Færsluflokkur: Bloggar

Vaktakerfi vagnstjóra ...

bubbi og dimma 313 (2)

Hinn menningarsnauði en þó mannsami dr. Gylforce hélt á frjádaginn með hinn unga vagnverja að Hamraborg okkar Kópvæginga. Vitaskuld voru þeir feðgar á leið á vit vagna - en ekki hvað???

Dr.-inn spurði hinn unga hvaða vagn hann vildi taka. Kom upp úr þeim stutta að taka aukavagninn á leið 35. Það var auðvitað auðsótt mál.

Hinn ungi & aldni vagnverji mættu við Hálsatorg um kl. 16:09 & vakti það gjörhygli doksa að hinn funheiti 305 MAN vagn á leið 35 var ekki farinn af stað. Allar aðrar leiðir voru hinsvegar búnar að ýta úr vör. Leið nú & beið & hinn gráhærði vagnstjóri með taglið virtist ekki ætla af stað. Hvað var nú það???

20140831122225-10d827a3Það kom svo upp úr dúrnum að það vantaði leið 28. Vagnstjórar á leiðum 28 & 35 rótera alltaf í Hamraborg en nú bar svo við að vagninn á C-vaktinni á leið 28 bilaði. Hvað gera bændur þá??? Þetta þýddi að leið 35 lagði ekki af stað úr Hamraborg fyrr en kl. 16:12.

Á þeim leiðum sem Strætó sjálft, byggðasamlagið, keyrir hefir verið dregið mjög úr því að vagnstjórar séu sífellt að skipta um leið. Þarna kom dæmi um það hversu óheppilegt það kerfi er en vitaskuld eru þetta undantekningartilvik.

20140831123556-b6b86eb6Þrem mínútum síðar kom svo aukavagninn, hinn stutti 156 Heuliez, & skelltu þeir feðgar sér með honum & héldu í fegurstu laut jarðarinnar, Stútulautina.

Vagnstjórinn í vanda
í vagni steig því tví.
Vildi hefjast handa
hossast um borg & bý.


Neðri myndir: citybus.piwigo.com


Gift & gæfa ...

132Hinn fullsæli & fjörugi dr. Gylforce fór heldur betur á fjörurnar við vini vora, vagnana í gær. Nema hvað. Doksi kallinn átti vitaskuld unaðsstundir meða eðal vagna & virðulegra vagnverja. En ekki hvað???

Eitt var þó heldur hvimleitt sem áður hefir reyndar verið minnst hér á. Dr.-inn skellti sér í leið 4 rétt fyrir klukkan tvö & fékk hinn glænýja & glæsta 178 Crossway vagn. Reyndist hann vera um fjórum mínútum of seinn þegar hann kom. Hvað um það. 

Doksi kallinn dreif sig inn & sýndi vagnstjóranum appið í símanum. Stjórinn sá stöðvaði doksa & sagði: "Þú átt ekki að gera þetta svona. Þú átt að hafa símann í hægri hendinni svo ég þurfi ekki að snúa mér til að sjá á skjáinn." Svo tók hann sér góðan tíma í að sýna dr.-num hvernig ætti að gera þetta. Í sjálfu sér á þessi athugasemd rétt á sér en þegar vagninn var núþegar orðinn of seinn er þetta afar furðulegt. Enda þýddi þetta að leið 4 kom heilum 6 mínútum of seint í Hamraborgina, var þar kl. 14:07 í stað kl. 14:01. Dr.-inn rétt náði í skottið á leið 35 en hún á einmitt að fara klukkan 14:07.

Að mati dr.´s eiga vagnstjórar að leggja höfuðáherslu á að keyra vagninn enda er það erfitt & mjög krefjandi starf. Þeir eiga að gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að halda áætlun. Byggðasamlagið á svo að auka veg eptirlitsmanna í vögnunum & geta þeir komið með þessar athugasemdir eins & vagnstjórinn gerði við doksa. Nóg um það.

Dr.-inn einhenti sér í leið 17 að þessu sinni frá Hlemmi. Þar var 132 Citelis vagninn á leið upp í Mjódd & gráupplagt að vera með í för. Eitthvað létu vagnverjar á sér standa í þeirri ferð eins & sjá má í myndskeiðinu hér að neðan. 

Eptir gott starfsdagsstrit
stökk dokorinn af stað. 
Hélt á sitt vagnavit
velliðan - en ekki hvað???


Ráp & rand ...

omnicity 159Hinn reikuli & ráskenndi dr. Gylforce ráfar um í reiðileysi, reytir bakhár sín & skegg, situr friðlaus í sæti sínu hvar hann verður hreinlega að komast á vit vagna. Maður lifandi. Nú er ekkert sem heitir; í vasklegar vagnarannsóknir má doksi kallinn til með að vafra í.

Doksi kallinn mun því fljótlega yfirgefa mennta- & menningarsetrið hér við Kársnes & Kastala & halda í leið 35. Nema hvað.

Dr. Gylforce hefir & tekið eptir að hinn stutti 156 Heuliez vagn byggðasamlagsins er kominn á annatíma á leið 35. Það er vel enda henta slíkir vagnar betur um þröngar kópvægskar koppagrundir. Hvað um það.

Vagnverjinn er viðþolslaus
um vagna er að dreyma.
Langar á rand - ekkert raus
& raunum öllum gleyma.


Aðeins af re.is ...

10297624_10152098004863348_1940116932650226233_n

Hinn fráleitt hangs- & höktandi dr. Gylforce hélt rakleitt á vit vagna í hádeginu hvar hann hugði fylgjast grannt með hvernig nýja vetraráætlun höfuðborgarsvæðisins gengur. Nema hvað.

Dr. Gylforce var reyndar ekki á vappi á annatíma en öngvu að síður var eitt & annað sem vakti athygli hans. 

Doksi kallinn hefir örlitlar áhyggjur af tímaáætlun vagnanna í Hamraborginni. Hann er aðallega að velta vöngum yfir leiðum 1, 2, & 4 úr bænum & á leið í hverfi. Það eru vonbrigði að sjá t.d. leið 2 koma 3 mínútum of seint við Hálsatorgið klukkan 13 þegar hvorki er mikil umferð á vegum né af vagnverjum. Hvernig mun ganga að fylgja áætluninni eptir í vetur þegar hálka & snjór kemur???

IMG_3712& annað sem áður hefir hér verið tæpt á. Nokkrum vagnstjórum Kynnisferða, re.is, er aka leiðum 28 & 35 hér í Voginum, er fyrirmunað að leggja af stað á réttum tíma úr Hamraborginni. Það er með öllu óásættanlegt að mati dr.´s að báðar leiðirnar séu að skríða af stað klukkan 13:11 í stað kl. 13:07 eins & gerðist í dag.

Öngvin sjáanleg ástæða var fyrir töfinni nema það að vagnstjórarnir voru að spjalla hvor við annan. Stundum eru þeir reyndar að svæla í sig einni sígó eða svo & leggja því of seint af stað. 

Vonandi sjá forvígismenn byggðasamlagið þetta & bregðast við. Svo væri fínt að sjá eptirlitsmennina fara aptur á stjá. Þeir gætu nóterað þetta niður.

Það er mikilvægt að vagnarnir haldi áætlun & vagnstjórar ættu að hafa þann metnað að gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að svo sé.

Doktornum er nú ekki um sel
endalaust droll í smók.
Góðu vagnstjórar, gjöriði svo vel
gyrðiði ykkur í brók!


Ýmsir á auka ...

20140831123450-f1bcdeb6Hinn huskni & hugsunarlausi dr. Gylforce hefir fylgst af gjörhygli með aukavögnunum á leið 35 síðan vetraráætlun hófst. Nema hvað.

Það sem af er hefir byggðasamlagið Strætó sent langa vagna til að aka um kópvægskar koppagrundir. Hér hefir sænska stálið 113 Omnilink verið sem & hinn gænýi & glæsti 154 Iveco Crossway.

Í morgun var komið að 143 Irisbus Crossway vagninum. Doksi kallinn tók einn léttan hring með vagninum en hepði haldið að hann ætti að taka slaginn á leið 18 & 154 væri best nýttur á leið 6.

20140831123607-807e065eÞað virðist vera að hinir stuttu Irisbus Heuliez séu annaðhvort komnir yfir móðuna miklu eða hafa verið sendir á aðrar leiðir. Hvað um það. Þetta þarf dr. Gylforce að kanna - en ekki hvað???

Rússagrýlan raunin er
ráðherrarnir farlama.
Vaskur ég í vagna fer
um viðskipti slétt sama.

Sjáum svá í lokin majorska vagnverja vera að athafna sig í borginni Palma. Það er algerlega unaðslegt að taka vagninn á þessari litlu & snotru eyju - mæli með því mínir hávelbornu vagnverjar!




 


Myndir: citybus.piwigo.com


Ess-bé-ká ...

CAM01564[1]Hinn nápíndi & nískubrandi dr. Gylforce hefir náð að berja augun nýja vagna á leið 55. Það er vel & fagnaðarefni. 

Leið 55 ekur ýmist frá Firði eða BSÍ að Leifsstöð & hefir hinn keflvíski verktaki SBK séð um aksturinn.

Í fyrstu voru vagnarnir hvítir líkt & rútur þeirra SBK manna en fyrir nokkrum vikum komu blá/gulu vagnarnir á stjá. Hefir verktakinn fengið 700 númerin & er Iveco Crossway vagninn á myndinni númer 703.

Það er mikilvægt að allir landsbyggðavagnar séu eins á litinn en því miður sést ein & ein hvít rúta á leiðinni norður & austur. 

Nýja vagna notast við
notalegir eru.
Ég meira nú ekk´um bið
& alls ekki kóleru!


Krafs, rót & fálm ...

CAM01624Hinn vel hneigði & hyggjusami dr. Gylforce hefir loksins loksins skriðið úr sumarhýði sínu & hafið bloggstörf að nýju. Heyr, heyr!

Vitaskuld hefir doksi kallinn tekið vagnana grimmt í sumar þótt staðið hafi á aktíviteti á lyklaborðinu. Maður lifandi.

Dr.-inn hefir alið manninn í vögnum höfuðborgarsvæðisins, á Suðurlandi sem & í henni Mæjorka.

del-que-Palma-TIB-no_ARAIMA20140825_0037_1Á hinni litlu & fallegu eyju Majorca við Miðjarðarhaf var vagnakerfið með miklum ágætum. Það kemur svo sem ekki á óvart hvar það er sniðið að þörfum ferðamanna, allavega þar sem dr.-inn dvaldi. Nema hvað. Vagnarnir voru hvítir með bláum & grænum röndum á þýsku ströndinni en gulir & rauðir inn í borginni Palma. 

Dr. Gylforce kynnti sér hina íðulfögru MB Citaro, bæði 2ja & 3ja hásinga. Doksi kallinn tók aðallega leiðir 15, 21 & 25. Tvær þeirra fyrrnefndu buðu upp á þýska stálið en leið 25 var í umsjón Irisbus Citelis, 3ja hásinga enda hraðferð frá ströndinni að borginni Palma & optast sneisafull. Hvað um það.



Doksi loksins hefir leik
leggst í vagnastúss.
Vetraráætlun komin á kreik
- kneyfum öl & sjúss!




Smá þrugl ...



Hinn vel ballanseraði & bljúgi dr. Gylforce hefir lítt verið við lyklaborðið hvar sumar & sól hefir verið í kortunum hér á höfuðborgarsvæðinu. Maður lifandi.

Vitaskuld hefir hinn aldni vagnverji verið meðal vina sinna, vagnanna. Í blæðandi morgunsárinu tók doksi kallinn hina taktföstu tvennd; leið 4 & 35. 

Það voru afar fáir í hinum glænýja & glæsta 179 Crossway vagni á leið 4 í morgun. Sumarið er að ná hámarki & vagnverjar komnir að öllum líkindum út um hvipp & hvapp. Vagninn varð fljótt galtómur & minnti dr.-inn helst á þegar hann var í vögnunum hér fyrir um 10-12 árum. Þá létu vagnverjar á sér standa.




Verktakinn í vestri hefir lagt hinum engilsaxnesku MAN 304 & 305 vögnum & býður okkur upp á sænskættaða vagna á leið 35.

Dr.-inn sá hinsvegar út um gluggann á einum slíkum að vagnstjóri á leið 1 var heldur ringlaður í Hamraborginni. Hann lagði vagni sínum við stæðið á leið 4 & sat þar sem fastast hvar hann loks kveikti á perunni.

Mjódd ...

CAM01529[1]

Byggðasamlagið hefir loksins tekið af skarið & bætt aðgengi vagna & vagnverja upp í Mjódd. Stæði fyrir leið 11 hefir verið breytt & það sett í rétta aksturstefnu við þá leið. Þetta þarf líka að gera á Hlemmi við nokkrar leðir eins & t.a.m. leiðir 1, 3, & 6 að mati dr.´s. Hvað um það.


Þá stoppar leið 17 á nýjum stað á leið í bæðinn sem er vel. Það þýðir að aðeins þrjár leiðir stöðva á "hepðbundnum" stað, gegnt innganginum. Það eru leiðir 3, 4 & 12.

Gangbrautir hafa verið málaðar sem eykur öryggi okkar vagnverja & setur mun betri brag á Mjódd þeirra Breiðhyltinga. 

Hjá Breiðhyltingum allt er breytt
betra & skipulegra.
Unaður þarna út í eitt
allt til að fegra.

CAM01533[1]


Rígbundið & reyrt ...

35jjmglHinn svínbundni & súrraði dr. Gylforce var heldur betur í solli & þys á brúðkaupsafmæli sínu hvar hann gekk svo daginn eptir fráleitt hnarreistur & mátti sjá karlangann vel gegnsæjan og glæran skjögra milli vagna eins & hinn versti afturkreistingur og eymingi. Maður lifandi. 

Dr. Gylforce gekk reikull í hringleiðina um Voginn, leið 35, & fékk hinn engilsaxneska MAN vagn sér til fulltingis. Aðeins tveir vagnverjar voru um borð, frá Vottum jehóva, sem voru í hrókasamræðum um hina heilögu tölu sjö. Doksi skeytti því í öngvu en fannst eins & tvær vel búttaðar nunnur sæti fyrir aptan þá. Sennilega hefir dr.-inn bara fengið þá félaga, delerium & tremens í heimsókn. Hvað um það.

Vottar, verjar & nunnur
í vögnum æ & sí.
Á degi þjóðar þunnur
þrammandi vagna í.

Dr. Gylforce hefir tekið tækninni fagnandi hvað vagnamál varðar & lætur nú vart sitt app úr hendi sleppa, þ.e. strætóappið. Doksi kallinn hóaði í leiðina er bindur leiðakerfið að mestu saman, leið 24, við Dalveginn & sveif með henni að Mjódd þeirra Breiðhyltinga.

Í Mjóddinni er loksins búið að skipuleggja & merkja mun betur hvar hver leið á að stoppa, hvar vér vagnverjar eigum að ganga yfir götuna. Meir um það síðar. 

Dr.-inn lék sín kunnuglegu stef frá Mjóddinni hvar hann lauk leik við fegurstu laut jarðarkringlunnar, Stútulautina.

Má ég heyra AMEN???


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband