Hvíla vagnar dekk & drif
dvelja á sínu stæði.
Framundan er þvottur & þrif
í þá svo ég mér læði.
Á hvíldardögunum hefja vagnarnir, vinir okkar, ekki akstur fyrr en milli kl. 9:30-10:00. Reyndar fer leið 57 frá Akranesi kl. 7:25 & endar hjá Umferðarmiðstöðinni á BSÍ en ekki í Mjóddinni. Nema hvað.Flestir vagnar komast með dekk sín og drif á vígvöll veganna um kl. 9:30. Í lauslegri skoðun doktorsins hjó hann eptir því að hverfaleiðirnar í Firðinum, 43 & 44, hefja akstur einna fyrst eða um kl. 9:22. Hvað um það.
Framundan hjá dr. Gylforce eru hepðbundin verkefni. Svo heldur hann á vit vagna - en ekki hvað???
Bloggar | 2.9.2018 | 08:47 (breytt kl. 20:57) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vagninum veifað
verjinn inn sest.
Á knæpunni kneyfað
ölkrúsin er best.Á þjóðmálum þreifað
með þýðlyndum tveim.
Samtalið allt seifað
sauðdrukkinn held heim.
Hinn þorstagjarni & vel þyrsti dr. Gylforce þaut til vina sinna, vagnanna, í gær á nokkuð vætusömum degi. Dr.-inn gekk út í skýli sitt í gettóinu & hugði á ferð í miðbæ okkar Reykvíkinga.Gylforce-inn var brattur mjög & hapði í hyggju að dvelja lengi í næturlífi borgarinnar & taka næturvagninn heim. Doksa kallinn þraut því miður öreindið í þeim efnum en það gladdi hið gamla hró hans að sjá nýjan rafvagn, númer 111, á leið 4 þetta frjádagskveld. Vitaskuld tók dr.-inn sér far með honum - en ekki hvað???
Vonandi hefur Strætó bs. tekið ákvörðun um staðsetningu á hleðslustöð fyrir rafvagnana svo þeir geti farið að keyra frá morgni til kvölds.
Bloggar | 1.9.2018 | 11:12 (breytt kl. 14:30) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það berast ekki mikil gleðitíðindi í hálfsárs uppgjöri Strætó bs. Í upphafi árs var þjónustan bætt til muna sem ekki hefir skilað sér auknum fargjaldatekjum byggðasamlagsins. Má þar t.d. nefna næturakstur um helgar & sama tíðni yfir sumartímann.
Hafa verður þó í huga að sala á árskortum er áberandi betri seinni hluta árs, einkum vegna árskorta nema, þannig að skoða verður árið í heild.
Gleymum heldur ekki því að auka hlut almenningssamgangna í ferðavenjum höfuðborgarbúa er langhlaup.
Vonandi hefir stjórn Strætó bein í nefinu til þess að halda áfram að efla leiðakerfið þótt vissulega sé ljóst að breytingar, eins & gerðar voru í janúar, kosti talsverða fjármuni.
Vagnarnir eru jú vinir okkar!
Aksturstíminn var aukinn
öngvu breytir það.
Forkólfar fá á baukinn
hvur fjandinn er að???
Hálfsársuppgjör Strætó
Bloggar | 30.8.2018 | 10:22 (breytt kl. 10:28) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eptir strit held á vagnavit
vel gullituðu glæstu.
Sáttur sit með lærdómsrit
sjálfsálitið í hæstu.
Dr. Gylforce gat vart beðið eptir að losna úr hinum kópvægska vesturbæ & halda á vit vagna. Doksi kallinn sá rafvagn á vappi á leið 4 við Hamraborg þeirra Kópvæginga & beið öngvra boða. En ekki hvað???Vagninn reyndist vera úr fyrra hollinu sem voru nokkur vonbrigði því dr.-inn á eptir að einhenda sér í rafvagnana fimm sem komu á dögunum. Nema hvað.
Leið 4 ók með Gylforce-inn um Háaleitisbraut, Miðbæinn sem þar er & niður að Borgartúni. Kárnaði þar gamanið - maður lifandi!Malbikunarframkvæmdir stóðu yfir í Borgartúninu sem töfðu umferðina umtalsvert. Vagnstjórann á fjarkanum þraut öreindið eptir um 30 mínútna stopp & ók Sóltúnið upp á Laugarveginn & þaðan niður á Hlemmtorgið. Það var vel til fundið hjá stjóranum & gaman að fá ferð með vagninum um þetta tún í fyrsta sinn.
Dr. Gylforce spígsporaði um Hlemminn dágóða stund & passaði sig að taka ekki leiðir sem fara um hið íslenska Wall Street á heimleiðinni.
Amen.
Bloggar | 29.8.2018 | 23:28 (breytt kl. 23:32) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hinn skilningsríki & skapgóði dr. Gylforce skilur lítt í borgarfulltrúa Miðflokksins, hvar hún kvartar & kveinar yfir auglýsingum á vögnum Strætó þessa dagana. Nema hvað.
Vigga í vagnarugli
Aukinheldur hefur hún fundið því allt til foráttu að ríkið leggi til tæplega 900 milljónir króna til almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu ár hvert. Samt er þetta sama manneskjan & vildi gefa frítt í vagnana í síðustu borgarstjórnarkosningum. Humm, humm???
Auglýsing Miðflokksins - frítt í strætó
Ef slíkt yrði gert kæmi það í hlut sveitarfélaganna sex, sem reka Strætó bs., að bæta við tæplega 2000 milljónum, sem eru fargjaldatekjur, við þær rúmlega 3000 milljónir sem þegar eru settar með sérstöku framlagi frá sveitarfélögunum í hið lostfagra leiðakerfi.
Vitaskuld er ríki ekki sama & sveitarfélag en öngvu að síður er málflutningur borgarfulltrúans ruglingslegur; má ríkið ekki styrkja samgöngur í höfuðborginni en eys svo miklum fjármunum í þær á landsbyggðinni???
Hér er eitthvað sem stemmir ekki. En hvað um það - yfir&út!
Miðflokksmuldrið ekkert nýtt
mig langar til að æla.
Vildu í vagna hafa frítt
en nú er Vigga að skæla.
Bloggar | 28.8.2018 | 16:48 (breytt kl. 16:59) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Stóran hring eða stutta ferð
strætisvagninn gefur.
Kætir meir en kvæðagerð
komur sjaldan tefur.
Hinn bolalegi & brokkgengi dr. Gylforce brá sér á leið í blíðunni. Doksi kallinn fékk sér til fulltingis einungis flæmska vagna að þessu sinni & stoppaði í þeim stund stutta - maður lifandi!Dr. Gylforce gekk ásamt litla vagnverjanum úr gettóinu yfir í kópvægskar koppagrundir. Þeir höpðu í hyggju að skella sér í leið 28 við Hvammsveginn & halda að þessu sinni í stutta ferðir með hollensku VDL-vögnum þeirra Kynnisferða. Nema hvað.
Ferðir feðga gengu afar vel & ber að hrósa vagnstjórunum fyrir að vera tímanlega & tímajafna vagnana þegar þeir voru komnir á undan áætlun.
Hinsvegar voru fáir vagnverjar á ferli eins & jafnan er á hvíldardegi þessum.
Á morgun, mánudag, má svá aptur búast við handagangi í öskjunni á vinum vorum, vögnunum.
Yfir&út!
Bloggar | 26.8.2018 | 22:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hinn mikli mógúll & menningarþyrsti dr. Gylforce var aldrei þess vant nokk vant við látinn á menningarnátt. Dr.-inn gat þvi ekki fylgst með tæmingu Strætó í miðbænum eptir flugeldaskýninguna góðu á laugardagskveldinu. Nema hvað.
Samkvæmt fréttum brúkaði byggðasamlagið yfir 70 vagna sem óku eptir ákveðnum leiðum úr miðbænum í úthverfin. Hepðbundið
leiðakerfi var þá rofið & hafist handa við að koma vagnverjum heim til sín.
Hvað um það.
Vagnarnir tæma miðborgina
Hinn virðulegi verji, Dr. Gylforce, tók sér far með leið leiðanna, leið 1, leið 4 & 21 í kvöld. Öngvir rafvagnar sáust enda aðallega notaðir á annatíma virka daga.
Á morgun hefjast svá ný ævintýri í nýjum vögnum á öðrum leiðum. Eða jafnvel sömu - en ekki hvað???
Langt er síðast er lét ég vaða
leiðir hafa fengið frí.
Doktorinn gerir verja glaða
gjörir flest með kurt & pí.
Efri myndir: mbl/Eyþór Árnason.
Bloggar | 20.8.2018 | 22:04 (breytt 21.8.2018 kl. 08:07) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það var heldur aumt að lesa í netmiðlum um vagnstjórann á leið 51 sem eitthvað hefir þrotið dómgreindina í Þrengslunum. Að öllu jöfnu ekur leið 51 ekki þar en Hellisheiðin var lokuð þennan dag.
Góðu heilli var sá sem stýrði færður til í starfi hjá Hópbílum, sem annast akstur á þessari leið, enda erfitt að réttlæta svona háttalag.
Glanni glæpur undir stýri
Komst í hann krappan
hvað kom fyrir tappann?
Að glanna er glæpur
gaurinn virkar tæpur
það þarf að tukta til kappann.
Bloggar | 14.8.2018 | 16:41 (breytt kl. 16:48) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggar | 13.8.2018 | 08:10 (breytt kl. 08:11) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Já, mínir viðurlegu vagnverjar. Munum að forðast fábreytileikann i vögnunum & fagna fjölbreytileika leiðanna.
Fábreytileikann forðumst
í vagnaferðum.
Vináttuböndum bindumst
af býsna mörgum gerðum.
Amen.
Bloggar | 12.8.2018 | 12:55 (breytt kl. 12:57) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Ágúst 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.8.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 19
- Frá upphafi: 124047
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 19
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar