Hinn fáviskuhjalandi & firraði dr. Gylforce fékk loxins drauma sína uppfyllta á vígvöllum veganna í gær hvar hann sá hinn spánnýja & spennandi VDL-vagn þeirra Kynnisferða - 307 vagninn - tilbúinn til aksturs á leið 28 í Hamraborg okkar Kópvæginga.
Hvílík gleði - hvílík spenna!
Doksi kallinn þreif undireins í litla vagnverjann & nánast réðst til inngöngu. Vagnstjórinn er vel varinn í vagninum með öryggisgleri en því eigum vér vagnverja ekki að venjast hér. Aukinheldur reyndist VDL-vagninn þýður & mjúkur en örlítið hávær miðað við að vera nýlegur. Hvað um það.
Litli & stóri vagnverjinn sátu vonglaðir & væntnir í vagninum & fundu fyrir mikilli væntumþykju honum til handa. Þeir neyddust að lúkningu til að fara út úr vagninum & hóuðu í kjölfarið i hinn sænskættaða Volvo-vagn sem einnig var á leið 28.
Dagur þessi verður lengi í minnum hapður & var virkilega gaman að hafa upplifað vöffin tvö; VDL & hinn sænskættaða Volvo.
Nú er bara að bíða eptir næstu ferð með VDL-vagninum mínir virðulegu vagnverjar.

Arkaði sæll inn í tví-vöff
án þess að koksa.
Öngvin eru í strætó ströff
fyrir stoltan doksa.
án þess að koksa.
Öngvin eru í strætó ströff
fyrir stoltan doksa.
Flokkur: Bloggar | 25.2.2014 | 09:17 (breytt kl. 09:30) | Facebook
Færsluflokkar
Bloggvinir
Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.5.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 118894
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.