Byggðasamlag samtal vill
sem hlýða á vér verðum.
Leiðakerfi sem lykill
að liðlegum ferðum.
Fundur með Strætó
Byggðasamlagið Strætó efnir til opins fundar um málefni strætós við oss vagnverja & alla þá sem hafa áhuga á málefnum er snýr að vögnunum, vinum vorum.
Þessi fundur er fagnaðarefni en hann verður haldinn í höfuðstöðvum Strætós að Þönglabakka fimmtudaginn 28. mars kl. 17:30.
Skyldumæting - allavega fyrir dr.-inn, maður lifandi!
Bloggar | 7.3.2019 | 16:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sól, logn & mengunarlopt
leikur oss nú grátt.
Á næstunni atvikast opt
ef við gerum fátt.
Svifrykssvívirða
Svifrykið lætur nú á sér kræla á höfuðborgarsvæðinu & eru allir hvattir til þess að hvíla einkabílinn sinn & halda á vit unaðsferða meðal vagnanna. Nema hvað.
Illu heilli tókst dr.-num nú ekki að taka vagninn í morgun; karleplið svaf yfir sig & varð að notast við óvininn ógurlega, einkabílinn.
Doksi kallinn reyndi að lágmarka akstur & vonar að þetta komi ekki aptur fyrir í bráð. Maður lifandi.
Bloggar | 5.3.2019 | 21:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Í bössinum ég tók mér blund
bærilegan lúr.
Genginn næstum á feðra fund
í fínasta túr.
Líkt & endranær beið dr. Gylforce öngvra boða eptir að hafa fullmettað ungviðið af vizku & vísdóm í mennta- & menningarsetrinu við Kársnes & hélt á vit vagna. En ekki hvað???
Eitthvað hafa nú ungmennin sogað orkuna úr doksa kallinum, hvar hann var varla kominn inn í leið 3 við Mjódd okkar Breiðhyltinga er hann steinsofnaði!
Eptir góðan hring (eða hringi!) í unaðs Iveco Crossway vagni númer 157 rankaði dr.-inn úr rotinu rétt við Mjóddina, staulaðist út úr vagninum & líklega búinn að fara niður í bæ & aptur til baka!
Samgöngur | 4.3.2019 | 18:26 (breytt 5.3.2019 kl. 09:23) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hjá verktökum eru verkföll senn
verjarnir lenda í klípu.
Verkalýðurinn & valdsmenn
verð´að fá sér friðarpípu.
Verkföll og vesen fyrir vagnverja
Hinn vergjarni en þó varkári dr. Gylforce líst lítt á boðuð verkföll, hvar það mun koma niður á unaðsferðum með vinum vorum, vögnunum. Nema hvað.Ekki munu þó allar leiðir lognast út af. Einungis verktakar hjá Strætó eru á leið í skæruverkföll en þeir sjá um ca. 50% af öllum akstri á höfuðborgarsvæðinu. Hvað um það.
Til að mynda verður ekki feitan gölt að flá meðal hverfaleiða hjá Strætó ef af verkfalli verður. Leiðanúmer 21-44 munu verða fyrir barðinu á vinnudeilunni aukinheldur sem leiðir 11-17 koma til með að lenda í kröppum dansi.
Vonandi ná samningsaðilar að fá sér vöfflur í Karphúsinu svo ekki komi til þessara aðgerða. Hinsvegar eru nú ekki miklar líkur á því - maður lifandi!
Samgöngur | 3.3.2019 | 23:27 (breytt kl. 23:48) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Í sælunni suðurfrá
sæmilegar leiðir.
Mislita minz þar sá
sem misskilning útbreiðir.Hinn sólbrenndi & sótsvarti dr. Gylforce hefir nú séð betra strætókerfi en í Orlando borg. Maður lifandi!
Í borginni voru um 34 strætisvagnaleiðir en illu heilli náði doksi kallinn aðeins að komast í kynni við tvær þeirra, leiðir 8 & 42. Stakt fargjald var um 2 dollarar eða um 240 krónur. Vitaskuld var hægt að kaupa dagskort, 7 daga kort og 30 dagakort en dr.-inn hapði öngvin not fyrir þau þarna.
Tíðnin á leiðum 8 & 42 var svona ca. um 15-30 mínútur. Leið 8 var ágæt, brunaði um borgina þvera & endilanga & fór meðal annars að stórri verslunarmiðstöð sem kollegum doksa leiddist nú ekki.
Aukinheldur var sérstakt að alls konar litir geta verið á hverri leið. Þannig fór doksi kallinn í grænleita áttu, fjólubláa & eina gráa! Það er nokkuð svalt að gjöra þetta en heldur ruglingslegt fyrir nýjan & áttavilltan vagnverja eins & doktorinn! Hvað um það.
Dr.-inn sat í leið 8 töluvert en í hvert sinn sem hann ætlaði út, fara yfir götuna & taka leiðina tilbaka blasti við honum það sem sjá má á myndinni hér neðst.Bílar. Akreinar. Fleiri bílar. Fleiri akreinar. Orlando stendur greinilega undir nafni sem bílaborg þótt hún sé nú ekki með þeim verstu þar vestra.
Yfir&út!
Bloggar | 1.3.2019 | 17:43 (breytt kl. 17:51) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Held nú í Flórídaferð
fokking olræt!
Bus-ar þar af bestu gerð
& but light.
Hinn útitekni & affæragóði dr. Gylforce ku alsæll vera þessa dagana hvar hann hyggur á vagnarannsóknir í henni Ameríku næstu daga. Maður lifandi!Dr. Gylforce ber niður í Orlando í Flórída að þessu sinni & verður fróðlegt mjög að sjá í landi einkabílsins hvurnig almenningssamgöngum reiðir þar af.
Spenna!
Bloggar | 20.2.2019 | 08:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Með raunir mínar rogast
rata inn í vin.
Að spánnýjum ég sogast
sit þar auðfundinn.
Hinn gæfi en guðhræddi dr. Gylforce gekk til vina sinna - vagnanna - hvar hann hapði eigi hug á því að horfa á júrakeppnina á Rúv líkt & þorri vagnverja. Nema hvað.
Eptir góðan en stuttan rúnt með leið 4 sá doksi kallinn einn spánnýjan vagn á leið 11 í Mjóddinni sem ættaður er sunnan úr Firði. Málið var steindautt.Inn vildi dr.-inn.
Dr. Gylforce sté stoltur inn í glænýjan & glæstan 221 Iveco Crossway á leið 11 við Mjóddina. Það eimir enn af nýju lyktinni inn í honum sem einkennir nýjar sjálfrennireiðar. Maður lifandi!Dr.-inn hélt mjúkur & meyr með vagninum alla leið að Þjóðleikhúsinu hvar hann ákvað þar að skella sér í leið 13 en á leið þeirri eru líka nýir vagnar. Unaður.
Aukinheldur sást einn rafvagn á vaktinni á leið 4, 168 Yutong úr Austurvegi, en illu heilli náði dr.-inn ekki eiga unaðsþrásetu með honum að þessu sinni.
Yfir&út!
Samgöngur | 17.2.2019 | 08:20 (breytt kl. 08:30) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Almenningssamgöngur fyrir landið allt
Það er óhætt að segja að ánægjuleg tíðindi berist úr ranni stjórnsýslunnar þessa dagana hvað almenningssamgöngur varðar. Ráðherra málaflokksins, Sigurður Ingi, kynnti á dögunum að í bígerð sé að samræma allar almenningssamgöngur í landinu og setja á stofn einn samræmdan upplýsingavef. Það yrði afskaplega kærkomið fyrir vagnverja, flugverja & sæfarendur, maður lifandi.
Þá er aukinheldur stefnt að því að hafa fimm stærri skiptistöðvar á landinu þar sem huga þarf að skipulagningu á samgöngumiðstöðvum. Þær yrðu á höfuðborgarsvæðinu, Borgarnesi, Akureyri, Egilsstöðum og Selfossi. Sjö minni skiptistöðvar kæmu einnig til að vera í kerfinu fyrir afmarkaðri svæði.
Dr. Gylforce á eptir að skoða til hlítar stefnu þessa í samráðsgátt stjórnvalda en það sem komið er, líst honum afar vel á.
Vitaskuld er skrýtið að árið 2019 sé enn verið að vinna að stefnu eins & þessari en eigi að síður vel gert hjá samgönguráðherranum og ráðuneyti hans.
Samgönguráðherra sýnir dug
sá mun verja kæta.
Allir vagnar, ferjur & flug
ferðalög munu bæta.
Samgöngur | 16.2.2019 | 10:55 (breytt kl. 22:16) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hingað ég leita & hér ég dvel
í hlýjum sætum þínum.
Glaður ég þér mína forsjá fel
með fallegum ljóðlínum.
Bloggar | 15.2.2019 | 08:17 (breytt 16.2.2019 kl. 10:57) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kerfið út úr korti
kemur ei mín leið.
Paufast í þessu porti
pungsveittur ég beið.
Hinn glaði en guðhræddi dr. Gylforce fór ekki varhluta af seinkunum í hinu lostfagra leiðakerfi Strætós í gær, hvar hann þurfti að bíða lon & don í Mjóddinni. Nema hvað.Dr. Gylforce var aldrei þess vant vopnaður snúru úr síma sínum, hvar hann langaði að nýta sér plöggin í rafvögnunum. Doksi kallinn sá aukinheldur að rafvagnarnir voru venju samkvæmt á leiðum 3 & 4 & vildi þar inn. Því beið hann & beið. & beið & beið. Öngvir komu vagnarnir enda háannatími & færð á vígvöllum veganna með heldur lakara móti. Hvað um það.
Dr.-inn þraut svá öreindið & tók einn af gömlu Citelisvögnunum á leið 2 & Karosa á leið 4 tilbaka frá Hamraborg. Ekki það sem til stóð en það gengur bara betur næst.
Bloggar | 14.2.2019 | 15:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Ágúst 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.8.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 19
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 19
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar