Færsluflokkur: Bloggar
Vonandi fara sem flestir með vagninum í Laugardalinn í kvöld.
Margar leiðir eru í boði til þess að nálgast dalinn fagra; t.d. númer 2, 5, 14, 15, 17.
Áfram Ísland!
Með vagninum á völlinn
vil ég fá að sjá.
svo örkum við öll inn
í landið Rússíá.
Mynd: FB-síða Strætó
Bloggar | 9.10.2017 | 10:34 (breytt kl. 15:37) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hinn pólitíski & pungsveitti dr. Gylforce paufaði sér á vit vagna frjádaginn góða, hvar hann hitti einvörðungu fyrir Hollendinginn að þessu sinni. & ekki voru þeir allir fljúgandi - maður lifandi!
Dr. Gylforce stakk sér inn í hinn hollenska VDL-vagn á leið 17 frá Mjódd okkar Breiðhyltinga þegar færi gafst til. Doksa kallinn langaði að kanna hring hans um Breiðholtið, hvar hann reynist opt knappur timinn til þess að aka um Vestur- & Austurberg & koma svá aptur í Mjóddina. Nema hvað.Hin seytjánda leið er á ábyrgð Kynnisferða & yfirleitt ekin af tveimur hollenskum VDL-vögnum. Að þessu sinni hjó gjörhygli Gylforce-ins eptir því að upplýsingataflan í vagninum virkaði ekki.
Hin íðilfagrarödd Herdísar grýlu heyrðist ekki nema endrum & sinnum & sagði bara eitt: Mjódd - tenging við aðrar leiðir. Skipti þá öngvu að vagninn var lengst upp í efra-Breiðholti aukinheldur sem á skiltinu stóð ævinlega bara "Mjódd"!!!
Þetta var döpur lífsreynsla en öngvu að síður hélt dr.-inn með vagni þessum alla leið að Hlemmtorgi okkar Reykvíkinga. Þar tók við annar Hollendingur, að þessu sinni á leið 12 sem var öllu betri. Góðu heilli.
Úr þrasi mínu & þrugli
þaut ég í Hollending,
sem var með rödd í rugli
& raunalegan hring.
Bloggar | 8.10.2017 | 21:11 (breytt 9.10.2017 kl. 09:32) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það var aukinheldur ánægjulegt þegar dr. Gylforce arkaði um Fjörðinn fagra, fyrr í vikunni, að upplifa aðra leið með hinni 21. leið. Nema hvað.
Venjulega ekur leið 21 niður Lækjargötu áleiðis að Firði, hvar hún hefir sína tímajöfnun. Vegna framkvæmda & endurnýjunar á Lækjargötunni beygir vagninn hinsvegar upp Hringbraut & keyrir um Grænukinn, Flensborgarskóla & Suðurbæjarlaug. Þetta er jú sami rúntur & leið leiðanna, leið 1, tekur i Firðinum.
Það var aðeins eitt sem truflaði gjörhygli Gylforce-ins í ferð þessari. Leið 21 var heldur sein að koma að Firði því nýi rúnturinn lengir leiðina. Dr.-inn átti erfitt með að hóa í næstu leið því þær fóru nánast á sama tímapunkti & doksi kallinn sté úr vagninum. Þarna verða vagnstjórar að vera á tánum & bíða eptir öllum leiðunum. Maður lifandi!
Leiðirnar við lækinn
á leið nýrri nú.
Ferðin varð framsækin
ég fór hana edrú.
Bloggar | 5.10.2017 | 09:04 (breytt kl. 09:05) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hinn margrómaði & margsaga dr. Gylforce mjakaði sér í loksins í vini vora, vagnana, í gærkvöldi.
Dr.-inn hapði & hug á því að heilsa upp á Hafnfirðinga, hvar hann hóaði því í hinn huggulega Iveco Crossway vagn frá Kynnisferðum á leið 21 við Mjóddina. Nema hvað.
Ferðin með leið 21 var hin yndislegasta unz hún kom að Kauptúninu. Þá hjó doksi kallinn eptir því að vagninn stanzaði við hverja stoppistöð sem er ekki óeðlilegt því einhver vagnverji hapði jú þrýst þéttingsfast - en þó fimlega - á stanzrofann.
Hinsvegar fór aldrei neinn út. Gerðist þetta trekk í trekk. Aukinheldur vorum vér vagnverjarnir bara þrír í vagninum.
Eptir nokkur stopp var greinilega farið að fjúka í vagnstjórann. Hann stöðvaði vagninn, vatt sér að ungmenni með stóran klút & las yfir hausamótunum á honum.
Eptir það rann leið 21 þýðlega um þjóðlendur Gaflara & áði við Fjörðinn fagra.
Vel gert vagnstjóri!
Á stanzrofann stöðugt þrýsti
með stóran ljótan klút.
Vagnstjóranum fljótt fýsti
að fleygja honum út.
Bloggar | 4.10.2017 | 18:41 (breytt kl. 18:42) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Öngvar ferðir, ömurð ein
endalaust ég ragna.
Sitjandi með kvart & kvein
kem mér ei til vagna.
Enda þótt dr. Gylforce sé lendur maður, vellauðugur af vagnverja að vera; hálfbergrisi að afli, vexti og kynferði; forkunnarfagur, fríður sýnum & hinn mesti atgervismaður, hefir hann ekki haldið á vit vagna undanfarið.
Verður þá kyrrt um hríð.
Bloggar | 3.10.2017 | 15:11 (breytt kl. 15:12) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hinn sukksami & svallaði dr. Gylforce hélt út á galeiðuna í gærkvöldi, hvar hann vitaskuld ferðaðist einvörðungu með vinum vorum, vögnunum.
Dr.-inn mælir eindregið með því að fólk noti vagnana þegar það hyggur á glasalyptingar í borg óttans. Það sparar aurinn fyrir utan nautnina að sitja meðal vagnverjanna. Maður lifandi.
Dr.-inn tyllti sér tignarlega í leiðir 3, 4 & 11. Tilbaka settist doksi kallinn svo í leið leiðanna, leið 1 & fékk fyrirmyndar 3ja hásinga sænsktættaðan vagn. Mammamía!Vonandi verða næturvagnarnir að veruleika á næsta ári fyrir þá sem vilja leika lengur.
Hristi af mér hrollinn
& hélt niður í bæ,
í svinaríssollinn
& sukkaði sí & æ.
Bloggar | 1.10.2017 | 16:03 (breytt kl. 16:33) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hið bráðsnjalla byggðasamlag, Strætó bs., gaf það út í gær á Vinatorginu (Facebook) að einn vagn á leið 15 væri í tengslum við RIFF kvikmyndahátíðina & sýndi stuttmyndir á leið sinni milli Mosó & Meistaravalla. Snilld!
Dr. Gylforce var ekki lengi að losa sig við ungviðið í mennta- & menningarsetrinu, sem nú er við Fannborg, & halda á vit vagna. Maður lifandi!
Áskorunin var góð, hvar átta vagnar aka leið 15 á annatíma & doksi kallinn hapði öngva hugmynd um í hvaða vagni myndirnar væru. Hann taldi þó ólíklegt að þær væru sýndar í aukavögnunum fjórum sem koma inn á háannatíma. Nema hvað.
Dr.-inn endasentist milli Mosó & Meistaravalla, með viðkomu á Hlemmi, Grensás & Ártúni, í leit að vagni þessum en tókst því miður ekki.
Öngvu að síður átti doksi þrásetur & langdvalir í hinum sænskættuðu 107, 114, 115, 116 & 117 Scania Omnilinkvögnum ásamt Irisbusi 141 & 142, að ógleymdum femininstavagninum, KÞBAVD vagni númer 180. Öngvin þessara vagna var með skjáinn góða svo nú verður dr.-inn bara að sverma fyrir honum um helgina.
Gengur bara betur næst!
Doksi natinn & næmur
netta vagna sá.
Stuttar Riffsins ræmur
reyndi þar að sjá.
Myndir: Strætó bs.
Bloggar | 30.9.2017 | 10:18 (breytt kl. 10:20) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eins og segir í menningararfi okkar er dr. Gylforce manna vænstur og gjörvilegastur; hann er líkur vinum sínum, vagnverjunum; gleðimaður mikill, göfugur en ákafamaður í öllu og hinn mesti kappsmaður; hann fer og oft um vetrum á vit vagna og með honum vagnverjar margir.
Í gærkvöldi hélt dr.-inn á vit vagna við Mjódd okkar Breiðhyltinga & stóð þar stinnur & stæltur; hreifur & huggulegur hugði hann á ferð með hollenskum vagni á leið 17 að höll matar við Hlemmtorgið. Nema hvað.
Doksi kallinn tók þristinn að Mjódd & ætlaði næst í leið 17 um kl. 19:21 áleiðis í miðbæinn. Það bólaði hinsvegar ekkert á vagninum & hoppaði dr. Gylforce í ellefuna í staðinn.Dr. Gylforce gerði stuttan stans í leið 11 & ætlaði í leið 17 á gatnamótum Soga- & Bústaðavegar.
Loksins kom hinn hollenski VDL-vagn en var 6 mínútum á eptir áætlun við bestu akstursskilyrði & litla umferð. Hvernig verður þetta í vetur???
Það vakti gjörhygli Gylforce-ins að vagnstjórinn gerði svá ekkert til þess að drífa vagninn áfram. Þvert á móti. Hann lullaði um Sogaveg, Grensás & Suðurlandsbraut & kom að Hlemmi átta mínútum of seint.
Það þýddi að dr. Gylforce missti af vagninum sínum & mátti bíða eptir næsta í hálftíma.
Þá er nú gott að hafa Mathöllina - glogg, glogg ...
Gylforce-inn er að geðslagi
góður, það er frægt.
Hvað í fokkanum, félagi?!
- þú fórst alltof hægt!
Bloggar | 29.9.2017 | 08:35 (breytt kl. 09:22) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eru sumir orðnir brjál
á til verka að vanda.
Verktakanna vandamál
í veginum standa.
Hinn verklausi & víðáttufælni dr. Gylforce var dapur í bragði í morgun, hvar hann vafraði um netmiðla & sá frétt þessa:
Sjö verktakar brjál
Vissulega eiga allir að leita réttar síns, telji þeir að á þeim hafi verið brotið. Maður lifandi!
Hinsvegar hefir doksi kallinn áhyggjur af því að mál þetta taki alltof mikinn tíma & fé frá stjórnendum byggðasamlagsins. Allt það streð sem í þetta mál kemur til með að fara, væri betur varið í að efla ferðaþjónustu fatlaðra & vitaskuld hið lostfagra leiðakerfi.
Bloggar | 28.9.2017 | 09:04 (breytt kl. 09:28) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fjarverandi ferðum í
fastur í minni blokk.
Bakið var eins& blý
bölvað fokking fokk!
Hinn fráleitt bakmálugi & blái dr. Gylforce hefir verið bálreiður undanfarið, hvar hann hefir ekki hapt tök (& slæm bök) á að heimsækja vini sína vegna bakeymsla. Maður lifandi!
Vonandi kemst doksi kallinn á vit vagna í þessari viku enda geðheilsan í húfi. En ekki hvað???
Bloggar | 25.9.2017 | 10:55 (breytt kl. 13:59) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Ágúst 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.8.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 19
- Frá upphafi: 124050
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 19
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar