Færsluflokkur: Lífstíll
Yfir mig hellist hugarró
á heilanum slökknar.
Nýt ég þess & fæ aldrei nóg
næstum maður klökknar.
Dr. Gylforce greip gæsina hvar hún gafst nú undir kvöldið & hélt á vit vagna. En ekki hvað???
Áður en dr.-inn vissi var vagn hans kominn upp í Spöng þeirra Grafvæginga hvar leiðir 6, 7, 18 & 24 stoppa.
Dr. Gylforce gerði sér dælt við leið 6 & fékk fyrirtaksrúnt með henni áður en hann lék sín kunnuglegu stef til þess að komast í Stútulautarselið sitt. Hvað um það.
Næstu daga elur dr. Gylforce manninn á Laugarvatni. Ekki verður nú feitan gölt að flá þar í vagnamálum; einungis ein ferð síðdegis alla virka daga nema föstudaga hvar byggðasamlagið splæsir í þær tvær.
Tímatabbla
& ugglaust er leið 73 ekin með einhverjum rútuskratta. Sjáum til.
Yfir&út!
Lífstíll | 3.11.2019 | 19:29 (breytt kl. 20:37) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Á loftmengun eru líkur
að leiðum skulum gá.
Unaðurinn öngvan svíkur
endalaust notum þá.
Loptmengun
Næstu daga er útlit fyrir loptmengun í henni Reykjavík. Borgarbúar eru hvattir til þess að sameinast í bíla, fækka ferðum eða síðast en alls ekki síst - notast við vagnana, vini vora.
Koooooma svoooo! Verum vagnverjar um helgina & drögum úr menguninni.
Lífstíll | 1.11.2019 | 16:33 (breytt kl. 16:33) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Línufundum lýkur senn
lofar þá hver kjaptur.
Gleðskap þessum Gylforce enn
gleymir aptur og aptur.
Nú fer hver að verða síðastur að koma á kynningarfundi á vegum Verkefnastofu Borgarlínunnar & Strætós & kynna sér línuna & hið nýja leiðanet byggðasamlagsins. Nema hvað.
Illu heilli hefir dr. Gylforce ekki náð fundum þessum hvar eitt & annað kemur ætíð upp sem verður til þess að dr.-inn geðþekki er vant við látinn.
Það eina sem dr. Gylforce skilur lítið í þessu er orðanotkun í sambandi við þetta allt saman.
Leiðanet? Er þetta ekki bara nýtt leiðakerfi hjá Strætó?
Má ekki bara kalla það því nafni???
Humm, humm???
Lífstíll | 30.10.2019 | 23:13 (breytt kl. 23:14) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kynningarfundir komnir af stað
kynna gagnlegt mál.
Mikið er á miðlum bloggað
margir alveg brjál.
Verkefnastofa Borgarlínu og Strætó hafa hrint af stað kynningarfundum til þess að kynna hið veigamikla verkefni sem Borgarlínan er. Aukinheldur fær nýtt leiðanet Strætós kynningu á fundum þessum & því mikilvægt að fara á fund & kynna sér málið. En ekki hvað???
Í dag, 29. október, er komið að Háskólatorginu og munu fulltrúar frá þessum aðilum standa þar vaktina frá kl. 12-18.
Það er vel að Borgarlínan sé kynnt rækilega enda sýna kannanir að rúmlega 40% aðspurðra þekkja hana ekki vel eða misskilja hvað hún er.
Dr. Gylforce hefir í hyggju að kíkja vestur í bæ & vonandi verður hann margs vísari fyrir vikið.
Lífstíll | 29.10.2019 | 09:05 (breytt kl. 09:10) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Einatt þegar dr. Gylforce heldur á vit vagna virðist hellast yfir hann einhvers konar "sænsk veiki" hvar hann einfaldlega verður að eiga þrásetu & langdvöl í sænskættuðum strætisvagni. Nema hvað.
Svona er víst sænska veikin
ef vel er að gáð.
Algjörlega illa leikinn
alger neyð í bráð.
Vagnar frá Svíaríki mega reyndar muna sinn fífil fegurri hvar þeir óðum eru að týna tölunni á vígvöllum veganna.
Örfáir Scania vagnar eru eptir & enn færri Volvoar. Illu heilli.
Sem betur fór voru tveir sænskættaðir vagnar á vachtinni á leið 4 hér í gettóinu nú síðdegis.
Dr. Gylforce beið öngvra boða; hann gjörðist kvikinskur & kærulaus á komandi verkefni & kúrði kátur & keikur í sínum sænsku vögnum. En ekki hvað???
Góðu fréttirnar í vagnamálum eru þær að nýjasti vagninn í flota Strætó bs. er sænskættaður & má búast við hvíta 101 metan-beljakanum á vígvöllum veganna á allra næstu dögum.
Það verður gaman.
Yfir&út!
Lífstíll | 28.10.2019 | 18:07 (breytt kl. 23:30) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Rannsóknir vagna reyna á
rembist þeim að sinna.
Öngva daga ég sit hjá
þett´er botnlaus vinna.
Hinn netti & þétti dr. Gylforce hélt í sínar vagnarannsóknir í norðurljósadýrð gærkvöldsins. Nema hvað.
Einar Ben, sá er vildi norðurljósin selja, orti um þau svo fagurliga:
Veit duftsins son nokkra dýrlegri sýn
en drottnanna hásal í rafurloga?
Hvað um það.
Það voru fáir vagnverjar á ferli í gærkvöldi, ugglaust allir í leið 11 á leið út að Gróttu til að sjá ljósapartýið á himnum sem best.
Dr. Gylforce einhenti sér hinsvegar inn í leiðir 2 & 4 við Mjódd okkar Breiðhyltinga & tyllti sér síðan í kirkjugarð þeirra Kópvæginga til þess að fylgjast með sjónarspili himinsins. Maður lifandi!
Á ferli fölur sem nár
fer í vagna ótrauður.
Þótt hann sé gugginn & grár
er Gylforce-inn ei dauður.
Norðurljósamynd: vedur.is
Lífstíll | 27.10.2019 | 09:21 (breytt kl. 09:27) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Græn er orkan okkar
er endurnýjanleg.
Nú fara menn að flokka
fer allt á besta veg.
Græn Borgarlína
Það berast enn spennandi fregnir af hinni svokölluðu Borgarlínu. Á dögunum undirrituðu Strætó bs., Landsvirkjun, Vegagerðin og Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) samkomulag hvar leitað verður lausna & fundinn hentugasti orkugjafinn fyrir vagna Borgarlínunnar. Áætlað er að fyrstu tvær línur hennar hefji akstur árið 2023.
Markmiðið er að línan verði vistvæn og orkugjafinn innlendur. Vetni, rafhlöður og metan hafa mismunandi eiginleika og koma allir til greina fyrir vagna Borgarlínunnar.
Dr. Gylforce hélt reyndar að búið væri að ákveða að um rafvagna yrði að ræða en um að gera að fara í rækilega greiningu á því hvað sé hentugast.
Vonandi tekur sú vinna ekki of langan tíma því útboðið sjálft á vögnunum verður líklega flókið og nokkuð tímafrekt eins & gengur & gerist hjá opinberum aðilum.
Vetni? Metan? Rafmagn? Dr.-inn er orðinn spenntur nú þegar - maður lifandi!!!
Lífstíll | 25.10.2019 | 21:12 (breytt kl. 21:19) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvítur & hreinn er
hraustur á velli,
útblástur minni
yndislegt lopt.
Metanvagn hér
mér ég í skelli,
ver´í þeim inni
virkilega opt.
Dr. Gylforce leitar nú dyrum & dyngjum að nýjasta vagni í flota byggðasamlagsins, hvar sá er hvítur að lit aukinheldur að vera metanvagn með raðnúmerið fyrsta & geðþekka, 101. Maður lifandi!
Dr. Gylforce langar svá að sjá hann á vígvöllum veganna & mæla: "Sjaldséðir eru hvítir vagnar." Hvað um það.
Svá virðist sem Strætó bs. hafi hug á að festa fjár í enn fleiri metanvögnum sem er fagnaðarefni. Forvígismenn SORPU hafa t.a.m. komið á fund hjá stjórn byggðasamlagsins til skrafs & ráðagerðar um væntanlega hvu mikið hægt er að framleiða af metangasi & afhenda upp á Hestháls eða því sem næst. Nema hvað.
Annar af gömlu metanvögnunum, 119 vagninn, hefir sést aptur á vígvöllunum & var á leið 4 í gær.
Illu heilli náði dr. Gylforce ekki í skottið á honum en vonar að vagninn sá eigi töluvert eptir á tanknum til þess að gleðja oss vagnverja með sænskættuðu stáli & hreinni útblæstri.
Yfir&út!
Lífstíll | 24.10.2019 | 15:21 (breytt kl. 15:40) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Velkominn vertu
í vagninn góða
vinir í sætum,
vinsemd & ró.
Kær okkur ertu,
eðall fjársjóða
dansandi á strætum,
dásemd - bravó!
Gaflara-gleði
Þá er loksins komið á hreint hvernig leiðakerfi þeirra Gaflara verður háttað. Dr. Gylforce hefir nú æði opt gagnrýnt það hér í bloggi þessu & góðu heilli á nú að einfalda það til mikilla muna. Hipp-hipp-húrrey!
Gylforce-inn vonar heitt & innilega að Gaflarar taki breytingu þessari vel en næsta sumar verða aðeins tvær leiðir innanbæjar, leið 19 & 21 auk leið leiðanna, leið 1 & leið 55. Nema hvað.
Fyrirhugaðar breytingar ríma vel við Borgarlínuna - sem er vel - & hlakkar hinn lautelski doktor til sumarsins til þess eins að líða um lendur Hafnfirðinga í þessum tveimur leiðum.
Amen.
Lífstíll | 23.10.2019 | 23:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sit inn í vögnum
saddur & glaður,
Hér eru verjar
hér er fjör!
Þessu við fögnum
þægilegur staður,
á okkur senn herjar
unaðsleg för.
Hinn torráðni & tregi dr. Gylforce hefir dregið sig í hlé undanfarið en brýst nú út í bloggheima sína með berserks- & æðibunugangi miklum. Ó-já. Maður lifandi!
Það hefir vakið gjörhygli Gylforce-ins hve margir borgarbúar, eða ríflega 40%, halda að Borgarlínan sé annaðhvort lestakerfi (hrað- eða léttlestir) ellegar sporvagnakerfi. Hún er nefninlega hvorugt. Hún er gæða strætókerfi, jafnvel hágæða.
Dr. Gylforce telur að það hafi ekki verið gáfulegt að koma upp með nafnið Borgarlína. Með því halda flestir að eitthvað annað sé í vændum en bara hepðbundið vagnakerfi. Nema hvað.
Hinsvegar má segja nafninu til varnar að í upphafi var ákveðið að kanna hagkvæmni og kostnað við einhvers konar lestakerfi. Fékk verkefnið því nafnið Borgarlína. Eptir ítarlegar rannsóknir var fallið frá því að hafa línuna lestakerfi, einkum vegna mikils kostnaðar, en þó með því að búa svo um hnútana að hægt sé að breyta henni í slíkt kerfi í framtíðinni, ef vilji er fyrir því.
Það var &.
Amen.
Lífstíll | 22.10.2019 | 16:01 (breytt kl. 16:06) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar