Gylforce-inn safnar gögnum
um gerðir þeirra hér.
Fjölbreytileikanum fögnum
- finndu vagninn í þér.
Í gær var dr. Gylforce sem óður maður í Hamraborg þeirra Kópvæginga. Hví?
Þarna ægði saman öllum þeim unaðstegundum af vögnum sem nánast völ er á: Sænsksættaður gamall metanvagn, sænskættaður nýr metan hvítur víkingur, sænskættaður gamall og traustur Scania jálkur, rafvagnar úr Austri, vin8vagninn virðulegi & svona mætti lengi lengi telja. Maður lifandi!
Dr. Gylforce féllust nánast hendur yfir þessum mikla fjölbreytileika. Hvaða vagn? Hvaða ferð? Hvaða gerð? Erfitt val en ákveða nú ég skal.
Meira síðar.
Samgöngur | 12.1.2021 | 18:59 (breytt kl. 19:18) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Á nöprum degi nýt´ég mér
að njóta innan tíðar.
Hér er huggulegt vagnager
í Hamraborg & víðar.
Hinn sopheiti en snaggaralegi dr. Gylforce sveif í frostgrimmdinni í einu hendingskasti í menningarhús þeirra Kópavæginga, hvar hann átti erfitt með að halda einbeitingu.
Hví? Jú, vitaskuld. Í borginni háu & fögru var urmull vagna sem komu & fóru; í þeim & virðulegum vagnverjum heyrðist líkt & í kríugeri. Unaður var þetta! Maður lifandi!
Vagnarnir með bros á brá
bæta þarmaflóru.
Þvílíkt þrái ég ilminn frá
þeirra pústum stóru.
Óðara var doksi kallinn kominn út úr menningunni & beint í hámenningu vagnanna. En ekki hvað???
Samgöngur | 11.1.2021 | 21:22 (breytt kl. 21:29) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Til rúms sér nú að ryðja
róttæk samtök strax.
Borgarlínu tilbiðja
borgurum til taks.
Dr. Gylforce hefir um nokkurt skeið unnið að stofnun samtaka fyrir vagnverja þessa lands. En ekki hvað???
Vissulega eru til fyrir samtök á borð við Hollvinasamtök Strætós, hópur á fasbókinni sem heitir Strætó - lof & last - & ugglaust eitthvað meira.
Hér má sjá fyrstu tvær greinar í lögum félagsins. Þeir sem áhuga hafa á að ganga í félag þetta geta vitaskuld sett sig í samband við dr.-inn.
1. gr. Heiti félagsins, heimili og varnarþing
Félagið heitir Styrktarfélag vagngefinna.
Heimili þess og varnarþing er í Stútulautarseli dr. Gylforce, starfssvæði er landið allt.
2 gr. Tilgangur og markmið
Markmið félagsins eru að fjölga fólki í að sjá unaðinn í vögnunum - vinum vorum, vinna að auknum & bættum almenningssamgöngum á landinu öllu & valdefla vagnverja.
Samgöngur | 5.1.2021 | 22:06 (breytt kl. 22:07) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ármann kallinn - koma svo
í Kópavog´ég híma.
Langar að lít´á einn og tvo
á leið í rauntíma.
Dr. Gylforce hefir verið hyggjuþungur & hlaðinn áhyggjum hvar hann hefir ekki séð eina einustu rauntímatöflu í Voginum fagra. Illu heilli.
Um helgina var dr.-inn vitaskuld á vappi í Hamraborg þeirra Kópvæginga. Þar var öngvan rauntími að finna í skýlunum. Fyrir utan fjölmennasta vinnustað bæjarins, MK, var heldur öngvinn aukinheldur sem hvorki Smáratorg né Smáralind skörtuðu þessum íðilfögru töflum.
Urmul slíkra rauntímataflna má sjá í henni Reykjavík, margar meðal Grafvæginga, slatti suður í Firði en vitaskuld öngvin fundist í Garðabænum. Þar vita menn nú varla hvað unaðurinn er - maður lifandi!
Vel má vera að einhver rökrétt skýring sé á þessu. Máske er einhver verktaki sem einblínir á ákveðin svæði á hverjum tíma. Gæti verið.
Hvað sem því líður er Vogurinn fagri alltof stórt sveitarfélag til þess að bjóða ekki kópvægskum vagnverjum upp á rauntíma í skýlunum.
Það er bara þannig.
KOMA SVO!
Samgöngur | 4.1.2021 | 21:17 (breytt kl. 21:19) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Flatpakkningar framleiðir
fylgihluti og mat.
Ódýrar lausnir útbreiðir
í IKEA-vagni sat.
Hinn hjartahlýi & hugljúfi dr. Gylforce hefir haft áhyggjur af því undanfarnar vikur að ná ekki að njóta bláa vagnsins svokallaða sem ekur aðeins á leið 21, Mjódd-Fjörður-Háholt Hfj.
Jújú, hér á Gylforce-inn við IKEA-vagninn sem kemur skemmtilega á óvart, sérstaklega að innan hvar stjörnur eru í loptinu ásamt ýmsu fleiru fallegu.
Líklegt má telja að í janúar hverfi þessi fallega skreyting á braut & því gott að hafa komist í kynni við vagn þennan.
Aukinheldur gladdi það hið gamla hró dr.´s að sjá að suður i Hafnarfirði er búið að koma upp forgangsljósum fyrir vagnana sem flýtir för þeirra til & frá Firði.
Vel gert - yfir&út!
Bloggar | 3.1.2021 | 19:54 (breytt kl. 22:23) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Í strætóskýlum stóla á
stórgóða nýja tækni.
Nema ég hafi gleymt að gá
& gæti þurft augnlækni.
Dr. Gylforce fór sínar fyrstu ferðir ársins hvar hann hélt sig við sínar breiðhylzku lendur. Nema hvað.
Við Seljabraut okkar Breiðhyltinga hefir nýlega verið komið upp rauntímatöflu í skýlinu. Doksi kallinn tók eptir því á dögunum & hugsaði sér gott til glóðarinnar að nýta sér tæknina. En ekki hvað???
Þegar dr.-inn bar að garði virkaði rauntímataflan ekki sem var bagalegt. Aukinheldur var leið 2 of sein á ferðinni en blessunarlega slapp það til þegar í Mjódd var komið.
Yfir&út!
Samgöngur | 2.1.2021 | 20:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Dr. Gylforce óskar vagnverjum nær & fjær gæfu á leið á nýju ári.
Takk fyrir hið stórmerkilega 2020 & munum:
Betri er einn vagn á ferð en tveir í tímajöfnun.
Góðar stundir.
Samgöngur | 31.12.2020 | 13:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Árborgin nú hyggur á
ókeypis vagnaferðir.
Íbúar með hýrri há
um höfuðið velgerðir.
Ókeypis í Hnakkabænum
Það virðist vera komin tvöföld ástæða fyrir dr. Gylforce til þess að sækja Selforce heim. Maður lifandi!
Góðu heilli ætla sveitarstjórnarmenn þar í bæ að efla innanbæjarvagninn aukinheldur að bjóða upp á ferðir án endurgjalds. Þetta verður efalítið mikið framfaraskref í þessu vaxandi bæjarfélagi & hlakkar dr.-inn til þess að kynna sér þessa þjónustu betur.
Hin ástæðan er vitaskuld breyting á landsbyggðarvögnunum. Gylforce-inn vill ólmur komast í appelsínugulan/gulan vagn & kanna hans kosti & er þá ekki tilvalið að hefja leik með góðri ferð á Selforce???
Samgöngur | 30.12.2020 | 11:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Með auðmýkt & andakt
ekkert bölv & ragn.
Það var alveg einstakt
að sjá vin8vagn :)
Þrátt fyrir þrásetu góða í Þönglabakkanum (Mjódd) þennan bjarta & stillta dag náði dr. Gylforce ekki almennilegri mynd af nýju appelsínugulu/gulu landsbyggðarvögnunum. Illu heilli.
Þeir virðast vera komnir á leið & vonandi eru þeir mun betri fyrir okkur vagnverjana en þeir blágulu.
Dr. Gylforce lék sín kunnuglegu stef í Mjódd okkar Breiðhyltinga með leiðum 3 & 4. Þegar komið var að leiða(r)lokum hjá doksa kallinum sá hann loksins Vin8vagninn en komst ekki í hann. Illu heilli.
Gengur bara betur næst!
Samgöngur | 29.12.2020 | 16:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hérna var orð gegn orði
erfitt því um vik.
Átti að fara frá borði
fljótt - & ekkert hik!
Fordómar eða fíflagangur farþega???
Máske er erfitt að greina málið sem um ræðir í slóðinni hér fyrir ofan. Eða hvað???
Er farþeginn ekki í heldur slæmum málum ef myndefni styður á engan hátt frásögn hans??? & ef satt reynist, að hann hafi ætlað að fá far með löngu útrunnu strætókorti???
Samgöngur | 28.12.2020 | 22:02 (breytt kl. 22:04) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar