Leið 8 ...

69027828_362621304664231_1523822025452290048_nStrætó kynnir með stolti
stystu leiðina pent.
Nauthóll að Norðlingaholti
nú er komin í tvennt.

Í dag hófst ný leið hjá Strætó bs. sem þó er ekki ný af nálinni. Byggðasamlagið hefir nefnilega stytt leið 5 - er ekur jafnan frá Nauthól að Norðlingaholti - & gert að tveimur leiðum á annatíma & á kvöldin virka daga. Hefir nýja leiðin fengið númerið átta. Nema hvað.

68680988 2340794485976471 4496580615721713664 nDr. Gylforce beið öngvra boða & brunaði að BSÍ um leið & hægja tók á skylduverkum dagsins. En ekki hvað???

68858327 624071754786788 4884389009767268352 nEkki voru margir vagnverjar í þessari stuttu ferð sem er einungis frá BSÍ að Nauthól & Háskólanum í Reykjavík.

68517609 923878384637050 8458117905337286656 nMeð breytingu þessari er fyrst & fremst verið að reyna að bæta stundvísi leiðar 5 & vonum vér allir vagnverjar að sú verði nú raunin í framhaldinu.

Dr. Gylforce býður leið 8 velkomna á vígvelli veganna þótt honum finnist þessi eina breyting fyrir veturinn heldur snubbótt. 

Yfir&út!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband