Færsluflokkur: Bloggar

Það gladdi hró dr.´s í Mjódd þeirra Breiðhyltinga hvar þar var á stæði hinn sænskættaði 109 Scania Omnilink á leið 4. Doksi kallinn var nýbúinn að bugta sig & beygja fyrir hinum sænskættaða 309 Volvo á leið 28 & valhoppaði því í snarhasti inn í hina fjórðu leið. Nema hvað.
Það voru heldur fleiri vagnverjar á ferli í dag en í gær & vagninn því ekki jafn eyðilegur nú.
Ekki minnkaði gleðin er dr. Gylforce kom við í Hamraborg okkar Kópvæginga; blasti þar við sænskættaður eðall á leið 35 & þrennd dr.´s breyttist um hæl í þrenningarhátíð hina mestu.
Meira svona!
drattast í sínar leiðir.
& taumlaust Maxið freyðir.
Bloggar | 18.3.2014 | 22:31 (breytt kl. 22:36) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

Dr.-inn sat í sænskættuðum Volvo-vagni meðal nokkurra vagnverja frá Hörðuvöllum að Mjódd þeirra Breiðhyltinga. Eptir það tók við óvenjuleg upplifun. Dr.-inn réðst til inngöngu í leið 4 & var eini vagnverjinn drjúga stund. Ár & dagur er síðan það gerðist síðast ef frá eru taldar ferðir snemmindis um helgar eða mjög seint um kvöld í hverfaleiðum.
Doktor er í ferðum frómur
ferðast um laut & dal.
Þessa viku er vagninn tómur
vantar allt ungdómshjal.
Hvað um það. Dr.-inn áði við Hamraborg okkar Kópvæginga & hófst strax handa við stúdíur á hérvist okkar vagnverjanna. Nema hvað.
Bloggar | 18.3.2014 | 08:55 (breytt kl. 08:58) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

alla vagna í síma.
Dr.-inn gerði sitt ítrasta til þess að komast í hinn spánnýja & spennandi VDL-vagn á leið 28 um helgina & tókst það í tvígang. Nokk vel gert. Hann sveif með þessu töfravagni tvisvar sinnum að Mjódd þeirra Breiðhyltinga. Þar sá doksi kallinn í fyrra skiptið fyrsta Crossway-vagn þeirra Fjarðarmanna, 201 vagninn á leið 11 & einhenti sér um borð.

Dr. Gylforce hapði & litla vagnverjann með sér við helgarrannsóknirnar sínar. Er þeir feðgar sáu hinn stutta 159 Heuliezvagn á leið 17 voru þeir & sammála. Inn skyldi haldið. Í þessum snotru vögnum er breitt sæti sem hentar mjög vel fyrir litla & stóra vagnverjann. Héldu þeir & með Heuliezvagninum að Mjóddinni eptir stuttan en góðan stanz í hinum eina & rétta miðbæ þeirra Reykvíkinga.
Frá Mjódd að Hörðuvöllum kemur aðeins ein leið til greina. Leið leiðanna - leið 28. Hinn sænskættaði 310 vagn var á vachtinni & flutti þá feðga farsællega upp á þá hörðustu hvar þeir dvelja nú um stundir vegna mikilla framkvæmda í Stútulautinni.
Efri mynd: citybus.piwigo.com
Neðri mynd: http://www.saltks.is/
Bloggar | 17.3.2014 | 11:51 (breytt kl. 11:52) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

Doksi kallinn gekk hröðum skrefum að biðstöðinni upp við Hörðuvellina hvar hann sá hinn spánnýja & spennandi VDL-vagn á vachtinni á leið 28; kynsysturnar kátína & kæti svömluðu um hæl um hið spikfeita sálartetur doksa. Hvað um það.
þaut hann af stað.
Doktorinn í drykkjunni
dátt - nema hvað???
Eptir unaðshring með hinum spánnýja 307 var röðin komin að 140 meginlands Crossway vagninum á leið 4. Dr.-inn endasentist með honum um Neðra-Breiðholt, Efra-Breiðholt, Smiðjuveginn - grá gata/gul gata/Golgata, Nýbýlin, Álfhólinn & að lúkningu um hið digra nes. Nema hvað.
Eptir þessa aukinheldur yndishringi tvo æpti hið gamla hró innra með sér: Meira, meira ...
Bloggar | 11.3.2014 | 21:18 (breytt kl. 21:32) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

Hinn eðlilegi & óþvingaði dr. Gylforce var maður eigi einsamall hvar hann boðaði þing hér í námunda við Hörðuvelli. Nema hvað. Doksi kallinn & hapði litla vagnverjann sér til fulltingis. Er þeir sáu hinn spánnýja & spennandi VDL-vagn koma á leið 28 biðu þeir öngvra boða.
Þeir feðgar gengu dreissugir & dramblátir um borð & hófu þegar talningu á vagnverjum & rannsóknir á innviðum vagnsins. Nema hvað. Um 10 vagnverjar stóðu sína plikt & áttu innstigin í vagninn eptir að tvöfalda þá tölu.
Þegar vagninn áði við Hamraborg okkar Kópvæginga vorum vér einhvörðungu þrír eptir & héldu sá gamli & litli þegar í næsta verkefni sem var meginlandsvagn númer 140 á leið 4.
Vagnstjórinn á leið 4 var ekkert að hafa fyrir því að bjóða þeim feðgum góðan dag heldur nikkaði kollinum & gaf þeim merki um að setjast hið snarasta. Svá ók hann nokkuð hart & stirrt að Mjódd þeirra Breiðhyltinga.
Víða var verjinn í Mjóddinni & urmull af vögnum. Dr.-inn skráði þetta allt samviskusamlega niður & sá litli æpti "eins" á suma vagna & á aðra "ekki eins". Greinilegt er á öllu að þeim stutta hefir tekist afar vel til að tileinka sér vagnarannsóknir á örskömmum tíma.
Dr. Gylforce rak lox sín haukfráu augu í hinn sænskættaða 303 vagn á leið 28. Ekki spillti fyrir að kynþokkafyllsta vagnstýran hélt - þéttingsfast en þó fimlega - um stýrið & ljóst var á öllu að ferð þessi gat eigi klikkað. Aukinheldur var gaman að fá enn & aptur að sitja í vöffunum tveimur; VDL & Volvo. Nema hvað.
Loforðin stóðu stóru
stemmning vögnum í.
Hringinn sinn feðgar fóru
& fengu vöffin tví.
Bloggar | 7.3.2014 | 22:59 (breytt 11.3.2014 kl. 09:11) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

Eptir deig, rjóma & sukk drattaðist dr.-inn í vagnana upp á þeim hörðustu & er óhætt að segja að ákaflega vel hafi borið í veiði. Nema hvað.
Þegar tímann vantaði um fjórðung í þrjú kom aðvífandi lánsvagn frá þeim Fjarðarmönnum á leið 28. En ekki hvað? Hinn snotri Karosa 265 vagn tók kópvægskan slag á vígvöllum veganna & var virkilega gaman að sitja í honum alla leið að Mjódd þeirra Breiðhyltinga.
Dr. Gylforce var í þekktri þrennd hvar hann hóaði í 106 Omnilink vagninn á leið 4 & hapði gaman af því að snúa hlutverkunum við, meginlandsvagn á leið 28 & hinn sænskættaði vaktaði leið 4. Optast nær er því öfugt farið.
Dr.-inn sótti litla vagnverjann & arkaði með hann að Hálsatorgi okkar Kópvæginga. Þar var hann. Í öllu sínu veldi mínir virðulegu vagnverjar. Hinn spánnýi & spennandi 307 VDL-vagn var á leið 28 & einhentu feðgarnir sér inn í vagninn & sátu sem fastast einn eðalhring um kópvægskar koppagrundir. Nema hvað.
dásemd er feðgaflakk.
Bollurnar hann borðaði
Mynd: http://citybus.piwigo.com/
Bloggar | 3.3.2014 | 21:21 (breytt 11.3.2014 kl. 21:27) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það er ekki laust við að hinn meskni & maskni dr. Gylforce sé mæðulegur þessa dagana & engist upp í angist af & til. Ástæðan? Jú, sjáið til mínir virðulegu vagnverjar.
Hinir engilsaxnesku stuttu MAN vagnar þeirra Kynnisferða, 304 & 305, hafa heldur betur fengið hvíldina á kópvægskum vígvöllum veganna undanfarið.
Doksi kallinn er nánast farinn að sakna þeirra & skilur eigi hvað hafi komið fyrir þá báða. Þetta eru einu vagnarnir sem dr.-inn veit um sem eru ávallt heitir & hlýir að innan & því mikilvægt að sjá þá á kópvægskum koppagrundum yfir kaldasta vetrartímann. Hvað um það.
Vonandi hressast þeir fljótt & snúa aptur á leið 35 hér í Voginum.
Funheitir & ferðbúnir
fallegir að vanda.
Á vígvöllum vélknúnir
vagnverjum til handa.
Mynd: citybus.piwigo.com
Bloggar | 26.2.2014 | 16:20 (breytt kl. 16:32) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
![CAM00337[1] CAM00337[1]](/tn/250/users/c3/gylforce/img/cam00337_1.jpg)
Hvílík gleði - hvílík spenna!
Doksi kallinn þreif undireins í litla vagnverjann & nánast réðst til inngöngu. Vagnstjórinn er vel varinn í vagninum með öryggisgleri en því eigum vér vagnverja ekki að venjast hér. Aukinheldur reyndist VDL-vagninn þýður & mjúkur en örlítið hávær miðað við að vera nýlegur. Hvað um það.
Litli & stóri vagnverjinn sátu vonglaðir & væntnir í vagninum & fundu fyrir mikilli væntumþykju honum til handa. Þeir neyddust að lúkningu til að fara út úr vagninum & hóuðu í kjölfarið i hinn sænskættaða Volvo-vagn sem einnig var á leið 28.
![CAM00389[1] CAM00389[1]](/tn/250/users/c3/gylforce/img/cam00389_1.jpg)
Nú er bara að bíða eptir næstu ferð með VDL-vagninum mínir virðulegu vagnverjar.
án þess að koksa.
Öngvin eru í strætó ströff
fyrir stoltan doksa.
Bloggar | 25.2.2014 | 09:17 (breytt kl. 09:30) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Dr.-inn sté stórlátur inn í leið 28 um níuleytið í morgun við Salalaug & freistaði þess að setjast inn í dýrðina. Svo varð nú ekki, því miður. VDL-vagninn virðist aðeins aka á annatíma & missti doksi því af honum enn & aptur. Hvað um það.
Þess í stað fékk dr.-inn hinn sænskættaða 306 vagn & leið með honum á leið, alla leið að Mjódd þeirra Breiðhyltinga. Dr.-num var svá eigi þar til setu boðið & fékk 308 vagninn til baka úr Mjóddinni áleiðis að Hörðuvöllum.
Ævintýr með Vaff-Dé-Ell verða því enn að bíða um sinn en hve lengi? Hve lengi???
Óheppnin eltir doksa nú
aldrei í nýjan kemst.
Allsgáður situr & edrú
& afmaxaður fremst.
Mynd: http://citybus.piwigo.com
Bloggar | 19.2.2014 | 16:25 (breytt kl. 16:43) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hinn nægjusami & nálegi dr. Gylforce naut sín til hins ítrasta í vögnunum í gær hvar hann tók litla vagnverjann með sér. Að þessu sinni hófu þeir feðgar leik upp við Hörðuvelli & enduðu vitaskuld í fegurstu laut jarðarinnar, Stútulautinni. Nema hvað.
Dr.-inn gerði hvað hann gat til að hremma hinn spánnýja & spennandi VDL-vagn á leið 28 síðdegis í gær en allt kom fyrir ekki. Því miður. Öngvu að síður fengu feðgarnir öndvegis sænskættaðan eðalvagn sem færði þá fagurlega að Mjódd þeirra Breiðhyltinga.
Í Mjóddinni kom urmull vagna & átti bæði litli & stóri vagnverjinn fullt í fangi með að skrá niður & stúdera alla þá vagna er aðvífandi komu. Það var gaman að sjá þar 237 & 238 vagnana á leiðum 12 & 28 en þessir munaðarfullu meginlandsvagnar tóku eitt sinn slaginn á leið 1. Hvað um það.Þeir kumpánar einhentu sér næst inn í hinn stutta 159 Heuliezvagn á leið 4. Þar gat doksi kallinn loxins setið í víða & breiða sætinu fyrir aptan apturhurðina sem virðist vera hannað fyrir einn lítinn & einn stóran vagnverja.
Þeir svifu með þeim stutta um gulu & gráu götu Skemmuvegs & alla leið að Hamraborg okkar Kópvæginga. Þar gengu þeir rakleitt inn í Náttúrusafnið & skoðuðu fiskana, krabbana & öll hin dýrin.
Að lúkningu hóuðu þeir feðgar í leið 35 sem þessa dagana er ekinn af sænsku stáli & spígsporuðu svo í laut hinnar miklu fegurðar.
Með vagninum vítt & breitt
í víðu & góðu sæti.
Sá guli keyrir fráleitt greitt
& gleðin í kaupbæti!
Bloggar | 18.2.2014 | 09:11 (breytt kl. 14:02) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Sept. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.9.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 25
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 25
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar