að verkum að rafhlaðan í rafvögnunum dugar skemur en ella. Það er alþekkt með tæki með batteríum & vagnarnir vitaskuld engin undantekning á því. Nema hvað.
Eins & svo opt áður hefir verið nefnt er brýnt að koma upp hleðslustöð fyrir rafvagnana svo hægt sé að koma þeim í svokallaða fulla notkun. Hausverkurinn er hinsvegar hvar slíkar stöðvar eigi að vera.
Gott væri að setja upp eina hleðslustöð á Hlemmi. Hinsvegar gæti það reynst vafasöm fjárfesting til lengri tíma, hvar til stendur að vagnarnir fari þaðan & aki með dekk sín & drif til & frá BSÍ.
Mjóddin hentar ekki & því spurning með eins & Spöngina. Þar eru bara 3 leiðir, 6,7 & 18 & því ljóst að úr vöndu er að ráða hjá byggðasamlaginu.
Bílar og akstur | 4.2.2019 | 10:03 (breytt kl. 10:13) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Að hálsinum nú huga þarf
heilmargt þar sem seiðir.
Munu eiga þar athvarf
enn fleiri leiðir?
Strætó bs. hefir í mörg horn að líta varðandi hið lostfagra leiðakerfi. Stjórn byggðasamlagsins fær reglulega sent erindi inn á borð til sín þess efnis að breyta & bæta leiðum.Ein af þeim er frá fyrirtækjum upp á hálsi. Aðeins ein leið, leið 16, ekur um hálsahverfið með heldur takmörkuðum hætti aukinheldur sem leiðir 5 & 15 aka þarna rétt hjá.
Strætó bs. hefir uppi hugmyndir um hvernig megi efla þjónustustigið á þessu svæði. Og eru þær nokkuð djarfar að mati doksa. Það er láta leið 24 fara um hálsahverfið og sleppa akstri til og frá Ártúni. Með þessu móti tengjast hálsarnir Grafarvogi, Mjódd, Kópavogi og Garðabæ sem yrði efalítið mjög gott.
Á móti kemur að það hlýtur að teljast afar óheppilegt að sleppa leið 24 við tengingu við allar hinar leiðirnar í Ártúninu. Allt er þetta þó bara á umræðustigi enn sem komið er.
Sjáum hvað setur.
Bílar og akstur | 3.2.2019 | 13:40 (breytt kl. 13:47) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Út hann fór með ungviðið
alla leið að Granda.
Leiðangurinn með liðið
ljúfur var að vanda.
Dr. Gylforce viðraði ungmennin úr mennta- & menningarsetrinu við Kársnes í gær & hélt með þau áleiðis að Grandagarði. En ekki hvað???Dr.-inn hapði hug á því að kanna breytinguna sem varð á leið 14 um áramótin. Sem & hann gerði.
Dr. Gylforce fór með ungviðið með leið leiðanna, leið 1, frá Hamraborg að Hlemmi. Þar tók við örstutt & hnitmiðuð ferð með leið 14 niður Hverfisgötu að Grandagarði. Allt annað líf í stað þess að ráfa um Gömlu-Hringbraut & Háskóla Íslands. Nema hvað.
Þessi breyting á leið 14 er góð fyrir okkur sem viljum kíkja á það sem Grandinn hefir upp á að bjóða. Maður lifandi.
Bílar og akstur | 2.2.2019 | 17:48 (breytt kl. 17:49) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mikil er hér handvömm
hjá verkstæði.
Gert með skít & skömm
skortir hrein gæði.
Dr. Gylforce varð heldur dapur í vögnum gærdagsins, hvar einn fallegur vagn frá verktakanum inn við sundin var ekki eins & hann á að sér. Nema hvað.
Gylforce-inn gekk hröðum & glöðum skrefum inn í leið 21 í Firðinum & hitti fyrir 337 vagninn. Doksi tyllti sér í eitt af öptustu sætunum & blasti þá þessi ófagra sjón við. Tvö sæti vantaði í vagninn & viðgerðarmennirnir ákváðu að taka ekki gulu stöngina sem er þarna eins & álfur út úr hól. Usss-usss.
Menn hljóta að geta gert betur en þetta hvað frágang varðar þegar baksa þarf við vini vora, vagnana.
Bílar og akstur | 1.2.2019 | 18:31 (breytt kl. 18:51) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Í ofankomu arka
inn fer við Nettó.
Sit í fögrum fjarka
ferðast um gettó.Dr. Gylforce hélt út í hjarnið eins & blessað barnið í gærkvöldi, hvar rafvagn varð enn & aptur á vegi hans. Yndislegt.
Dr.-inn einblíndi að þessu sinni á leið 4 sem vitaskuld vafraði hring eptir hring um hið fagra gettó Gylforce-ins. Nema hvað.Vögnunum gekk yfirleitt vel í efri byggðum þótt 2-3 mínútna seinkun væri ekki óeðlileg.
Nú þarf dr. Gylforce að mjaka sér í morgunumferðina & kanna hvurt ekki sé þar virkilegt fönn í fönninni. Hvað um það.
Bílar og akstur | 23.1.2019 | 12:57 (breytt kl. 18:13) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Á vígvöllunum þæfingsfærð
varlega er farið.
Mikil er yfir verjum værð
vilja þó sumarið.
Það er óhætt að segja að vetrabúningur sé kominn á vígvelli veganna, hvar leiðir eiga fullt í fangi með að halda áætlun & komast upp í efri byggðir. Nema hvað.Dr. Gylforce gerði sér far með tveimur leiðum eptir kvöldmatinn meðan snjó kyngdi niður. En ekki hvað???
Dr.-inn dáðist að vagnstjórunum sem náðu vel að halda áætlun á leiðum 3 & 11. Ugglaust hefir það gengið mun verr í morgun & svá aptur síðdegis.
Svo er ekki annað að sjá en það verði handagangur í öskjunni í fyrramálið eptir ofankomuna í kvöld. Maður lifandi!
Bílar og akstur | 21.1.2019 | 22:22 (breytt kl. 22:25) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kvöldin eru koldimm
kemst ég þó í vagn.
Milli fjögur & fimm
fer af allt rafmagn.
Hinn hrifnæmi & háskalegi dr. Gylforce hélt vitaskuld á vit vagna í fannfergi laugardags þessa, hvar hann vildi fá að upplifa hvernig unaðsleiðum reiddi af í ofankomunni. Nema hvað.Í snjómuggunni hitti dr.-inn fyrir hinn snotra 104 rafvagn á leið 4 & snáfaði með honum að Mjódd okkar Breiðhyltinga. Þar endaði hann veru sína á vígvöllum veganna enda klukkan að verða fimm síðdegis. Öngvar hleðslustöðvar eru til fyrir rafvagnanna nema upp á Hesthálsi, þar sem þeir eru geymdir. Hvað um það.
Til þess að byggðasamlagið geti nýtt rafvagnanna til fullnustu - eins & hlýtur að vera stefnan því hér um fjárfestingu upp á tæpan milljarð að ræða - þarf að koma upp hleðslustöðvum. Full nýting á nýjum vagni er um 8000 km akstur á mánuði en eins & staðan er núna er aðeins að nást um 50% nýting á rafvögnunum fjórtán.
Í stað 104 rafvagnsins kom til skjalanna 178 Iveco Crossway vagn sem skrýddur var vel í tengslum við Gaypride síðasta sumar. En ekki hvað???
Bílar og akstur | 19.1.2019 | 22:23 (breytt kl. 22:37) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þeir eru eigi hastir
indælir að sjá.
Suður í Firði fastir
fjandinn gengur á?!Dr. Gylforce þraut öreindið & hélt í leiðangur í leit að nýju vögnunum fjórum sem ættu að aka um lendur Seltirninga & vesturbæ þeirra Reykvíkinga á leiðum 11 & 13
en gjöra ei. Hví?
Jú, þeir virðast pikkfastir suður í Firði hjá verktakanum sínum. Það er ekki einu sinni búið að fjarlægja plastið af sætunum á a.m.k. einum vagnanna!
Vonandi verða þeir tilbúnir hið snarasta & mun þá eigi standa á doksa kallinum að halda út á galeiðuna vestur í bæ.
Bílar og akstur | 18.1.2019 | 16:51 (breytt kl. 21:01) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nýja gula nota ég vil
njóta, sitja, slaka.
Í ellefunni ekki skil
öngva hægt að taka!
Dr. Gylforce gekk vitaskuld hnarreistur & með reistan makka til vina sinna - vagnanna - i gær, hvar hann langaði að sjá hvurt nýju vagnarnir væru komnir á leiðir 11 & 13. Nema hvað.
Doksa kallinum hefir borist til eyrna að verktakinn suður í Firði hafi í fórum sínum fjóra nýja Iveco Crossway vagna. Jibbíkóla!
Vonandi situr hann ekki lengi á slíkum unaði en Gylforce-inn gat ekki séð einn einasta á vígvöllum veganna í gær. Illu heilli.
Dr. Gylforce gerði sér títt far með ellefunni & fylgdist aukinheldur vel með leið 13 aka til & frá Hlemmtorgi. Á leiðum þessum var einungis hinn níu ára gamli Irisbus í boði fyrir utan Iveco-gæðing þennan á myndinni á leið 11. Hvað um það.
Vonandi halda þeir á vígvellina hið fyrsta. Koma svoooooo!
Bílar og akstur | 17.1.2019 | 13:09 (breytt kl. 13:15) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýr er bragur á næturna
nýta verður betur.
Öngvu verið að umturna
en sjáum hvað setur.
Náttvagnarnir
Byggðasamlagið Strætó hefir ákveðið sig hvurnig næturakstri um helgar verði framvegis háttað. Tilraunaverkefnið hefir nú staðið í rúmt ár & hefir mælst vel fyrir.
Samlagið mun þó í febrúar hætta akstri á leið 111 en allar næturleiður hefjast á hundrað. Leiðin sú fór frá Hlemmi, um Dunhaga áleiðis til Seltirninga. Dræm var þátttaka vagnverja á ferðum þessum á árinu sem var að líða.
Þá verður næturleiðum númer 101, 103 & 106 breytt lítillega. Nema hvað.Illu heilli hefir dr. Gylforce ekki hundskast í ferðir þessar & þarf því að gyrða sig hressilega í brók á nýju ári & kanna lendur & stemmningu næturvagnanna - en ekki hvað???
Bílar og akstur | 15.1.2019 | 21:36 (breytt kl. 22:43) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Ágúst 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.8.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 124054
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 20
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar