Færsluflokkur: Bloggar
Hinn goðmagna & goðsagnakenndi dr. Gylforce greip í litla vagnverjann í morgun & var ekki lengi að valhoppa með þann stutta út að biðstöðinni við Stútulautina. Von bráðar kom þar askvaðandi hinn sænskættaði 308 Volvovagn á leið 35 & gladdi það hið gamla hró dr.´s hve margir vagnverjar voru um borð svona snemmindis.
Hinir fjörugu feðgar tóku eðalhring með Svíanum hvar þeir svá áðu við Hálsatorg okkar Kópvæginga.
Friðsælt hlé er Hálsatorg
heimkynni vagna.
Heiðurstorg við Hamraborg
háborg goðsagna.
Þá gerðist það. Hratt en örugglega. Hinn spánnýi & spennandi VDL-vagn á leið 28 kom aðvífandi. Vagn þessi var kosin "vagn ársins" árið 2011 & skal það öngvan undra. Hann virkar mjög stílhreint & traustvekjandi á doksa kallinn & bíður hann nú í ofvæni eptir því að einhenda sér inn í vagninn til frekari rannsókna.
Bloggar | 15.2.2014 | 22:00 (breytt kl. 22:14) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

Það bárust döpur tíðindi nú síðdegis hvar tveir eðal sænskættaðir 3ja hásinga Volvo-vagnar nudduðust saman rétt áður en þeir ætluðu að beygja inn á Gömlu-Hringbrautina.
Betur fór en á horpðist í fyrstu; öngvin slys, hvorki á vagnstjórum né vagnverjum. Rúður brotnuðu í báðum vögnunum & þurfa þeir efalítið á hvíld að halda frá vígvöllum veganna í einhverja daga.
Vonandi koma þeir sem fyrst aptur enda eru 3ja hásingavagnar byggðasamlagsins - sem eru sjö talsins - mjög mikilvægir á leiðum 1 & 6 á annatíma.
Myndir: DV ehf / Þormar V Gunnarsson
Bloggar | 13.2.2014 | 21:53 (breytt kl. 22:01) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

Vagninn leysir hinn sænskættaða 307 vagn af hólmi & fær sama númer. Búið er að gera hann fagurgulan & öngvu líkara en að hann sé spánnýr & spennandi!
Því miður hefir doksi kallinn ekki hitt á hann ennþá en hlakkar ógurliga til þegar það & gerist. Hann hefir aukinheldur heyrt nokkra Hörðuvellinga láta mjög vel af vagni þessum & er því óbærilegt til þess að huxa að dr.-inn steinliggi heima með pest meðan þessi djásn vokir um vígvelli veganna. Maður lifandi.
vokir um Kór & Þing.
Mynd: Karl Emilsson
Bloggar | 13.2.2014 | 13:35 (breytt kl. 13:42) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Dr. Gylforce átti í miklu & góðu sambandi við hinn sænskættaða 110 Omnilink vagn er ók leið 1 af miklum myndarskap þetta annars ágæta laugardagskvöld.
Þegar dr.-inn hapði lokið sér af við að kneyfa ölið af unun & áfergju hófust mikil & tíð blíðubrögð við vagnana á vígvöllum veganna. Doksi kallinn settist opt í leið 1, leið 4, leið 35 aukinheldur sem leið 28 kom við sögu.
Í sænskættuðu sæti
sat dr.-inn hinn mæti.
Eptir svall, sukk & læti
hópst strætisvagnablæti.
Dr.-inn hefir eigi lengur tölu á vögnum sínum enda var hertoginn af Stútulaut orðinn slompaður vel & fagnaði ógurliga hvar hann fangaði að lúkningu leið 35 & hélt rakleitt með henni í fegurstu laut jarðarinnar, Stútulautina.
Bloggar | 11.2.2014 | 20:17 (breytt 12.2.2014 kl. 19:19) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

Ó já, mínir virðulegu vagnverjar. Hinn heilaga þrennd, - leið 28 - leið 4 - leið 35, skal & tekin & vera vel ekin.
Eptir skólaskvaldrið
skal í vagna haldið.
Þrenndin títt & tekin
trauðla er hér spekin!
Bloggar | 3.2.2014 | 14:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hinn frækni & freknótti dr. Gylforce fagnaði mjög er hann frétti að nýr vagn væri á leið á vígvelli veganna frá kópvægska verktakanum Kynnisferðum.
Þeir munu kynna til sögunnar eðal VDL Citea vagn en vér vagnverjar höfum eigi séð þá í akstri fyrir byggðasamlagið svo doksi kallinn viti til.
Að öllum likindum mun VDL vagninn aka á leið 28 en hann leysir af hólmi hinn "eldhressa" sænskættaða 307 Volvovagn sem kom bókstaflega brunandi upp á þá hörðustu á síðasta ári & er nú gjörónýtur.
Hlakka til að heyra skell
í hurðunum á þessum.
Á vígvöllunum Vaff-Dé-ELL
við hann nú öll blessum!
Mynd: Karl Emilsson
Bloggar | 30.1.2014 | 21:29 (breytt kl. 21:31) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

Dr.-inn hefir þrásetið í leið 35 hvar þar hefir ekið hinn sænskættaði 302 Volvovagn þeirra Kynnisferða. Hinir engilsaxnesku 304 & 305 hafa hvíldina fengið undanfarna daga en verða örugglega komnir á vígvöllinn áður en langt um líður.
Í fréttum á dögunum kom fram að enn fjölgar okkur vagnverjum. Það er vitaskuld gleðiefni mikið & dylst öngvum sem í vögnunum situr; mun fleiri eru á ferli nú en t.d. fyrir um tíu árum síðan. Man doksi kallinn vel eptir æði mörgum ferðum hvar hann var eini vagnverjinn í langan tíma. Hvað um það.
Þeysandi um þéttbýlið
með þýðum vagnverjum.
Bíðandi við biðskýlið:
Brátt á vagn við herjum.
Svá var það að einum vagni var ei til setunnar boðið í Mjódd þeirra Breiðhyltinga. Sá fýsti ei í tímajöfnun & rauk af stað án vagnstjóra & -verja.
Sjá meira hér - http://www.mbl.is/frettir/innlent/2014/01/28/mannlaus_straeto_rann_af_stad/
Dr.-inn veit nú eigi hverjum lá svona mikið á að komast aptur á vígvellina en gott var að öngvin skyldi hafa slasast alvarlega í þessum hildarleik.
Bloggar | 29.1.2014 | 10:21 (breytt 30.1.2014 kl. 21:40) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)

Allt var þetta samkvæmt skruddunni góðu & gafst doksa kallinum tóm til að stunda hugarrok & þankahríð í vögnum þessum. Dr.-inn hefir verið einstaklega lunkinn við að hreppa 140 Crossway vagninn á leið 4 & sat með honum frá Mjódd að Hamraborginni háu & fögru þennan annars ágæta mánudag.
Urmull vagnverja var um borð í meginlandsvagninum sem leið þýðlega um gulu & gráu götu Smiðjuhverfisins & voru aksturseiginleikar vagnsins óviðjafnanlegir á Nýbýla-, Álfhóls- & Digranesveginum unz hann staðnæmdist við Hamraborgina.
Á kópvægskri grundu skeiðaði dr.-inn inn í hinn engilsaxneska á leið 35 & hélt rakleitt í lautina fögru.
Gylforce er skrýtinn og sköllóttur karl,
Bloggar | 15.1.2014 | 12:29 (breytt kl. 21:58) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)

Dr. Gylforce bugtaði sig & beygði fyrir Crossway meginlandsvagninum á leið 4 í Mjódd þeirra Breiðhyltinga í síðustu viku & neitaði með öllu að fara út þegar vagninn var kominn yfir á kópvægskri grundu. Doksi kallinn hélt rakleitt með vagninum alla leið að endastöð við Hlemmtorg & fór unaðshrollur um hann á torginu er hann glápti & gíndi yfir vögnunum.
Eptir eptirgrennslan & ítarlega talningu á vögnum & vagnverjum sté hinn stolti dr. inn í 189 vagninn á leið 1 & hélt upp að Hamraborg okkar Kópvæginga. Þar lék hann kunnuglegt stef & skáskaut sér í ferð með hinum engilsaxneska MAN vagni á leið 35. Doksi kallinn ýtti þéttingsfast - en þó fimlega - á stanzrofann er sá breski nálgaðist fegurstu laut jarðarinnar, Stútulautina.
Mynd: http://citybus.piwigo.com
Bloggar | 13.1.2014 | 09:20 (breytt kl. 09:22) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ekki hefir það gert ferðir dr.´s verri hér í Voginum með MAN vögnunum að frú Gylforce hefir ávallt verið með í för. Ekki amalegt maður lifande ...
Að lúkningu er ekki úr vegi að skella inn mynd af fyrsta liðvagni sem kom hingað upp á skerið. Hann var til reynslu & hvarf svo aptur á braut eptir nokkrar ferðir. Doksi kallinn man nú ekki hvaðan myndin er & biðst velvirðingar á því.
En fallegur er hann þessi þýskættaði fyrsti liðvagn. Á því leikur & öngvin vafi.

Bloggar | 4.1.2014 | 22:57 (breytt kl. 23:00) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Sept. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.9.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 26
- Frá upphafi: 124123
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar