Þessi í stúf stingur
strax er mér kær.
Góður er hans hringur
hreinn & tær.
Dr. Gylforce var vart kominn í höfuðborgina hvar hann hóf að leita hvíta metanvagninn uppi. En ekki hvað???
Í vikunni var hann tilbúinn til þess að halda út á vígvelli veganna & hefir dr.-inn bara séð hann á leið 18.
Svíar eru smekkmenn & bjóða okkur í þessum metanvagni upp á falleg blá sæti. Illu heilli voru fáir vagnverjar með dr. Gylforce í för í gærmorgun frá Hlemmi. Það breyttist þó aðeins við Ártúnið. Nema hvað.
Dr. Gylforce vonast til þess að eiga í miklu samneyti við vagn þennan & vill sjá hann fljótt á leiðum 3 & 4 hvar þær eru nú í miklu uppáhaldi hjá Stútulautardoktornum.
Yfir&út!
Samgöngur | 10.11.2019 | 13:33 (breytt kl. 19:36) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Upplýstur & umhverfisvænn
í eðal rafvagni.
Held ég senn á leið ljóðrænn
leik mér í rafmagni.
Gleðifregnir hafa borist úr ranni byggðasamlagsins þess efnis að loksins séu skjáirnir eða upplýsingatöflur rafvagnanna komið í gagnið. Hipp-hipp húrrey!
Það tók um eitt & hálft ár að gangsetja skjáina því fyrstu rafvagnarnir komu hingað til lands á vormánuðum árið 2018. Svari nú hver fyrir sig hvort það sé ekki alltof langur tími. Nema hvað.
Dr. Gylforce hefir ekki komist í rafvagn enn sem hefir skjáinn í lagi en hlakkar mikið til & leyfði sér að stela þessari mynd af sjálfum upplýsingafulltrúa Strætós (vonandi fyrirgefur hann það :) )
Yfir&út!
Samgöngur | 9.11.2019 | 13:39 (breytt 10.11.2019 kl. 01:06) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Yfir mig hellist hugarró
á heilanum slökknar.
Nýt ég þess & fæ aldrei nóg
næstum maður klökknar.
Dr. Gylforce greip gæsina hvar hún gafst nú undir kvöldið & hélt á vit vagna. En ekki hvað???
Áður en dr.-inn vissi var vagn hans kominn upp í Spöng þeirra Grafvæginga hvar leiðir 6, 7, 18 & 24 stoppa.
Dr. Gylforce gerði sér dælt við leið 6 & fékk fyrirtaksrúnt með henni áður en hann lék sín kunnuglegu stef til þess að komast í Stútulautarselið sitt. Hvað um það.
Næstu daga elur dr. Gylforce manninn á Laugarvatni. Ekki verður nú feitan gölt að flá þar í vagnamálum; einungis ein ferð síðdegis alla virka daga nema föstudaga hvar byggðasamlagið splæsir í þær tvær.
Tímatabbla
& ugglaust er leið 73 ekin með einhverjum rútuskratta. Sjáum til.
Yfir&út!
Samgöngur | 3.11.2019 | 19:29 (breytt kl. 20:37) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Á loftmengun eru líkur
að leiðum skulum gá.
Unaðurinn öngvan svíkur
endalaust notum þá.
Loptmengun
Næstu daga er útlit fyrir loptmengun í henni Reykjavík. Borgarbúar eru hvattir til þess að sameinast í bíla, fækka ferðum eða síðast en alls ekki síst - notast við vagnana, vini vora.
Koooooma svoooo! Verum vagnverjar um helgina & drögum úr menguninni.
Samgöngur | 1.11.2019 | 16:33 (breytt kl. 16:33) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.5.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 118903
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar