Gylforce-inn í sýruferð sat
seinkun, hann beið & beið.
Enginn í vagni - ekkert plat
& ekki var hann á leið!!!
Dr. Gylforce rak heldur betur í rogastans hvar hann í sakleysi sínu hugðist taka leið 3 síðdegis í gær á fögrum haustdegi. Nema hvað.
Dr.-inn beið & beið við Hlemmtorgið & eptir um tíu mínútna seinkun kom loksins þristurinn á B-vachtinni. Doksi kallinn sá aukinheldur að ansi margar leiðir fóru úr skorðum þennan dag & nokkrir vagnar voru búnir að hringa hvern annan eins & sagt er. Hvað um það.
Dr. Gylforce hapði setið aðeins stutta stund í vagninum hvar hann tók eptir því að hann var eini vagnverjinn. Í skyndi ók vagnstjórinn skrýtna leið sem leið 3 fer alls ekki aukinheldur sem hann nam hvergi staðar.
Hva va a sge??? Var þetta ekki leið 3??? Eða Hraðferð-Kleppur??? Eða hraðvagninn sem hvergi nemur staðar eins & eftirminnilegt var í stiklu Radíusbræðra hér forðum daga. Hraðvagn Radíusbræðra
Nú voru góð ráð dýr, rándýr.
Eptir mikinn glannaakstur & nokkur hundruð Maríubænir doktorsins, grát & gnístran tanna stöðvaði vagnstjórinn loksins för við Mjódd okkar Breiðhyltinga & doksi hoppaði (bókstaflega) út.
Hjúkk!
Hvaða rugl var nú þetta? Gerðist þetta eða var þetta bara draumur???
Samgöngur | 3.9.2019 | 08:23 (breytt kl. 08:35) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Í glæsivagninum geðþekka
sá görótti til taks.
Mögnuð var ferðin til Mekka
mig langar aptur strax.
Hún var heldur betur eftirminnileg nóttin sem dr. Gylforce átti í þessum unaðsvagni ásamt unnustunni um helgina. Maður lifandi!
Á Kjalarnesi hafa einhverjir snillingar tekið sig til & breytt tveimur gömlum strætisvögnum í hótelgistingu. Óhætt er að segja að ákaflega vel hafi tekist til en þarna er að finna Volvo liðvagn & venjulegan sænskættaðan vagn.
Já, þetta var efalítið ein besta nótt doksa í háa herrans tíð & getur hann vart beðið eptir að komast í unað þennan aptur.
Yfir&út!
Lífstíll | 1.9.2019 | 18:44 (breytt 2.9.2019 kl. 20:55) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.5.): 4
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 16
- Frá upphafi: 118908
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 16
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar