Í vagna dreif sig með sitt der
sem doktorsins er iðja.
Framhjá Smáralind nú fer
við fáum Mammon að tilbiðja.
Hinn hugljúfi & heldri dr. Gylforce heldur áfram að kanna leiðabreytingar byggðasamlagsins, sem tóku gildi síðastliðinn sunnudag, hvar komið var að hinni tuttugustu & fyrstu leið. Nema hvað.Dr. Gylforce hóaði í leið leiðanna, leið 1, við Hamraborgina & hélt rakleiðis með 151 Crosswayvagninum að Firði, hvar leið 21 tímajafnar sig.
Leið 21 ekur frá Firði að Mjódd, með viðkomu í Kaplakrika, Kauptúni & fer nú um Smárahvammsveg & framhjá Smáralindinni. Leiðin sleppir krók um Fjarðarkaup & Slökkvistöð en bætir við sig góðum spotta í Kópavoginum eins & fyrr segir.
Áður nam vagninn staðar við Vífilsstaði & síðan ekki fyrr en í Mjódd okkar Breiðhyltinga.
Þetta er góð breyting á leið þessari þótt vissulega sé eptirsjá af Skútu-, Hóls- & Bæjarhrauni þeirra Gaflara.
Yfir&út!
Flokkur: Bloggar | 9.1.2018 | 20:41 (breytt kl. 20:44) | Facebook
Færsluflokkar
Bloggvinir
Ágúst 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.8.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 19
- Frá upphafi: 124047
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 19
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.