Hinn fráleitt lubbalegi & lumpni dr. Gylforce fékk á fimmtudaginn eins ólíka vagnstjóra & huxast getur á leiðum tveim. Nema hvað.
Áður hefir verið fjallað um dusilmennið á leið 4 hvar hann gat ekki ýtt á einn takka & hleypt dr.-num inn. Vesalings karleplið. Hvað um það.
Dr.-inn hélt í Spöng þeirra Grafvæginga með leið 6 frá Hlemmi þegar hann hapði jafnað sig á hörmungarferðinni með leið 4.Dr. Gylforce leit á nýju byggðina sem risið hefir á örksömmum tíma við Spöngina. Íbúar í þeim eru lukkunnar pamfílar hvar þeir hafa ágætistengistöð - Spöngina - beint fyrir utan hjá sér. Vonandi færa þeir sér það vel í nyt. En ekki hvað???
Dr. Gylforce datt í lukkupottinn á heimleiðinni hvar hann hóaði í 340 Crossway vagninn á leið 24. Vagnstjórinn var hinn kurteisasti & spjallaði heilmikið við dr.-inn í tímajöfnun sinni. Vel gert hjá Kynnisferðum, sem annast þessa leið, að ráða slíkan öðling til starfa.
Skondinn og skrafhreifinn
skemmtilegur var fír.
Annað en eymings kveifin
sem alls ekki var hýr.
& þvílíkur munur á vagnstjórum - algert himinn & haf. Maður lifandi!!!
Doktorinn er gugginn og grár
gjarnan vill í vagna.
Undir húfu er fátt um hár
húðin byrjuð að flagna.
Samgöngur | 25.5.2019 | 18:11 (breytt kl. 18:23) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Við stýrið mikil mannleysa
sem var meðvitundarlaus.
Vagnstjóra kát´ & kurteisa
kýs ég heldur en rasshaus.
Aldrei þess vant segir Stútulautardoktorinn, Herrn Gylforce, farir sínar eigi sléttar með vinum vorum, vögnunum í þessari einmunablíðu sem lék um höfuðborgarsvæðið í dag - maður lifandi!
Dr. Gylforce var seinn fyrir í Hamraborgina háu & fögru, hvar hann vildi inn í leið 4 áleiðis að Mjódd okkar Breiðhyltinga. Dr.-inn hljóp & mætti á slaginu 36 mínútur yfir heila tímann en þá leggur vagninn einmitt úr vör.
Dr.-inn náði á slaginu & bankaði á framdyrnar á 136 Irisbus-inum sem var á leið 4. & hvað gerðist? Vagnstjórinn var í sama mund að snúa stýrinu & líta í hliðarspegilinn. Hann sneri sér að dr.-num, leit á hann sem snöggvast & brunaði svá af stað!!!
Vagnstjóranum var í lófa lagið að opna hurðina & hleypa dr.-num inn; hepði tafið för vagnsins um 5 sekúndur.
Vel má vera að í verklagsreglum Strætós eigi ekki að hleypa vagnverjum inn eptir að vagn er farinn af stað en slíkt var einfaldlega ekki uppi á teningnum í þessu tilfelli.Gylforce-inn missti því af ferð þessari en vissi að sami vagn yrði í Hamraborginni um klukkustund síðar eptir ferð í Mjóddina & hring um Breiðholtið. Doksi kallinn skellti sér því í skeggsnyrtingu á meðan & ætlaði svá að lesa vagnstjóranum pistilinn á leið 4 - en ekki hvað???
Þvilík mígandi mannleysa!
& það stóð heima. Vagninn áði í Hamraborg klukkutíma síðar en í millitíðinni hapði dr. Gylforce gerst miskunnarsamur vagnverji, róað sig niður & lét nægja að gefa sköllótta vagnstjóranum með sítt skegg & speglasólgleraugu aðeins illt auga í þetta skiptið.
En ruglið hélt áfram. Leið 4 rauk af stað úr Hamraborginni 34 mínútur yfir heila tímann sem er einni mínutu of snemma. Dr.-inn sá verjana hlaupa á eptir vagninum & ætlaði hann heldur betur að öskra á vagnstjórann. Hvur fjandinn gengur hér á???
Vagnstjórinn varð fyrri til að stöðva - góðu heilli - & hleypa verjunum inn. Svá brunaði hann af stað líkt & öngvinn væri morgundagurinn & var mættur á mettíma að Hlemmtorginu.
Já, þvílík mígandi mannleysa.
Samgöngur | 23.5.2019 | 20:09 (breytt kl. 20:28) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mér sýnist þetta mjakast
mikilvægt er og þannig
ætlar þetta að takast
að komast á næsta stig.
Línan mjakast áfram
Það gleður hið gamla hró Gylforce-ins að lesa um að ríki & sveitarfélög standi nú í samningaviðræðum um fjármögnun á Borgarlínunni margumtöluðu.Áætlað er að kostnaður við fyrsta áfanga er um 43 milljarðar. Það er mikið fé en líklegt er að stofnvegaframkvæmdir séu inn í þeirra tölu. Ráðgert er að hefjast handa við Borgarlínuna í Hamraborg, leiða hana vestur um Borgarholtsbraut & að öllum líkindum gera hana að einstefnugötu, yfir fyrirhugaða Fossvogsbrú áleiðis í miðbæinn.
Síðan er á stefnan sett á línu frá miðbænum að Ártúni hvar ráðgert er að koma á föt veglegri tengistöð með góðu aðgengi fyrir gangandi vegfarendur, bifreiðar, reiðhjól, strætisvagna og vitaskuld Borgarlínuna.
Aukinheldur kemur fram í spjalli við Dag borgarstjóra í frétt sem fylgir pistli þessum, að heildarkostnaður við Borgarlínuna og stofnvegaframkvæmdir kemur til með að verða um 100 milljarðar. Það er geipilegt fé sem ekki skal gert lítið úr.
Hafa skal þó í huga að inn í þeirri tölu eru margvíslegar vegaframkvæmdir, kaup á landi, brúarsmíði, undirgangnagerð fyrir gangandi og hjólreiðar. Vonandi ná ríki & sveitarfélög samkomulagi um fjármögnun hið fyrsta svo verkið tefjist ekki & áætlanir haldi.
Amen.
Samgöngur | 22.5.2019 | 09:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Norðlendingar nýja fá
notendur þá blessa.
Vonandi er öngvin vá
með verktaka þessa.
Nýir verktakar nyrðra
Það er gott til þess að vita að vandræðin, sem voru með þá blágulu nyrðra, virðast vera fyrir bí. Allavega til áramóta. Nema hvað.
Nýir verktakar taka við leiðum 56, 78 & 79, en þær aka frá Akureyri að Egilsstöðum, Siglufirði & Húsavík. Vonandi verða þeir blágulir eins og þeir eiga að vera.
Ekkert hvítt drasl á vígvelli veganna takk fyrir!
Mynd: citybus.piwigo.com
Samgöngur | 21.5.2019 | 15:45 (breytt kl. 16:01) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um Sæbraut ekur aptur
eðalleiðir breyttar.
Inn kemur varla kjaptur
er keyrir hann þar.Eðalleiðirnar sex, 1, 6, 11, 12, 13 & 14 koma til með að aka um Sæbraut í sumar til & frá Hlemmi, hvar framkvæmdir standa yfir á Hverfisgötunni. Aptur & enn. Nema hvað.
Dr. Gylforce finnst nú ekki gaman að láta vagnana aka þar um. Reyndar er leið 3 nýbyrjuð á ferð um Sæbrautina sem er fínt svo að einhver leið fari framhjá t.d. Hörpunni hinni fögru. En ekki hvað???
Hvað um það. Vér vagnverjar verðum að þreyja þorrann í sumar en vagnarnir verða vonandi komnir á rétt ról í ágústlok.
https://www.frettabladid.is/frettir/ekur-saebraut-i-stad-hverfisgotu-vegna-framkvaemda-i-sumar/
Yfir&út!
Samgöngur | 19.5.2019 | 12:49 (breytt kl. 22:05) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fékk flogakast á ferð
Vagnstjórinn fékk flog
flykktist út á tún.
Meðvitundarlaus - og
mörgum brá í brún.
Dr. Gylforce verður að beita hinum leiðigjarna frasa - betur fór en á horfðist - þegar vagnstjórinn á leið 7 missti meðvitund fyrr í dag & endaði för sína út á túni í Mosfellsbænum.Sem betur fer voru meiðsli minniháttar en talið er að vagnstjórinn hafi fengið flog með þessum afleiðingum. Vagnstjórinn & einn vagnverji fengu aðhlynningu á Landspítalunum en þrír verjar voru um borð þegar þetta gerðist.
Þá þykir mildi að vagninn hélst á hjólunum allan tímann & var hægt að aka honum af slysstað. Vonandi ná þeir báðir sér hið fyrsta en atvik sem þetta eru afar fátíð hjá Strætó, góðu heilli.
Myndir: Vísir.
Samgöngur | 17.5.2019 | 23:22 (breytt 18.5.2019 kl. 16:34) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Seltirningar vaða villu
velja ekki rétt.
Reynast á rangri hillu
raunaleg er frétt.
Nöpur frétt af Nesi
Það berast heldur naprar fréttir af Nesinu hvar sveitarstjórnarmenn þar vestra hafa ekki gert ráð fyrir einum einasta eyri í lagningu Borgarlínu á næstu þremur árum.Vissulega er Seltjarnarnes í jaðri höfuðborgarsvæðisins & því vel hægt að sætta sig við að þeir tækju ekki þátt í uppbyggingu á Borgarlínunni.
Hinsvegar ættu þessir heiðbláu borgarar vestur á Nesi að hysja upp um sig & taka þátt í að koma á loxins á legg almenningssamgöngum sem hugsanlega geta boðið bifreiðinni birginn að einhverju leyti.
Ef til vill vilja Seltirningar efla Strætó & láta það nægja. En hvað þýðir hressa verulega upp á núverandi leiðakerfi? Væntanlega með sérakreinum svo vagninn komist hraðar? Væntanlega með rafstýringu á umferðarljósum til að flýta för? Væntanlega með aukinni tíðni vagna? Væntanlega með umhverfisvænum & jafnvel lengri vögnum á fjölförnum stöðum? Væntanlega með tímatöflum á stoppistöðvum sem segja til um hve langt er í vagninn?
Borgarlínan er allt þetta. Borgarlínan er að efla strætósamgöngur & í raun að færa þær á næsta & öflugra stig (næsta level).
Koma svoooooo Seltirningar - veriði með!!!
Samgöngur | 15.5.2019 | 19:33 (breytt kl. 19:56) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Í hvíldinni í fyrstu ferð
fékk ég kínverskt rafmagn.
Hljóðlát var ferðin & fíngerð
með fyrirmyndar rafvagn.
Hinn þjóðlegi en þó þumbaralegi dr. Gylforce þaut af stað í fyrstu ferð síðastliðinn hvíldardag, hvar doksi kallinn hóaði í leið 4 við selið sitt. Nema hvað.Fyrsta ferð á sunnudögum hepst ekki fyrr en kl. 9:33 hvar leið 4 ekur frá Fellaskóla í átt að gettói Gylforce-ins. Gott væri ef vagnarnir hæfu akstur fyrr á sunnudögum en nú berast váleg tíðindi frá Strætó þess efnis að unaðurinn hætti að keyra klukkutíma fyrr en venjulega í sumar!!!
Að þessu sinni var ferð dr.´s stutt með þessum rafmögnuðu vinum úr Austri en það gladdi hið gamla hró doksa mikið að fá rafvagn í fyrstu ferð á þessum heilaga hvíldardegi.
Yfir&út!
Samgöngur | 14.5.2019 | 09:53 (breytt kl. 10:08) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það er alltaf ánægjulegt þegar fleiri kjósa að hoppa á vagninn hvað almenningssamgöngur varðar. Fyrir stuttu reit ritstjóri Fréttablaðsins góðan leiðara hvar hann hvatti t.d. forstjóra til þess að gefa einkabílstjóra sínum frí & einhenda sér í unaðinn & prófa að taka vagnana. Vel gert!
Maður á nú samt eptir að sjá það gerast - maður lifandi!
Byrjun Borgarlínu
Þá hefir borgarráð gefið borgarstjóra umboð til þess að undirrita samninga tvo & hrinda Borgarlínunni þar með úr vör. Nema hvað.
Ef allt fer að óskum skal hafist handa við fyrsta áfanga línunnar í upphafi ársins 2021.
Sá hluti sem varð fyrir valinu er línan frá Hamraborg, vestur um Kársnes, yfir fyrirhugaða Fossvogsbrú & áleiðis niður í miðbæ aukinheldur sem lögð verður lína þaðan að Ártúnsbrekku.
Spennandi, spennandi - en ekki hvað???
Víst er manna misjöfn dyggð
metið úr ýmsum gögnum.
Ég hef mína trú og tryggð
er tengist unaðsvögnum.
Samgöngur | 13.5.2019 | 18:34 (breytt kl. 18:47) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kamba keyrðum niður
komum í blómabæ.
Fastur, ljúfur liður
leið á honum ei fæ.Hinn létti & netti dr. Gylforce hélt með ungviðið í strætóvalinu í sína árlegu ferð austur fyrir fjall í sérdeilis fallegu en svölu veðri í gær, frjádag. Nema hvað.
Það ku vera þriggja vagna rúntur að skella sér frá mennta- & menningarsetrinu við Kársnes að Shellskálanum í Hveragerði. Til þess að komast í Hamraborgina háu & fögru fengum við okkur til fulltingis leið 36. Frá Voginum fagra í átt að Breiðhyltingum einhentum við okkur í leið 4 & svá lox var það leið 51 til þess að komast austur fyrir fjall.
Ferðin gekk snurðulaust & því ljóst að öngvin snurða hljóp á þráð okkar Kársnesinga. Áttum við saman unaðsstund eystra aukinheldur sem 408 bláguli vagninn á leið 51 var magnaður.
Yfir&út!
Samgöngur | 11.5.2019 | 16:27 (breytt 13.5.2019 kl. 18:54) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Ágúst 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.8.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 34
- Frá upphafi: 124028
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 33
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar