Farþegum fjölgar ...

E180E0EC-FF82-4DA9-BF15-9CA8A6F117F6Er lífið á tundr´& tjá
& tilgangslaus þula?
Finndu þína ferðaþrá
farðu með þeim gula.

Farþegum fjölgar

Það berast heldur betur ánægjuleg tíðindi úr ranni Strætós bs. hvar farþegum/vagnverjum hefir fjölgað um heil 400.000 á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við árið í fyrra. Hipp-hipp-húrrey!!!

Það hefir nú verið kveikt í vindlum við minna tilefni - maður lifandi!

AlbumImage (1)Eins & optsinnis hefir verið rætt & ritað um hjer þarf stjórn & starfsfólk byggðasamlagsins að hafa þolinmæði í störfum sínum & einnig sveitarstjórnarmenn á höfuðborgarsvæðinu.

Dropinn holar steininn.

Nú er bara að halda áfram á sömu braut & reyna með öllum tiltækum ráðum að hækka hlutfall Strætós í heildarferðum fólks á höfuðborgarsvæðinu. Illu heilli hefir sú tala - sem er í dag 4% - staðið í stað í of mörg ár.

Nú er lag.

Yfir&út!





« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband