Eptirlitið aptur af stað ...???

MBL0157708Eptirlitið aptur af stað
óprúttna á herja
svo þeir geti eigi aftrað
unaði vagnverja

Eptirlitsmenn aptur til starfa

Ánægjuleg tíðindi berast nú frá Strætó bs. þess efnis að eptirlitsmennirnar munu hefja aptur störf á næsta ári með auknar & betri heimildir. En ekki hvað???

Eptirlitið er enn til staðar í dag en dr.-inn verður nú að viðurkenna að það er ansi langt síðan hann sá einn slíkan að störfum. Illu heilli.

C20E029958A9688B4A36702820B3CEA478497BC0909463E6C6724E6A5A095B8C_713x0Byggðasamlagið áætlar að um 200 milljónir tapist vegna falsana þótt erfitt sé að segja til um umfangið. Fyrir nokkrum misserum komst upp um svik á níu mánaða korti frá Strætó & má ætla að ýmsir falsaðir miðar & kort séu í umferð, því miður.

Strætó hyggst fá leyfi til þess að sekta þá sem nota slíkt sem þekkist vitaskuld afar vel í nágrannalöndum okkar.

Vonandi nær byggðasamlagið að kveða skúrkana í kútinn enda afar sorglegt þegar reynt er að svindla á sameiginlegri þjónustu sem greidd er með skattfé.

Yfir&út!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband