Færsluflokkur: Bílar og akstur
Eptirlitið aptur af stað
óprúttna á herja
svo þeir geti eigi aftrað
unaði vagnverja
Eptirlitsmenn aptur til starfa
Ánægjuleg tíðindi berast nú frá Strætó bs. þess efnis að eptirlitsmennirnar munu hefja aptur störf á næsta ári með auknar & betri heimildir. En ekki hvað???
Eptirlitið er enn til staðar í dag en dr.-inn verður nú að viðurkenna að það er ansi langt síðan hann sá einn slíkan að störfum. Illu heilli.Byggðasamlagið áætlar að um 200 milljónir tapist vegna falsana þótt erfitt sé að segja til um umfangið. Fyrir nokkrum misserum komst upp um svik á níu mánaða korti frá Strætó & má ætla að ýmsir falsaðir miðar & kort séu í umferð, því miður.
Strætó hyggst fá leyfi til þess að sekta þá sem nota slíkt sem þekkist vitaskuld afar vel í nágrannalöndum okkar.
Vonandi nær byggðasamlagið að kveða skúrkana í kútinn enda afar sorglegt þegar reynt er að svindla á sameiginlegri þjónustu sem greidd er með skattfé.
Yfir&út!
Bílar og akstur | 20.2.2020 | 16:13 (breytt kl. 16:13) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Á randi mínu rakst á leið
sem reyndist stoppa á laun.
Eptir henni þar bófi beið
brunar hún á Litla-Hraun?
Dr. Gylforce rak í rogastans í Mjódd okkar Breiðhyltinga, hvar þar kom leið sem hann vissi ekki að stoppaði þar. Nema hvað.
Leið númer 22 merkt "Hraun" stansaði & hleypti nokkrum vagnverjum út aukinheldur sem einn gerði sig líklegan til þess að fara inn.En hvaða leið var þetta? Hraun? Hvar eru Hraun? Já, nú skilur doksi, er þetta vagn á Litla-Hraun???
Ef svo er, hepði þá ekki vera betra að hafa hann blágulan líkt & vagnar sem keyra úr höfuðborginni áleiðis út á land???
Bílar og akstur | 18.2.2020 | 09:04 (breytt kl. 09:13) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Á ferðinni hann kann sitt fag
fagmannlegur sem áður.
Hleð ég nú í brogaðan brag
best að vera allsgáður.
Dr. Gylforce hélt edrú & allsgáður til vagna sinna þennan fyrsta vinnudag vikunnar.
Dr.-inn var hepðbundinn í vagna- & leiðavali sínu & eins & sjá má voru bífur dr.´s til friðs að þessu sinni enda vel setið af vagnverjum í þristinum. Nema hvað.
Dr.-inn hapði hug á að komast í hvítu metanvíkingana en sá þá ekki að þessu sinni.
Gengur bara betur næst.
Bílar og akstur | 17.2.2020 | 21:44 (breytt kl. 21:45) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nánast einn í vagni var
voru öngvin læti.
Böðlaðist með bífurnar
upp í blátt sæti.
Dr. Gylforce einhenti sér í fyrirtaks vagnaferðir á frjádaginn eptir fárviðrið mikla, hvar fáir reyndust á ferli & ferðir með allra rólegasta móti. Nema hvað.
Aldrei þess vant sýndi dr.-inn af sér dólgslega framkomu & dómgreindarleysi í vagninum, hvar hann vippaði annarri bífu sinni í sætið á rafvagninum & dormaði nánast á leið. En ekki hvað???
Gylforce-inn var ekki til fyrirmyndar þarna enda hapði hann kneyfað ölið en lofar að þetta hendi hann aldrei aptur.
Aldrei!
Amen.
Bílar og akstur | 16.2.2020 | 21:19 (breytt 17.2.2020 kl. 08:13) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vagnverjar & landsmenn allir fóru ekki varhluta af aftakaveðrinu sem geisaði á sjálfan Valentínusardaginn. Maður lifandi!
Strætó aflýsti öllum ferðum í gærmorgun en hóf svo akstur um hádegisbilið, góðu heilli fyrir oss vagnverja.Margt gekk á í fárviðrinu & fékk t.d. þetta strætóskýli við Sundlaugina á Seltjarnarnesinu að kenna á því. Það fór á hliðina en vonandi er búið að koma því á réttan kjöl.
Eptir fok það fór á hlið
fokk & ekkert spaug!
Bölvanleg er nú bið
á biðstöð við sundlaug.
Yfir&út!
Bílar og akstur | 15.2.2020 | 19:59 (breytt kl. 20:01) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ekki þarf bíl að brúka
ef bruna þarf út.
Í umferðinni að húka
við endum niðurlút.
Bíllaus lífsstíll
Hér að ofan er fyrirtaksgrein um ágæti þess að nota aðra samgöngumáta heldur en einkabílinn. Viðkomandi hefir verið án bifreiðar í 18 mánuði & tekið vagninn grimmt & líkað það vel. En ekki hvað???
Það er jú byrjunin.
Dr. Gylforce hefir einmitt ljáð máls á þessu hér & hvatt fólk hvarvetna í hvívetna til þess að hafa ferðamáta sína sem fjölbreyttasta.
Höfum það í huga; það þarf ekki að fara allar ferðir sínar með óvininum því vagnarnir eru vinir okkar!
Bílar og akstur | 14.2.2020 | 08:55 (breytt kl. 08:56) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Stórgóð keppni fer af stað
stemmning eins& sportið.
Vagnverja fyrir - nema hvað
sem vinna árskortið.
Nafnasamkeppni
Mínir virðulegu vagnverjar!
Nú er röðin komin að ykkur. Nafnasamkeppni á heildar greiðslukerfi sem Strætó hyggst koma á legg er hafin. Eins & segir í frétt frá Strætó mun nýja greiðslukerfið veita aðgang í Strætó á höfuðborgarsvæðinu og Borgarlínu. Aukinheldur eru áætlanir uppi um að kerfið greiði leið að fleiri vistvænum samgöngumátum eins og hjólaleigum og deilibílum og jafnvel enn frekari þjónustu í framtíðinni.
Fyrirmyndir af korti þessu eru t.d. frá London með Oyster-kortinu, Rejsekort í Kaupmannahöfn og OV-chipkaart í Amsterdam.
Koma svo vagnverjar - leggið höfuðið í bleyti & komið upp með skemmtilegt nafn.
Illu heilli getur dr. Gylforce ekki tekið þátt í þessu hvar hann situr í dómnefndinni. Og verðlaunin eru ekki af verri endanum - árskort í unaðinum - maður lifandi!
Bílar og akstur | 13.2.2020 | 08:14 (breytt kl. 09:04) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Loftslagskvíði leitar á
landsmenn - ekki skrýtið.
Ferðamáti til & frá
frekar breytist lítið.
Loftslagskvíði
Í fréttum Ríkissjónvarpsins um helgina kom nokk merkilegt fram hvar fréttamaður fór á stúfana & spurði fólk um loftslagskvíða og ferðamáta.Þar kom fram að töluverður hluti fólks hefir áhyggjur af loftslagsmálum. Aukinheldur var vísað í könnun hvar fram kemur að um fimmtungur landsmanna ber nokkurn kvíðboga varðandi þessi mál.
Öngvu að síður hapði enginn viðmælandi fréttastofu breytt ferðavenjum sínum. Kannski er það ekki skrýtið en svo virðist sem illa gangi að fá höfuðborgarbúa til þess að nota t.d. almenningssamgöngur. Hlutfall ferða hefir staðið í stað um alllangt skeið, er aðeins um 4% af öllum ferðum, og virðist ganga erfiðlega að hækka þá tölu.
Strætó bs. er vitaskuld meðvitað um þetta og hefir hafið sókn með nýju leiðaneti sem er í vinnslu samfara hinni margumtöluðu Borgarlínu.
Vonandi verður breyting á þessu á næstu árum & áratugum enda fátt í boði annað en að hvetja almenning til þess að ferðast á sem fjölbreyttastan hátt.
Bílar og akstur | 12.2.2020 | 11:01 (breytt kl. 11:02) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Annar hvítur kominn hér
keyrir um á metan.
Sænskættaður eðall er
umhverfisvæn er setan.
Strætó bs. hefir sett í umferð annan hvítan metanvagn handa oss vagnverjum & umhverfinu til heilla. Nema hvað.Byggðasamlagið hefir því þrjá umhverfisvæna metanvagna til umráða - einn heldur gamlan - ásamt rafvögnunum fjórtán úr Austri.
Samt sem áður er alltof fáir vagnar í þessum flokki eða aðeins um 11-12%; gera þarf gangskör í því að fjölga vögnum þessum & veit dr. Gylforce að stjórn samlagsins er því sammála. Á þessu ári er ætlunin að gefa vel í varðandi endurnýjun vagnaflotans & vonandi ber forvígismönnum Strætós gæfa til þess að festa eingöngu fjár í vistvænum vögnum. En ekki hvað???Aukinheldur er það allra athyglisvert að hvorugur verktakinn sem annast akstur fyrir Strætó sér hag sinn í að nota umhverfisvæna vagna. Af hverju ætli það sé???
Hvað sem því líður hyggst dr. Gylforce fara á fjörurnar við hinn nýja hvíta víking eins fljótt & kostur er.
Amen.
Bílar og akstur | 11.2.2020 | 13:27 (breytt kl. 13:29) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það var einkar vel til fundið hjá Kvikmyndasafni Íslands & Hafnarfjarðarbæ að bjóða upp á bílabíó á Safnanóttinni.
Enn betra var að hafa forláta strætisvagn til taks fyrir þá sem ekki voru á einkabílnum - óvininum - en vildu koma & upplifa þessa skemmtilegu stemmningu. Sýndar voru myndirnar Stuttur frakki og Sódóma Reykjavík & hepði nú dr. Gylforce mikið viljað vera þarna en það tókst ekki að þessu sinni. Illu heilli.
Vonandi verður þetta endurtekið með vagninum svá doksi kallinn geti komið, setið & notið mynda í botn í unaðslegum strætisvagni.
Bílabíó á Safnanátt
bus-inn góð hugmynd.
Kók & popp, á hjalla kátt
komst þó ekki - synd!
Yfir&út!
Bílar og akstur | 10.2.2020 | 07:36 (breytt kl. 08:23) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Jan. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar