Færsluflokkur: Bloggar

Vagnstjórar - stoppið í rétt stæði ...

Tvisturinn & tuttugu&eitt
tetrið sálar kremur.
Stæðin verða að vera óbreytt
þegar verjinn kemur.

Hinn eitilharði & ógnvekjandi dr. Gylforce hefir glímt við slen & slappleika helgi þessa, hvar hann þó hefir gefið sér tíma til að halda á vit vagna. En ekki hvað???

Dr. Gylforce lét hvorki krankleika né kúguppgefni aptra sér til að valhoppa í Mjódd okkar Breiðhyltinga á ljúfum laugardegi. Nema hvað.

23 6 bByggðasamlagið Strætó heldur áfram á góðri vegferð með bættum merkingum í Mjódd okkur vagnverjum til handa. Upp er komið gott skilti sem sýnir hvar allir vagnar eigi að koma og stanza og meira að segja flokka þá í A, B, C o.s.frv.

En vagnstjórar & -stýrur fara sum ekki eptir þessu. Í gær stoppaði t.d. leið 2 í stæði leiðar 21 - & ekki í fyrsta sinn. Varð leið 21 að stöðva fyrir aptan tvistinn eins & epsta myndin sýnir. Maður lifandi!

Þetta er hvimleitt & varð doksi kallinn heldur súr í leið 2 hvar hann fór um efri byggðir Kópvæginga, í gegnum Smárasvæðið, framhjá Hamraborginni & alla leið að Rúv allra landsmanna. 

Yfir&út!




 


Afspyrna í fótspyrnu ...

36003053_10155762445668348_7107304330868293632_nEptir skelfilegan skell
skreið ég í minn vagn.
Fokkaðist um Fell
fór með bölv & ragn.

Hinn tapsári & tornæmi dr. Gylforce tölti í skýlið sitt í gærkvöldi til að trappa sig niður eptir skellinn í fótspyrnunni. En ekki hvað???

Á freyju- & frjádaginn virtist allt á sömu bókina lært. Dr.-inn tók þristinn um Sel og Fell og þaðan niður í Mjódd okkar Breiðhyltinga. Doksi arkaði svá inn í ellefuna á leið í miðbæinn. 

Þegar vagninn á leið 11 var að leggja af stað renndi hinn rennilegi rafvagn á leið 3 í hlað. Illu heilli náði doksi kallinn honum ekki & heldur ekki á leiðinni tilbaka upp í selið sitt.

Aaaaarrrrggg!!!


Fótspyrnufrjádagur ...

Fjarri verið vögnum
viðþolslaus af eymd.
Fótspyrnu nú fögnum
flatneskja öll gleymd.

Hinn fjörugi & frakki dr. Gylforce, sem fráleitt er Frakki, var meðal vina vorra, vagnanna, á þjóðhátíðardegi vorum hinn seytjánda þessa mánaðar. Nema hvað.

14697242_10154087928668348_308092982_oDoksi kallinn vappaði með litla vagnverjann á menningartorfu þeirra Kópvæginga, hvar í skyndi kom skýfall mikið. Þá einhentu feðgar sér í leið 35 í Voginum fagra & tóku góðan hring. En ekki hvað???

35483794 1015575350922043348 8635951051997970432 nLeið 35 lenti í alls kyns drolli & doki vegna hátíðahaldanna & fengu feðgarnir unaðsrúnt um gervallan Voginn á rúmlega 40 mínútum í stað hálftíma.

Það reyndist hið besta mál hvar votviðrið var á bak & burt er þeir stigu út úr vagninum á sama stað, Hamraborginni háu & fögru.

Yfir&út! 


Meira hjá meirihluta ...

a-2Meiri tíðni, meira fjör
hjá meirihluta nýjum.
Skal nú gera loks gangskör
Gylforce er ofar skýjum!

Hinn spánnýi & nokk spennandi meirihluti í Reykjavík hefir talsvert metnaðarfulla áætlun í málefnum almenningssamgangna, m.a. um að auka tíðni á ákveðnum leiðum niður í 7,5 mínútur á álagstíma. Það er vel!

leið7cVonandi er líka ætlunin að bæta hið lostfagra leiðakerfi í samráði við hin sveitarfélögin. Það er mikilvægt að einblína ekki einvörðungu á annatíma heldur bæta tengingar á milli hverfa alla daga. Nema hvað.

StodinAukinheldur hyggst meirihlutinn halda áfram að vinna að Borgarlínunni, ásamt hinum sveitarfélögunum vitaskuld, & er stefnt að því að taka eitthvað af henni í notkun á kjörtímabilinu. 

Það verður allra athyglivert. Maður lifandi!


Góð nýting í gettóinu ...

aaStirður í baki, böðlast samt
útí biðskýlið nánast skreið.
Sitjandi með geðið gramt
sem gjörbreytist á leið.

Hinn síkáti & söngelski dr. Gylforce hefir setið vel í vögnunum sínum sem keyra um Stútulautarselið. Nema hvað.

Doksi kallinn hefir verið eins & þeytispjald með leiðum 3 & 4 síðdegis á þessum heldur þungbúna hvíldardegi. Nema hvað.

Það kemur dr.-num hinsvegar alltaf jafn þægilega á óvart hve vel vagnar eru nýttir hér í gettóinu.

Einhvur mýta er í minni doktors þess efnis að vagnar aki um tómir & tættir á kvöldin & um helgar. Öðru nær.

Dr.-inn náði í síðasta sætið í leið 4 sem var á leið upp í hverfi frá Mjódd okkar Breiðhyltinga. Svipað var uppi á teningnum fagra þegar doksi kallinn hugði á ferðir með leið 3 niður í miðbæinn. Vel gert vagnverjar!

Þetta eru gleðitíðindi. Maður lifandi. 


Steypa & malbik ...

17Er ég ferðaðist forðum
fokkaðist tíminn opt.
Í gær fór allt úr skorðum
- ég þurfti meira lopt!

Hinn stórkostlegi & stórkostulegi dr. Gylforce skellti sér í vagnana í gær, hvar hann varð vitaskuld að kíkja á nýja stuðningsmannavagn Tólfunnar. En ekki hvað???

Það vachti gjörhygli Gylforce-ins að vagnakerfið var allt farið úr skorðum síðdegis. Skýringin var líklega sú að malbikunarframkvæmdir eru nú út um hvippinn & hvappinn í höfuðborginni. Nema hvað.

Dr.-inn hugði á unaðsferðir með leið 17 & var vagninn sá með um 6 mínútna seinkun í Mjódd okkar Breiðhyltinga. Tilbaka var hin seytjánda leið fimm mínútum of sein á Suðurlandsbrautinni, sem var allra athyglivert því vagninn er þá ný lagður af stað frá Hlemmtorginu. Hvað um það.

3-cDr.-inn komst heilu & höldnu með Hollendingnum bilandi, VDL-vagni, á leið 17 upp í Mjódd okkar Breiðhyltinga & lék svá kunnugleg stef þaðan & upp í selið sitt.

Yfir&út!


Efsta mynd: citybus.piwigo.com


Huggulegt heimsmeistaraverk ...

178Skreyttur skýst um Hlemm
skemmtir okkar sýn.
Liðið heldur á Há-Emm
hittir þar Pútín.

Í dag var afhjúpaður stuðningsmannavagn fyrir landsliðið okkar í fótspyrnu, hvar senn mun nú halda til Rússíá til að etja kappi við bestu þjóðir heims. Maður lifandi!

178 aEptir sýningu á vagninum fór hann vitaskuld með stuðningsmannasveit landsliðsins, Tólfuna (þó ekki leið 12), rakleitt í Laugardalinn.

Dr. Gylforce arkaði hinsvegar inn á Ölver & kneyfaði ölið af svo mikilli áfergju að hann missti af ferðinni!!!

Gengur bara betur næst.


Tvistur, þristur - Jesús Kristur ...

Æ, vagn minn virðulegi 
ver þín gata greið.
Ég bugta mig & beygi
& bruna þína leið.

Dr. Gylforce hefir verið galtómur & gamalær í allan morgun; þagað eins & Þangbrandur gerði fráleitt forðum ellegar logið eins & landeyða. Nema hvað.

34598752_10155729291658348_7472078304204292096_nDr. Gylforce langaði að nýta gjörhygli sína & grandskoða leið 2, hvar tímaáætlun hennar hefir verið hnikað til með það að markmiði auðvitað að hún gefi betri mynd af rauntímanum.

Dr.-inn hóaði - eins & maður sannkristinn - í tvistinn við Hamraborg þeirra Kópvæginga. Vagninn sá var á hárréttum tíma & bauð byggðasamlagið upp á 142 Irisbus Crossway sem kemur til með að fagna sex ára afmæli í ágúst. Hvað um það.

Leið 2 gekk vel að halda sig innan tímaramma enda á leið um miðjan dag að sumarlagi. Vonandi nær tvisturinn að halda réttum takti í haust - en ekki hvað???

Eptir yndisrúnt með leið 2 var Gylforce-inn snar í snúningnum & snapaði sér ferðir með leiðum 15, 16 & vitaskuld leið leiðanna, leið 1.

Unaður, ekkert annað - þið ættuð bara að prófa!


Sumar leiðir verða ekki sumarleiðir ...

Núna munu gleðjast gumar
Gylforce-inn þó mest.
Sama tíðni er í sumar
með sænskri vagnalest!

Hinn grandvari & gaumgæfilegi dr. Gylforce hefir glaðst mjög undanfarna daga, hvar loksins, loksins hefir Strætó bs. ákveðið að hafa öngva sérstaka sumaráætlun. Maður lifandi!

112Hinn fráleitt útlimagranni ofurbloggari hefir ávallt gramist skerðingar á tíðni & leiðum sem verið hafa á sumrin í hinu lostfagra leiðakerfi byggðasamlagins. Illu heilli!

799508Nú kveður hinsvegar við annan tón & er öngvin sjáanlegur munur á ferðum vagna á höfuðborgarsvæðinu yfir sumar- ellegar vetrartímann. Það er vel. 

Leiðir 1 & 6 halda áfram að tjútta um á tíu mínútna fresti á annatíma virka daga. Hipp-hipp-húrrey!!!

Aðrar leiðir halda aukinheldur sínu (veg)striki & nú bíður doksi kallinn bara í ofvæni eptir fleiri rafvögnum.

En ekki hvað???


Hermaurinn raddir heyrir ...

StodinLíf, Dóra & Dagur
díla við baklandið.
Meirihluti of magur
máta þau Lóu við.

Hermaurinn raddir heyrir
hætta vill línu við. 
Fáviskan öngvu eirir
- aumt er frjálslyndið.

33788354_10155707787798348_7479949909811003392_n (1)Hinn rammpólitíski & fráleitt villuráfandi dr. Gylforce rogaðist & rembdist á leið nú síðdegis, hvar hann hitti fyrir m.a. hinn rosafengna 191 rafvagn á leið 4. En ekki hvað???

a-rafÞað olli hinum ofsafengna doktor hinsvegar töluverðum vonbrigðum að upplýsingataflan (eða skjárinn öllu heldur) virkaði enn ekki í rafvagninum. Allavega ekki í númer 191 sem að þessu sinni ók leið 4 eins & herforingi. Hvað um það.

Dr.-inn tók aukinheldur leið 18 frá Hlemmi þegar hann sá að um var að ræða annan af "nýju" Iveco vögnunum sem eru í láni frá Kynnisferðum. 

Dr. Gylforce lauk svá unaðslegum ferðum dagsins i leið 24 áleiðis að Mjódd okkar Breiðhyltinga & vonaðist til þess að nýr meirihluti í borginni - hver sem hann verður nú - haldi áfram að setja almenningssamgöngur á oddinn.

Amen.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband