Færsluflokkur: Lífstíll
Mórall í molum???
Styr er meðal stjóra
stemmningu áfátt.
Þeir ættu nú að þjóra
þá er von um sátt.Dr. Gylforce hepði nær haldið að best væri fyrir framkvæmdastjóra byggðasamlagsins & mannauðsstjórann að finna þessar óánægjuraddir sem fram koma í ofanverðri frétt & hefja samtalið í snarhasti. Maður lifandi!
Hjá Strætó & verktökum þess starfa á sjötta hundrað starfsmanna & ljóst að eitt & annað gengur á í dagsins önn. Nema hvað. Það gerist örugglega á öllum vinnustöðum með þennan starfsmannafjölda - & þarf hann líklega ekki til.
Hinsvegar er dapurlegt til þess að vita að ef kergja kemur upp rjúki starfsmenn með gögn í blaðamenn í stað þess að leysa málið innanhúss. Slík vinnubrögð eru fáum til framdráttar.
Aukinheldur er það heldur ódýr útskýring hjá framkvæmdastjóranum að málið sé persónubundið eins & kemur fram í fréttinni. Hann á vitaskuld að einhenda sér í að leysa málið eins fljótt & auðið er.
Koma svooooooo - verum öll gul & glöð á nýju ári & tilbúin að rata hinn gula meðalveg!
Lífstíll | 29.12.2019 | 17:44 (breytt kl. 17:46) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gjaldskrárhækkun
Tombóluverð, það tel ég víst
trauðla er að djóka.
Unaður sem alltaf þú kýst
útkoman er sem jóga.Í vagninum ég friðinn finn
fer með honum víða.
Andleg næring dælist inn
- eins& að detta í´ða.
Strætó bs. hefir tilkynnt hækkun á gjaldskrá um liðlega 2% um áramótin eins & líklega flest fyrirtæki & stofnanir munu gera.
Stakt fargjald með unaðinum verður því 480 kr. & mun hækka um 10 kr.
Fyrir nokkrum misserum ákvað stjórn byggðasamlagsins að fylgja verðlagsþróun í landinu & hækka gjaldið reglulega í stað þess að halda því niðri lon & don, springa svo á limminu & hækka duglega með tilheyrandi harmakveini.
Yfir&út!
Lífstíll | 27.12.2019 | 16:48 (breytt kl. 16:50) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bráðum kemur Benzinn okkar
eða bljúgur Ivecó.
Inn í þeim er alltaf fallegt;
afslöppun & hugarró.
Bráðum kemur Benzinn okkar
eða brosleg Scania.
Inn í þeim er alltaf fallegt:
öngvin fokking manía!
Hvurnig vagn jú veit nú öngvin
sem vísa mun okkur heim.
En eitt er víst að alltaf verður
ákaflega ljúft í þeim.
Lífstíll | 21.12.2019 | 15:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Frétta- & blaðamennska nú á dögum virðist ganga mikið út á að fjölmiðlamenn sitja yfir samfélagsmiðlum, finna þar jafnvel forvitnilegar - en furðulegar - færslur frá alls kyns fólki, kanna heldur lítið fleiri en eina hlið á málefninu & slengja þessu síðan út í kosmósinn.
Viðurstyggilegur vagnstjóri???
Með barn undir belti
brjálaður er pabbi.
Vagnstjóri hana hrelldi
hann er nú kúkalabbi.
Þetta er bara beisikk - allir vagnverjar fara út að aptan!!!
Mynd: mbl.is/hari
Lífstíll | 18.12.2019 | 23:47 (breytt kl. 23:48) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Næturvagn er vinarþel
viljir þú lengi djamma.
Hverfisgötu keyra vel
þú kneyfar ölið ramma.
Næturvagnar um Hverfisgötu á ný
Í nátt hefja næturleiðir Strætó akstur um Hverfisgötuna á nýjan leik. Góðu heilli & verður fróðlegt að vita hvort það komi ekki til með að mælast vel fyrir hjá nátthrafna- & djammaravagnverjum. Nema hvað.
Illu heilli hefir dr. Gylforce ekki enn skellt sér í næturvagninn. Það er slök frammistaða sem hann verður að gera bragarbót á. Doksi kallinn á sér engar málsbætur; verður bara að hysja upp um sig & kanna stuðið & stemmninguna í næturakstrinum.
Koma svoooo - rífðu þig í gang dr.!!!
Lífstíll | 13.12.2019 | 23:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Framundan er fárviðri
fara vagnar lítið.
Liggur þeirra net niðri
næstu ferðir í bítið.
OfsaveðurÞað stefnir í verulegar truflanir hjá vinum vorum - vögnunum - í dag, hvar Veðurstofa Íslands gerir ráð fyrir ofsaveðri síðdegis.
Landsbyggðavagnarnir blágulu verða ekkert á ferðinni eptir hádegið & hinn fagurguli höfuðborgarvagn mun efalítið lenda í miklum vandræðum eptir kl. 15 ganga spárnar eptir.
Það er því um að gera að koma sér til síns heima fyrir þann tíma; fá sér heitt kakó, kveikja á kertum & hafa það kósý fyrir framan gott strætóblogg :) meðan veðrahamurinn lýkur sér af.
Lífstíll | 10.12.2019 | 08:38 (breytt 13.12.2019 kl. 23:05) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um Hverfisgötu keyra
kætir doktorinn.
Mun ég nú fara meira
niðrí miðbæinn.Hinn bísperrti & fráleitt brjálsami dr. Gylforce beið öngvra boða hvíldardag þennan, hvar hann brá sér rakleitt í vagn niður Hverfisgötuna. En ekki hvað???
Upp og niður Hverfisgötu á ný
Gylforce-inn tók tólfuna að þessu sinni en frá & með deginum í dag munu leiðir 1, 6, 11, 12, 13 & 14 aka um Hverfisgötu í stað Sæbrautar.
Þessu ber að fagna. Nú verður mun skemmtilegra að fara í miðbæinn, sérstaklega í desember & upplifa stemmninguna.Vögnunum virtist ganga vel að aka um nýuppgerða götuna sem er vel því opt & tíðum reyndist hún þröng hér áður fyrr.
Dr. Gylforce hlakkar til næstu ferða um þessa einu af höfuðgötum miðbæjarins & vonandi velur doksi kallinn aðrar leiðir en þá tólftu.
Yfir&út!
Lífstíll | 8.12.2019 | 20:43 (breytt kl. 20:45) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Held ég senn á vagnavit
verjanna á meðal.
Þægilega í þristi sit
þetta verður eðal!Með fjarkanum glaður fer
um Fell í Breiðholti.
Farþeginn þar fjölmargt sér
er fyllir hann stolti.
Hinn bænheyrði & blessaði dr. Gylforce brá sér lox af bæ, hvar hann hitti fyrir leiðir 3 & 4. Nema hvað.Eptir að hafa setið vel að sumbli, aftaninn verarlanga, var komið að því að halda á vit vagna - en ekki hvað???
Það gladdi hið gamla hró dr. Gylforce hvar raðnúmerin 176, 177 & 178 voru á vachtinni á leið 3 þetta svala en þó fagra laugardagskvöld.
Rafvagnar sáust aðeins á leið 4 hvar dr. Gylforce náði þeim ekki - illu heilli. Aðeins náði hann í skottið á 174 Iveco Crossway vagni. Hvað um það.
Á morgun, sunnudaginn 8. desmeber, hefja vinir vorir - vagnarnir - aptur ferðir niður Hverfisgötuna sem er mikið fagnaðarefni. Dr.-inn verður efalítið með í för á einhverjum leiðum. En ekki hvað???
Hipp-hipp-húrrey!!!
Lífstíll | 7.12.2019 | 22:45 (breytt kl. 22:50) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þrásinnis ég vonandi verð
í vögnunum glaður.
Nú Hverfisgata er nýuppgerð
- nautnalegur staður!Oflátungurinn & ofvitinn dr. Gylforce er yfir sig hrifinn, hvar loksins hillir undir að vinir vorir - vagnarnir - aki um Hverfisgötuna á nýjan leik.
Samkvæmt yfirlýsingu frá Strætó hefja sex leiðir akstur um eina að höfuðgötum borgarinnar 8. desember nk. Það er vel.
Hverfi skatan á ný
Leiðir 1, 6, 11, 12, 13 & 14 koma til með að keyra upp & niður Hverfisgötu. Sums staðar er gatan þröng & því mikilvægt að fara varlega þegar vagnarnir mætast. Nema hvað.
Leið 3 - leið doktorsins - heldur áfram að aka Sæbrautina enda nauðsynlegt að einhver strætisvagnaleið stoppi sem næst hinni fögru Hörpu.
Amen.
Lífstíll | 30.11.2019 | 08:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tíu nýir rafvagnarStjórn byggðasamlagsins hefir greinilega gert upp hug sinn varðandi hvurnig vagna eigi að fjárfesta í á næsta ári. Það munu rafvagnar vera. Gleðilegt. Maður
lifandi.
Til landsins koma þeir tíu
tilhlökkun er mér hjá.
Nautn að þeir séu ei níu
njóta mun þeirra - ójá!
Stjórnin hefir rúmlega 500 milljónir úr að moða & með skattívilnunum & niðurfellingu á ýmsum gjöldum stefnir í að þeir fjármunir dugi til þess að kaupa tíu rafvagna. Jibbíkóla!Dr. Gylforce vonar að reynslu rafvagninn, hinn glæsti Mercedes Benz vagn, sem er hér um þessar mundir, komi vel út & sé líklegur á vígvelli veganna á hinu herrans ári 2020. Hvur veit???
Líklegra er þó að haldið verði áfram að fjárfesta í vögnunum úr Austri enda væntanlega hagkvæmara að vera með færri tegundir en fleiri í notkun í einu hvað viðhald & varahluti varðar.
Jæja - yfir&út!
Lífstíll | 29.11.2019 | 16:19 (breytt kl. 16:21) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Ágúst 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.8.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 30
- Frá upphafi: 124031
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar