Færsluflokkur: Lífstíll
Átjánda er áætlun ný
öll við þá fögnum.
Förum út um borg & bý
brunandi í vögnum.
Sumaráætlun
Hið þrælmagnaða þríeyki Almannavarna hefir tekist að halda hinum skæða faraldri það vel í skefjum undanfarna daga að byggðasamlagið hefir loksins ákveðið að fjölga ferðum vagnanna. Góðu heilli.
Í mörgum fjölmiðlum er talað um að óskert tíðni verði frá & með 18. maí næstkomandi. Það er ekki alveg rétt því í sumaráætluninni aka þrjár leiðir, 18, 24 & 28 á hálftímafresti en ekki korters.
Hvað um það. Dr.-inn hlakkar mikið til að fá vini sína - vagnana - aptur á almennilega tíðni aukinheldur sem það hentar honum líka betur að láta ekki leiðir 35 & 36 leggja af stað á sama tíma úr Hamraborginni háu & fögru.
Yfir&út!
Lífstíll | 13.5.2020 | 19:55 (breytt kl. 20:22) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það bar vel í veiði hjá dr. Gylforce dag þennan hvar hann komst bæði í rafvagn úr Austri & metanvagn frá Svíaríki. Góður dagur þetta - maður lifandi!
Hinn hreyfingarlétti & kviki dr. Gylforce ráfaði um í reiðileysi við Hlemmtorgið & var vart á þeim buxunum að sogast inn í unaðinn. Öðru nær.
En þegar dr.-inn sá hins vegar hvíta víkinginn á leið 18 valhoppaði hann í snarhasti að aptari hurð vagnsins & skundaði rakleitt inn. En ekki hvað???
Skipti þá öngvu hvurt haldið skyldi. Ó-nei.
Við Ártúnið tók dr. Gylforce ákvörðun um að skipta um vagn, gekk að rennu vagna er í miðborgina ætluðu & kom sér í rafvagn.
& viti menn - líka á leið 18. Þvílíkur eðaldagur!
Magnað raf & metan
magnað tvíeyki.
Hér er sæl setan
sannur tærleiki.
Lífstíll | 6.5.2020 | 22:36 (breytt kl. 22:40) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Klappað & klárt verður senn
greiðslukerfi vagna.
Viðmót fínt & viti menn
verjar munu fagna.
Klappað og klárt
Strætó bs. hefir kynnt & ákveðið nafn á nýtt greiðslukerfi í vini vora - vagnana - sem ráðgert er að hleypa af stokkunum í upphafi næsta árs.
Nafnið á greiðslukerfið er stutt, grípandi & skemmtilegt; einfaldlega Klapp.
Með Klappinu verður jafn einfalt að greiða í vagnana eins & þegar maður fer út í búð. Aukinheldur verður það ekki verkefni vagnstjóra að fylgjast með greiðslum heldur eiga þeir fyrst & fremst að huga að akstrinum & halda áætlun.
Dr.-inn fagnar því ógurliga enda fátt meira sem hefir farið í taugarnar á honum & vagnstjórar sem tefja vagninn með því að tuða í vagnverjum yfir því að það vanti eitthvað smá klink upp á greiðslu. Nema hvað.
Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem byggðasamlagið ýtir greiðslukerfi úr vör. Ó, nei. Fyrri tilraunir hafa mistekist hrapallega & umtalsverðu almannafé verið kastað á glæ. Illu heilli.
Klappið er hinsvegar að skandinavískri fyrirmynd & mun efalítið reynast vel enda hefir það verið raunin á hinum norðurlöndunum.
Vagnverjar geta því farið að taka gleði sína & hlakkað til næsta árs þegar þeir hafa í lófa Klappið.
Eitt lófaklapp fyrir því!
Lífstíll | 2.5.2020 | 23:19 (breytt kl. 23:22) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Við undanþágu þiggjum nú
& þjótum með vagni.
Aukin tíðni upp úr þrjú
með unaðsrafmagni.
Undanþága
Gleðifregnir berast nú frá ráðuneyti heilbrigðismála hvar byggðasamlagið hefir fengið undanþágu frá fjarlægðartakmörkunum - hinni svokölluðu tveggja metra reglu - frá & með 4. maí næstkomandi.
Enn eru þó fjöldatakmarkanir í vögnum vorum en miðast nú við þrjátíu vagnverja. Aukinheldur verður fremsta hurðin lokuð enn um sinn & vagnverjar beðnir um að sýna kort sín með sama hætti & áður.
Aukin tíðni verður á leið leiðanna, leið 1, á annatíma bæði morgna & síðdegis. Verður leið þessi þá á 15 mínútna tíðni sem er gleðilegt þótt venjulega komi hún á tíu mínútna fresti. Hvað um það.
Leik- & grunnskólakort verða ekki í gildi enda erfitt að koma stórum hópum í vagnana þegar einungis 30 mega vera þar samtímis. En ekki hvað???
Vonandi taka vagnverjar við sér enda virðist faraldurinn í nokkurri rénun sem er einkar ánægjulegt. Kannski verður hægt að koma leiðakerfinu í eðlilegt horf í sumar - hvur veit???
Lífstíll | 30.4.2020 | 19:54 (breytt kl. 19:57) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Blaðrið á bloggsíðunni
byrjar nú í hlýju.
Brunaði í blíðunni
í bæinn að nýju.
Dr. Gylforce hefir gert sér glaða daga í glaðasólskininu undanfarið, hvar heldur fátt hefir verið af vagnverjum. Illu heilli.
Þó var ein undantekning á því. Dr.-inn mjakaði sér í miðbæinn með leið 3 hvar gott bil var milli verja eins og vera ber. Þá var dr.-num hugsað til þess að gott hepði verið líka ef Vera væri ber. Hvað um það.
Heimleiðin var ekki eins hugguleg hvar annatími var & því fullmargir verjar á ferð miðað við tveggja metra millibilsregluna:
Tveggja metra millibil
maður fær ei spörk.
Í vagninum ég sko vil
virða þessi mörk.
Það verður aukinheldur fróðlegt að sjá hvernig gengur að viðhalda henni þessa dagana en Strætó bs. hefir kallað út aukavagna, aðallega á morgnana, til þess að reyna að virða fjarlægðarmörkin.
Yfir&út!
Lífstíll | 29.4.2020 | 16:40 (breytt kl. 16:41) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Línunnar leggur fyrsti
lostfagur að sjá.
Ég algjörlega mig missti
mig langar henn´að ná.
Línan lostfagra
Fyrsti hluti Borgarlínunnar var kynntur formlega í gær. Um er að ræða 13 kílómetra leið frá Hamraborg að Ártúnsholti (og öfugt) með 25 stoppistöðvum, þar af 5 svokölluðum kjarnastöðvum.
Fimm kjarnastöðvar verða í þessum fyrsta legg; Hamraborg, BSÍ, Lækjartorg, Hlemmur & Vogabyggð. Þar verður auðvelt að skipta úr línunni yfir í hefðbundna vagna aukinheldur sem stutt á að vera í verslanir og þjónustu. Nema hvað.
Það er vel til fundið að fara með línuna um fjölmennt verslunar- & þjónustusvæði eins og Suðurlandsbraut, Múla & Skeifuna í stað þess að láta hana líða t.d. um Miklubrautina áleiðis upp í Ártún. Sú leið kemur efalítið síðar.
Ef vel á takast með þetta fyrsta spor verður að hafa þétta tíðni að mati dr.´s. Í sumum skýrslum um Borgarlínuna er að finna hugmyndir um að hafa hana á tveggja mínútna fresti á ákveðnum svæðum á annatíma.
Það er vel & verður vonandi að veruleika. Annars staðar sér maður tíma eins 5-7 mínútur á milli vagna á álagstímum.
Hvað sem því líður er fátt því til fyrirstöðu að leið þessi verði komin á fulla ferð einhvern tíma á árinu 2023.
Sá er hér párar getur vart beðið!!!
Lífstíll | 25.4.2020 | 10:18 (breytt 28.4.2020 kl. 17:27) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ekki feitan gölt að flá
fyrir augun að berja.
Doktorinn sat & sá
sárafáa vagnverja.
Dr. Gylforce var loksins með í för meðal vina vorra - vagnanna - hvar hann hitti fyrir fáa vagnverja á leiðum sínum. Nema hvað.
Framkvæmdastjóri byggðasamlagsins getur ekki verið upplitsdjarfur þessi dægrin frekar en margir aðrir stjórnendur stofnana & fyrirtækja. Strætó bs. sér fram á allt að 600 milljóna króna minni tekjur á þessu ári & skerta þjónustu langt fram á sumar. Illu heilli.
Aukinheldur er stefnt að því að leiðakerfið verði komið í eðlilegt horf um miðjan ágústmánuð en þangað til verðum vér að þreyja þorrann & sætta oss við 30 mínútna tíðnina.
Dr. Gylforce fékk t.a.m. sérferð með leið 17 frá Hlemmi að Mjódd okkar Breiðhyltinga rétt fyrir kvöldmatarleytið.
Í ljósi þessara aðstæðna hefir stjórn Strætós tekið þá ákvörðun að fresta kaupum á nýjum vögnum & er doktorinn ákaflega sorgmæddur yfir því; niðurbrotinn eiginlega en vonast eptir því að nýir vagnar komi fljótlega á næsta ári.
Amen.
Lífstíll | 24.4.2020 | 19:09 (breytt 25.4.2020 kl. 10:27) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kjarnastöðvar koma inn
kætist ég nú pínu.
Fiðringinn nú þegar finn
fyrir Borgarlínu.
Í Borgarlínunni verður stoppistöðvum skipt í tvennt; kjarnastöðvar & aðrar stöðvar.
Ein kjarnastöð verður í fyrsta áfanganum í Voginum fagra, staðsett í Hamraborginni. Aðstaða & aðgengi þar verður mun betra fyrir oss vagnverja en annars staðar aukinheldur sem við kjarnastöð eiga bæði strætisvagnar & Borgarlínan að stoppa & gott pláss á að vera fyrir reiðhjól.
Auk þess er stefnt að því að þétta byggð í námunda við stöðvarnar, hafa verslanir & þjónustu innan seilingar & jafnvel bílastæðahús.
Í því sambandi er vert að minnast áætlana Kópavogsbæjar um mikið byggingamagn í hjarta Kópavogs. Töluverð andstaða er um þær fyrirætlanir & verður fróðlegt að sjá hvernig því máli framvindur.
Meira um það síðar.
Gleðilegt sumar vagnverjar!
Lífstíll | 23.4.2020 | 10:39 (breytt kl. 10:40) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Borgarlínan breiðist út
breytast okkar ferðir.
Munu stúrir setj´upp stút
stöðumælaverðir???
Þrátt fyrir faraldur, farsótt & fár halda samgönguverkfræðingar Borgarlínunnar ótrauðir áfram verki sínu, hvar þeir gáfu út á dögunum athyglisverða skýrslu.
Nema hvað.
Verk- og matslýsing Borgarlínu
Margt er allra athyglivert í skýrslu þessari. Ein mesta áskorun sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í skipulagsmálum er efalítið að reyna að breyta ferðavenjum innan höfuðborgarsvæðisins, stuðla að orkuskiptum í samgöngum og draga úr kolefnisspori samgangna.
Gera þarf almenningssamgöngur eftirsóknarverðar með öflugu þjónustustigi (með þéttri tíðni), sérrými í gatnakerfinu & góða flutningsgetu með umhverfisvænum vögnum. Allt þetta hefir Borgarlínan.
Þá er aukinheldur fróðlegt að sjá að fyrsti áfangi línunnar, þ.e. Hamraborg-Ártún leiðin í gegnum Kársnes, BSÍ, Lækjartorg, Hlemm, Suðurlandsbraut & Voga á að vera tilbúin árið 2023.
Á næsta ári eiga því breytingar varðandi aðalskipulag Reykjavíkur & Kópavogs að vera lokið & þá ekkert því til fyrirstöðu að hefja útboð og framkvæmdir.
Takk fyrir túkall!
Lífstíll | 21.4.2020 | 12:45 (breytt kl. 12:46) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Aukaferðum við fögnum
fyrir landsbyggð.
Verjar mínir í vögnum:
Vegferðin er tryggð.
Fleiri ferðir hjá 57
Eins & vagnverjar ugglaust vita aka bæði vagnar á höfuðborgarsvæðinu & á landsbyggðinni samkvæmt laugardagsáætlun virka daga vegna kórónufaraldursins. Því miður.
Þó hefir verið ákveðið að bæta tveimur ferðum við leið 57 sem er fagnaðarefni. Er þar um að ræða ferðir frá Akranesi & Borgarnesi snemmindis á leið í höfuðborgina.
Akstur þessi hefst í fyrramálið & vonandi taka vagnverjar vel í þessar aukaferðir.
Amen.
Lífstíll | 19.4.2020 | 13:30 (breytt kl. 18:20) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 4
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 119307
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar