Færsluflokkur: Bloggar

Grandalaus við Granda ...

doppelHinn tvöfaldi & taktfasti dr. Gylforce tók vagnana með trukki helgi þessa hvar hann & hapði unga vagnverjann sér til halds & trausts. En ekki hvað???

Vagnverjarnir knáu úr Voginum fagra komu sér vel fyrir í tveggja hæða vagninum við Hörpuna & höpðu hug á því að sækja Hvalasafnið heim. Reyndist það hið hvalafyllsta verkefni & greinilegt á öllu að vandað hefir vel til verka við uppsetningu á hvölunum; öngvir vitishvalir þar á ferð. Nema hvað.

straeto1Við Fiskislóð vestur á Granda vildu vagnverjarnir vinalegu vafra næst inn í leið 14. Vagnstjórinn var vart á þeim buxunum & hleypti okkur inn með semingi. Hann var af hinu margfræga erlenda bergi brotinn & reyndi að útskýra fyrir Gylforce-num að hann væri á leið í pásu & því ætti öngvinn að koma inn í vagninn fyrr en við endastöðina sjálfa á Granda.

Þegar þangað var komið skipaði vagnstjórinn okkur að yfirgefa vagninn. Doksi kallinn maldaði eitthvað í móinn en hapði eigi erindi sem erfiði. Klukkan var 13:58 & hoppuðu þeir feðgar út & biðu í kulda & smá ofankomu.

Sjö mínútum síðar kom vagnstjórinn & við héldum áfram leið okkar að BSÍ. Þetta doksi ei skilið fær. Hví máttu þeir ekki bíða í vagninum í sjö mínútur??? Það er alltaf í lagi þegar dr.-inn bíður í 5-7 mínútur á leiðum 28 & 35 í Hamraborginni. Hver er munurinn??? 

Annað verktakafyrirtæki annast akstur á leiðum 28 & 35 en á leið 14. Eru ekki sömu reglur??? Eru ekki allir að keyra fyrir Strætó bs.???


592Hinsvegar man Gylforce-inn vel eptir hinum "geðþekku" vagnstjórum hjá SVK forðum daga. Flestir höpðu þeir viðurnefni eins & Kölski, Hitler, Stalín & Satan & þeir leyfðu manni ALDREI að bíða í vögnunum. 


Kannski eiga SVK & Hagvagnar/Hópbílar meira sameiginlegt að maður hélt í fyrstu.



Vagnverjum úthýst var
vagnstjóri skaust í hægðir.
Úti flugu flygsurnar 
mér fannst við niðurlægðir.




Efsta mynd: whalesmuseum.com
Neðsta mynd: busglobe.com


Lostalíf Lundúna ...

big benHinn svampkenndi & sveimandi dr. Gylforce hefir svifið á skýinu bleika undanfarna daga eptir heimkomuna frá Mekka. Maður lifandi.

Það er eitthvað við Lundúni; allir þessir vagnar, tveggja hæða, liðvagnar & svá litlir snotrir Dennis vagnar. Dr. Gylforce hefir ekki tölu á ferðum sínum í þessa lostafullu borg en merkilegt nokk. Hann hefir aldrei nokkurn tíma notast við jarðlestirnar, einvörðungu vagnana. En ekki hvað???

Dr.-inn ól manninn við Kensington strætí í vesturhluta borgarinnar. Vagnasamgöngurnar þar eru með miklum ágætum hvar urmull þeirra sveima um stræti & torg aukinheldur sem tíðnin er þétt.

12814667_10153523508368348_2977441492142556222_nLeiðir 9,10 & 49 voru aðalleiðir okkar bræðra um lendur Lundúna. Við þurftum aldrei að bíða lengur en í 4 mínútur eptir leiðum 9 & 10 sem er vel ásættanlegt.

Sumar stoppistöðvarnar sýndu hversu langt var í næsta vagn. Slíkt fyrirkomulag væri mjög gott að fá hér í okkar lostfagra leiðakerfi.

Þá eru flestar leiðir hættar að taka við klinki & verða menn að hafa kort & rafrænan búnað á takteinum, vilji þeir notast við vagnana, vini vora.

Meira síðar mínir virðulegu vagnverjar.

Brunum yfir brúna
hjá Benna stóra.
Indælt líf Lundúna
lepjum þar bjóra - í lítravís!!!


Næsta stopp er ...

... Lundúnir :)

Eptir margra ára eyðimerkugöngu kemst dr. Gylforce loksins til Mekka.

Ætli doksi kallinn fari aptur á fjörurnar við hinn tinsvarta draugavagn???


images (1)images


Veikleikar ...

Hinn vinnusami & velmegandi dr. Gylforce hefir verið eins & eilífur augnakarl í vögnunum - vinum vorum - þessa helgina. Nema hvað. 

Dr.-inn sté inn í MAN 305 vagninn funheita á laugardagskvöldinu. Doksa kallinn var farið að lengja eptir því að vagninn færi af stað þegar hann sá að vagnstjórinn var tvístígandi í framhurðinni. Aukinheldur sá dr.-inn að leið 28 var ekki kominn.

Klukkan var orðinn 20:12 & ekkert bólaði á að leið 35 tæki hringinn sinn. Vagninn var orðinn fimm mínútum of seinn auk þess sem vagnstjórar á leiðum 28 & 35 víxla. Þegar annan vagninn vantar eins & gerðist þarna, þá tefst hinn, það gefur augleið. Svo fór að vagnstjórinn fékk nóg af biðinni & tók annan hring á leið 35. Þá var hringleiðin góða, Hamraborg-Hamraborg, orðin um 6 mínútum of sein.


20160217_223434Næsta dag stóð dr.-inn kátur & keikur í Hamraborg okkar Kópvæginga & beið eptir leið 28. Kom þar hinn fallegi VDL-vagn frá Kynnisferðum. Hin viðskotailla vagnstýra var á vaktinni & gaf doksa kallinum illt auga. En ekki hvað???

Stýran sýndi tímaáætlun leiðarinnar litla virðingu hvar hún lagði af stað kl. 15:11 en ekki 15:06. Hún var á spjalli við annan vagnstjóra sem var á leið 35. Sá virti líka tímaáætlanirnar að vettugi & fóru bæði leiðir 28 & 35 af stað klukkan 15:11.

Skamm, skamm verktakar vestur á Kársnesi!

Vaktakerfisveikleikar
verktakanum hjá.
Floppar opt & allt feikar
fjandann er hann að spá???


Svanasöngur Svíans ...???

20140831122736-2aec5c61Hinn vel fléttaði & fágaði dr. Gylforce hefir farið fjölmarga ferðir meðal vina vorra - vagnanna - undanfarin kvöld hvar hann hefir opt & einatt átt unaðslegar stundir. En ekki hvað???

Dr.-inn fór á fjörurnar við leið 11 í gærkvöldi. Fáir vagnverjar voru á ferli enda langt svifið inn í kvöldið. Doksi kallinn komst í kynni við 206 Irisbus & 219 Iveco vagnana frá verktakanum suður í Firði. Þetta voru góðar ferðir & vagnstjórarnir kurteisir með afbrigðum & héldu vel áætlun. Nema hvað.

20140831124022-ba3d2583Það er hinsvegar orðið staðreynd að öngva sænskættaða gæðavagna er lengur að finna á vígvöllum veganna á kvöldin. Einu Svíarnir sem voru á vaktinni eru Volvo-arnir tveir hjá Kynnisferðum á leið 28. Þriðji vagninn á þeirri leið var svo hinn allra athygliverði VDL-vagn.

Því verður ekki neitað að doksi kallinn saknar þeirra. Meira Omnilink takk!



Öngva sænskættaða að sjá
sama hvað ég leita.
Þýðir eru & allir þrá
þessu verður að breyta!

Myndir: citybus.piwigo.com


Vagnstýran viðskotailla ...

20160217_223434Hinn dagfarsprúði & drengilegi dr. Gylforce segir farir sínar ekki sléttar af vagnaferðum sínum. Maður lifandi.

Dr. Gylforce kom með leið 4 frá Hlemmi um kl. 22:33 & ætlaði í leið 35. Þegar hann gekk að stæðinu þar sem sú leið stoppar blasti við það sem sést á myndinni. Hinn funheiti & engilsaxneski 305 MAN vagn var merktur leið 28. Þar með voru tveir vagnar í halarófu með slíkri merkingu. Hvað ætli vagnverji sem ekki opt tekur vagninn hugsi þegar hann sér svona??? Í hvorn vagninn fer hann ef hann ætlar í leið 28??? Það eru ekki allir sem spyrja vagnstjórana.

Dr.-inn stoppaði fyrir framan vagninn & tók mynd af þessu. Vagnstýran var inni í vagninum & hleypti þetta greinilega illu blóði í hana. Doksi steig inn, bauð gott kvöld & sýndi samgöngukortið sitt. Vagnstýran hrifsaði það úr höndum hans & skoðaði það gaumgæfilega. Hún gaf það óbeint í skyn að um falsað eða útrunnið kort væri að ræða. Fauk þá í dr.-inn sem ætlaði góðfúslega að benda henni á að vagninn væri rangt merktur að framan. Hann sleppti því & fékk sér sæti.

20160217_223539Þá blasti við honum að vagninn var merktur að innan á leið 34 einhverra hluta vegna. Aptur tók dr. Gylforce upp símann & tók mynd. Þá kom vagnstýran aptur í vagninn & vændi dr.-inn um að hafa tekið mynd af sér í heimildaleysi. Hún heimtaði að fá að sjá símann sem var auðsótt mál. Doksi útskýrði svo fyrir stýrunni að hann væri bara að taka myndir af vagni sem væri kolvitlaust merktur & hann gæti ekki betur séð en að henni væri slétt sama um það.

Dr.-inn leyfir sér að fullyrða að svona nokkuð hendir ekki þær leiðir sem Strætó bs. keyrir sjálft. Viðvaningsháttur verktaka er alltof mikill að mati dr.´s & eptirlit með þeim virðist vera í molum hjá byggðasamlaginu. Því miður.

Vagnstýran foxill var
vildi hjóla í mig.
Í bræði með buxurnar
lóðbeint niðrum sig.


Lystileg braut ...

20140831121032-31bf2bb2Hinn vel kvittaði & kviki dr. Gylforce kom sér á leið eitt kvöldið hvar það hvessti hressilega & veður voru válynd. Nema hvað.

Það aptraði þó ekki doksa kallinum enda hugði hann á lendur hvar hann hapði ekki heimsótt um langa hríð.

Dr.-inn nam staðar með Crossway vagninum númer 147 á leið 2 við Verzló. Doksi kallinn er óðum að uppgötva þokkalega tengimöguleika við Listabrautina, bæði við Verslunarskólann & Borgarleikhúsið. Þar hefir hann tekið leið 13 vestur í bæ en hugðist nú bæta einum við þrettán.

Dr. Gylforce fýsti í ferðir með leið 14 enda langt um liðið síðan hann komst í kynni við hana. Irisbus Crossway númer 208 leysti 203 af hólmi en allir vagnar á leið þessari koma frá verktanum suður í Firði. 

Dr. Gylforce rann greiðlega með vagninum um Grensás, Langholtsveg, Austurbrún, Laugardal & að lúkningu Hlemmtorg. Það vakti gjörhygli Gylforce-ins hve langt er á milli stoppistöðva, t.d. stoppar leið 14 við Laugardalslaug & svo ekki fyrr en við Tún. Þarna væri gott að fá eitt stopp við Hrísateig eða þar um slóðir. Hvað um það.

Dr.-inn lék kunnugleg stef á heimleiðinni hvar hann endaði í hinum sænskættaða 311 Volvovagni á leið 35 sem færði hann rakleitt í fegurstu laut jarðarinnar, Stútulautina.

Í stormi leiðin lá
um Listabraut.
Ný svæði vildi sjá  
slúttast ferð við laut.


Mynd: citybus.piwigo.com


Páfinn & prjónninn ...

gettingtovatican2Hinn heilaglegi & hugljúfi dr. Gylforce hefir átt í indælu samtali við vagnana - vini vora - undanfarið. Ekki síður hefir doksi kallinn verið í samtali í huganum við fyrrum páfa & hið nána samneyti hans við gifta konu. Ætli hún hafi eitthvað teflt við páfann í heimsóknum sínum til hans??? Hvað um það.

Dr.-inn á alveg eptir að kynna sér vagnana í Vatikaninu & hvur veit að það verði þar næsta ferð út fyrir landsteinana??? Næsta ferðalag dr.´s verður í Mekka Tjallans en langt er um liðið síðan doksi kallinn tók hús á doubledekkerunum í Lundúnum. En ekki hvað??? 

Páfinn & prjónninn

Jóhannes postuli páfi
prjónninn var hans vandi.
Kaþólskur & "lenti" í káfi
við konu í hjónabandi.

Dr. Gylforce hefir skotið sér í góðar ferðir í kvöldin í hinu lostfagra leiðakerfi byggðasamlagsins. Doksi kallinn hefir tekið eptir því að nánast vonlaust er að fá sænskættaða vagna að kvöldlagi fyrir utan verktakann vestur á Kársnesi sem ekur Volvovögnum sínum grimmt. Nema hvað.

Það gladdi því hið gamla hró dr.´s þegar hann sá hinn sænskættaða 101 Scania Omnilink á leið 15 eitt kvöldið. Doksi kallinn rétt náði vagni þessum við Hlemmtorg með því að öskra hástöfum & baða út öllum hugsanlegum limum sínum. Það virkaði & dr. fékk úrvalsferð um Meistaravellina með Svíanum.

En doksi í rambi & ráfi
& röddina sína þandi.
Þótt í Scaniunni skrjáfi
er skrjóður sá freistandi!


Fitlað á ferð ...

866553Hinn réttsýni & raupsami dr. Gylforce randaði á vagnavit í kvöld hvar hann rauk inn í fimm vagna flotta. Nema hvað. Hvað um það. En ekki hvað??? 

Dr.-inn var meðal vagnverja á leiðum 1, 11 & 35 & kynntist því tveimur vögnum á leið 1 sem eru í umsjá Strætó bs., einum vagni á hinni elleftu leið sem runninn er undan rifjum verktakns suður í Firði. Að lúkningu settist doksi kallinn í tvígang í leið 35 - í sænskættaðan - en ábyrgð á henni ber verktakinn Kynnisferðir vestur á Kársnesi. Það var &.

Undanfarið hefir ratað í fjölmiðla að vagnstjórar séu ótt & títt á símanum undir stýri. Tvö tilvik hafa verið hvað háværust síðustu daga en þar hafa vagnverjar gripið vagnstjóra glóðvolga í bælinu vera að fitla við símaskjáinn á ferð. Í báðum tilvikum er um að ræða leiðir sem verktakar annast; leiðir 14 & 28. Tilviljun???

Dr. Gylforce hefir margopt sagt frá því á þessum vettvangi að verktakar í akstri fyrir Strætó bs. mættu vanda sig miklu mun betur við allt er lýtur að akstrinum, þjónustunni, vagnakostinum, tímaáætlunum o.fl.

Það er upplifun doksa að vagnar sem koma frá verktökum eru mun optar skítugri að innan en frá sjálfu byggðasamlaginu, með löngu úreltum upplýsingum, að ekki sé minnst á virðingarleysi vagnstjóra á vegum verktaka fyrir tímaáætlum vagnanna.

Í næsta útboði Strætó bs. á leiðum sínum ætti að árangurstengja greiðslur til verktaka. Ef þeim t.d. tekst að fjölga vagnverjum á leiðum sínum ættu þeir að fá aukagreiðslu aukinheldur sem úttekt þyrfti að gera á þjónustu þeirra.

Þá koma eptirlitsmennirnir enn & aptur til sögunnar. Jóhannes framkvæmdastjóri, hvað er að frétta???  Hvunær sjáum við þá næst að störfum???

Verktakarnir sýna vangá
verjarnir í hættu.
Undir stýri þeir skoða skjá
skammir að fá þeir ættu.


http://www.mbl.is/frettir/innlent/2016/02/14/lagdi_simann_fra_ser_einu_sinni/




Mynd: mbl.is


Hlemmur - Höpði ...

CAM01397Hinn dimmi & fráleitt dreissugi doktor hélt á vit vagna í kvöld hvar hann tók aðallega leið 12 til kostanna. En ekki hvað???

Leið 12 er um margt athygliverð í hinu lostfagra leiðakerfi. Vagnarnir hefja leik við Skeljanes út við flugvöll & aka um Lækjar- & Hlemmtorg, Borgartún, Kirkjusand, Kleppsveg & upp í Mjódd; þaðan tekur leiðin lostafulla rúnt um Breiðholtið, Austurbergið á daginn en hið vestra á kvöldin & svo Árbæjarsafn & að lúkningu endar hún við Breiðhöpða í Ártúninu. Það var &.

Fjórir vagnar ganga þessa leið utan annatíma en klukkan 7-9 & 14-18 tvöfaldast vagnafjöldinn. Í kvöld tóku slaginn 202, 207, 213 & 239 Crossway vagnarnir frá verktakanum suður í Firði. Nema hvað.

20120612031949-cb780b5cDr-inn sté inn í leið 12 við Hlemmtorg & sat í rúman hálftíma með þessari eðalleið. Doksi kallinn fékk 207 Crossway vagninn sér til fulltingis. Hann hepði getað tekið leið 15 eða 18 & verið mun fljótari, jafnvel með leiðum 5 & 6. Hvað um það.

Rúnturinn róaði hið gamla hró doksa enda eigi vanþörf á því þessa dagana. Maður lifandi. 

Upp á Höpða Hlemmi frá
rúm hálftíma ferð
sem að ég mun ávallt þrá
end´af bestu gerð.


Neðri mynd: citybus.piwigo.com


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband