Ferð Freyjudagsins ...

7Hinn göfuglyndi & gjafmildi dr. Gylforce hefir af því bæði gagn & gaman að taka vagna á föstudags- & laugardagskvöldum. Nema hvað.

Optar en ekki er rólegt í vögnunum á þessum tíma sem hentar Gylforce-num stundum ágætlega.

Doksi kallinn rölti yfir til Kópvæginga eitt indælt frjádagskvöld & tók leið 2 við Salaveginn. Vagninn var á leið í Mjódd okkar Breiðhyltinga með um 10 vagnverja sem var í raun óvenjulegur fjöldi. 

112Þegar betur var að gáð voru allir vagnverjarnir, utan doksa, af erlendu bergi brotnir. Dr.-inn skipti um vagn í Mjódd & hugði á ferð í Fjörðinn með leið 21.

Hugmyndin var að nema staðar í Firði & ganga með Göflurum en ekki þó ganga af göflunum. Vonandi ekki!  

Góðu heilli voru flóttamennirnir tíu á sömu leið og dr.-inn. Af þeim voru sex hressir krakkar sem héldu uppi stuðinu alla leið. Þrátt fyrir ys & þys í vagninum gaf þetta doksa kallinum hugarró & hugljúfa ferð á þessu ljúfa frjádagskveldi. 

flottamennAmen.

Hugarró var í unaðsferð
út í Hafnarfirði.
Með flóttafólki af bestu gerð
sem fráleitt er byrði.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband