Rafvagnar á randi ...

Rafvagnar á randi
rétt náðum í þá.
Veit að þeirra vandi
viðbótin´að fá.

Hinn ungi & aldni vagnverji héldu í unaðsrúnt frá selinu góða að Mjódd okkar Breiðhyltinga í gær. Nema hvað.

Vitaskuld fengu feðgarnir rafvagn, hvar hann skilaði þeim á hárréttum tíma á kórréttan stað. En ekki hvað???

29541757_10215823381687226_3034571720448867219_nFleiri rafvagnar litu dagsins ljós í Mjóddinni. Enn bólar þó ekkert á hleðslustöðvum fyrir þá og meðan svo er geta þessir umhverfisvænu vinir okkar úr Austri ekki verið í fullri notkun. Illu heilli.

Að vissu leyti skilur maður stöðu byggðasamlagsins varðandi hleðslu á rafvögnunum. Hvar á hún að vera? Í fyrstu hlýtur Hlemmur að vera hentugur staður en erfitt gæti verið að réttlæta kostnaðinn við að koma upp hleðslustöð þar þvi flutningur vagnanna þaðan stendur fyrir dyrum á allra næstu árum.

Í Mjóddinni stoppa leiðirnar stutt við svo erfitt gæti verið að hafa hleðslustöðina þar.

Þá eru til svokallaðar þakhleðslustöðvar sem ná að hlaða vagninn í allt að 80% á undraskömmum tíma. Slíkar stöðvar útheimta þó mikið rafmagn og eru eflaust dýrar í uppsetningu.

Hvað sem því líður er heldur slappt að rafvagnarnir nái ekki að vera í notkun frá morgni til miðnættis en skipta þarf þeim út á miðjum degi og hlaða þá uppi á Hesthálsi.



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband