Á randi & flandri ...

66602530 2226690280733889 3647696397139968000 nSá guli okkur sparar spöl
spóka ég mig í vagni.
Sit í honum ef indælis öl
ég teyg´í miklu magni.

Hinn fyrrum rauðbirkni & ratvísi dr. Gylforce hefir ráð undir rifi hverju & rjátlaðist loxins á vit vagna. Nema hvað.

Rafvagnar voru fyrirferðarmiklir á kvöldvachtinni. Það gladdi hið gamla hró dr.´s að sjá alla fjóra vagnana á fjarkanum vera hljóðláta & umhverfisvæna. En ekki hvað???

31460773 10155643512463348 5792576195446964224 nÞetta þýddi urmul af þrásetum í þessum geðþekku rafvögnum sem ættaðir eru frá kommúnistunum í Austri & voru ferðir þessar hvorki þurrtruntulegar né þungsóttar, heldur uppfullar af andagift & unaði. Hvað um það.

Það var ákaflega gott að komast á ný á vit vagna & mun dr. Gylforce efalítið verða sem eilífur augnakarl í vinum vorum á morgun.

Góðar stundir - í vögnunum.

Amen.



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband