Hinn eðalborni & eðlisgóði dr. Gylforce lenti í heldur furðulegu atviki, hvar hann hugðist aptur reyna að komast í leið 28 við Hvammsveg þeirra Kópvæginga. Nema hvað.
Að þessu sinni mætti dr. Gylforce vel tímanlega við stoppistöðina & ætlaði ekki að missa aptur af gjörbreyttri leið 28.
Dr.-inn stóð við staurinn & hugðist taka leið 28 til vesturs. Vagninn kom & doksi undirbjó Appið í símanum. Sá guli hægði á sér en stoppaði EKKI & ók framhjá doksa kallinum!!!
Dr.-inn varð svo hissa & reiður að hann hljóp á eptir hinum stutta 337 Ivecovagni öskrandi & veifandi eins & geðsjúklingur. Hvernig í ósköpunum gat vagnstjórinn ekki séð hann???
Loksins virtist hann hafa heyrt í doksa & stoppaði u.þ.b. 50 metra frá staurnum. Vagnstjórinn virkaði þreytulegur & sagði bara; sorry, sorry.
Tveir aðrir vagnverjar fengu síðan vægt sjokk í ferð þessari þegar vagninn ók inn í hringtorg á Fífuhvammsveginum & fór sömu leið tilbaka; héldu þeir að vagninn væri aptur á leið upp í efri byggðirnar.
Þetta er breyting á leiðinni, sem varð 7. janúar síðastliðinn & er örugglega til hins verra.
Vonandi sér Strætó bs. það hið fyrsta & lætur leið 28 ganga aptur um Dalsmárann.
Yfir&út!
Vankaður er vagnstjórinn
virkar ekki glaður.
Hleypir ekki doksa inn
- endemis þvaður!
Bloggar | 21.1.2018 | 20:02 (breytt kl. 20:09) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 21. janúar 2018
Færsluflokkar
Bloggvinir
Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.5.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 118951
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 17
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar