Tvisturinn & tuttugu&eitt
tetrið sálar kremur.
Stæðin verða að vera óbreytt
þegar verjinn kemur.
Hinn eitilharði & ógnvekjandi dr. Gylforce hefir glímt við slen & slappleika helgi þessa, hvar hann þó hefir gefið sér tíma til að halda á vit vagna. En ekki hvað???
Dr. Gylforce lét hvorki krankleika né kúguppgefni aptra sér til að valhoppa í Mjódd okkar Breiðhyltinga á ljúfum laugardegi. Nema hvað.
Byggðasamlagið Strætó heldur áfram á góðri vegferð með bættum merkingum í Mjódd okkur vagnverjum til handa. Upp er komið gott skilti sem sýnir hvar allir vagnar eigi að koma og stanza og meira að segja flokka þá í A, B, C o.s.frv.
En vagnstjórar & -stýrur fara sum ekki eptir þessu. Í gær stoppaði t.d. leið 2 í stæði leiðar 21 - & ekki í fyrsta sinn. Varð leið 21 að stöðva fyrir aptan tvistinn eins & epsta myndin sýnir. Maður lifandi!
Þetta er hvimleitt & varð doksi kallinn heldur súr í leið 2 hvar hann fór um efri byggðir Kópvæginga, í gegnum Smárasvæðið, framhjá Hamraborginni & alla leið að Rúv allra landsmanna.
Yfir&út!
Færsluflokkar
Bloggvinir
Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.5.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 118903
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.