Næsta stans - Ísland trans ...

Fjölbreytileika nú fögnum
flottur þessi vagn.
Allir með öllum í vögnum
ekkert bölv & ragn!

Stjórnendur Strætós bs. halda áfram að gleðja oss vagnverja með fallega skreyttum rafvögnum. Maður lifandi.

Að þessu sinni er kominn á vígvelli veganna glæstur vagn í tilefni Hinsegin daga 2020. Vagninn er sumé tileinkaður transfólki á Íslandi og réttindabaráttu þeirra.

Vagn þessi hepði efalítið verið fremstur í flokki í Gleðigöngunni en hún hefir verið blásin af í ár vegna kórónuveirunnar sem er skiljanlegt & skynsamlegt.

& talandi um veiruna skæðu:

Nú urmull Íslendinga
afneitar veiru.
Baulið í honum Binga
bölvanlegt í eyru.

Bollaleggingar Binga








« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband