Fuðra upp aðeins fimm ára ...

2357EE337F33005B1B7F378C19EFB3C36BB9924488A77C54A7D6FCDC6100C0D2_713x0Eldurinn blossar ótt
ekki var sá á leið.
Greip um sig skelfing skjótt 
skapaðist þó öngvin neyð.

Eldur í vagni

1161484Dr. Gylforce er heldur dapur í bragði dag þennan, hvar einn af vinum vorum - vögnunum - tók upp á því að brenna á sér apturendann í morgun. Nema hvað.

1161511Góðu heilli hapði vagn þessi, 179 Iveco Crossway, sem er tæplega fimm ára gamall, nýlokið akstri um morguninn á annatíma & var kominn upp í höfuðstöðvar Strætó að Hesthálsi. En ekki hvað???

56917848_750595128674594_8861325221722849280_nVitaskuld gera slysin ekki boð á undan sér. Dr.-inn er hinsvegar hugsi yfir því að ekki eldri vagn en þetta fuðri upp. Doksi kallinn hepði skilið það betur ef einhver af gömlu jálkunum hepðu langað að hita sig vel upp :)

Hvað um það. Vonandi verður hægt að lappa upp á þennan fína vagn en þó er ljóst að skemmdirnar eru talsverðar.

Yfir&út!






Myndir: mbl.is


Breytt Borgarlína ...???

F2DA74226C8DCF78B972F5A93D21581C21379D7043AB037EBF3FABF439DE473E_713x0Bjarni Ben & Dagur Bé
um Borgarlínu masa.
Reyna nú að finna fé
sem finnst í okkar vasa.

Gleðitíðindi vikunnar fyrir vagnverjann dr. Gylforce voru efalítið staðfestar fregnir um uppbyggingu Borgarlínunnar. Nema hvað.

Stjórnvöld kynntu til sögunnar sáttmála og sýndu vandað myndband varðandi framkvæmdirnar því þær snúa ekki bara að línunni heldur að öllum samgöngumátum á höfuðborgarsvæðinu.

Samkvæmt myndbandinu verður Borgarlínan annað hvort styttri en fyrri hugmyndir voru um eða það eigi að halda áfram með línuna út í hverfin í næstu áætlun sem verður eftir árið 2033. Þá má gera ráð fyrir fullbúinni Borgarlínu líklega í kringum árið 2050!!! 

En lítum á uppbygginguna samkvæmt myndbandinu:

1. áfangi tilbúinn árið 2023: Ártún-Hlemmur og Hamraborg-Hlemmur. Þar ber að fagna að láta línuna fara frá Ártúni um Skeifu og Suðurlandsbraut hvar mikið er af fyrirtækjum og verslunum. Hin línan, Hamraborg-Hlemmur verður athyglisverð í gegnum Kársnesið og nýja Fossvogsbrú á leið sinni á Hlemminn. 

2. áfangi tilbúinn árið 2024: Hamraborg-Lindir. Tímasetning á þessum legg línunnar vekur gjörhygli Gylforce-ins. Hvers vegna er þetta þriðji áfangi Borgarlínunnar??? Hepði ekki verið betra & mikilvægara að ráðast fyrst í Mjódd-BSÍ eða Kringlan-Fjörður??? Vissulega er Smáralind i þessum legg & mikilvægt að hafa góðar almenningssamgöngur að verslunarmiðstöðvum og geta verslunareigendur þar því tekið gleði sína. 

Jæja meira síðar um hina áfangana sem eru:

3. áfangi 2026 Mjódd-BSÍ
4. áfangi 2030 Kringlan-Fjörður
5. áfangi 2031 Ártún-Spöng
6. áfangi 2033 Ártún-Mosfellsbær 




Loks lagt af stað ...

60718560 10156634762223655 3855669897707126784 oUnaður á annað plan
almenningssamgöngur.
Sumum finnst það feigðarflan
fagur öðrum söngur.

Uppáhaldsmyndbandið mitt

1132412Stjórnvöld kynntu í vikunni mikla samgönguáætlun til ársins 2033 hvar Borgarlínan kemur vitaskuld þar vel við sögu. En ekki hvað???

CaptureHið fyrsta sem hið gamla hró dr.´s Gylforce hnýtur um er að nú er kostnaður við línuna áætlaður undir 50 milljörðum??? Dr.-inn man ekki betur en alls staðar í opinberum gögnum hefir upphæðin verið milli 60-70 milljarðar og það jafnvel varlega áætlað!!! 

Verður þetta styttri lína eða eigum vér línverjar að borga brúsann???

StodinLíklegt svar er hið fyrra; Borgarlínan sem kynnt er í myndbandinu verður ekki um 54-58 km að lengd eins og fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir. 

Það er í fínu lagi, það mátti alveg stytta línuna & nýta leiðakerfi Strætós fyrir ákveðin hverfi. Leiðanet Strætós mun aðlaga vagnana að línunni & er sú vinna í fullum gangi.

Enn & aptur; það eru spennandi tímar framundan. Fyrstu áfangar Borgarlínunnar, Hamraborg-Hlemmur & Ártún-Hlemmur eiga að vera tilbúnar eptir fjögur ár eða 2023.

Dr. Gylforce bíður spenntur.



Leið nítján á ný ...

strætó-1024x658Þá kemur leið nítján á ný
nautn fyrir Gaflara.
Vélfákum sínum gefa frí
& fljótt ná að spara.

Leið 19 á ný

44-aLoksins grillir í góðar breytingar á hinu lostfagra leiðakerfi í Firðinum.

Dr. Gylforce hefir kallað eptir uppstokkun þessari um nokkra hríð. Alltof mörg 44-cleiðanúmer eru í gangi hjá Göflurum eins & staðan er í dag aukinheldur sem sumar leiðir ganga bara á morgnana meðan aðrar hafa alls kyns tíðni sem ruglar bara vagnverjann í ríminu. Nema hvað.

20160217_223539Sett verður á stofn leið 19 & á hún að leysa af hólmi leiðir 22, 33, 34, 43, 44. Áður var leið þessi til & þjónusta m.a. Norðlingaholtið. Hvað um það.

Stefnt er að því að leið 19 hefji leik á vígvöllum veganna á miðju næsta ári sem verður vonandi til þess að vagnverjum fjölgi til muna.


Meira metan ...

metaninnStjórn Strætó bs. gaf á dögunum grænt ljós fyrir kaupum á tveimur strætisvögnum með hraði & án útboðs. Nema hvað.

Ekki er vanþörf - heldur vagnþörf - á að hressa upp á heldur aldurshniginn vagnaflota byggðasamlagsins. 

57415238_428905894539102_8021642506716315648_n12345Það var ljóst frá upphafi að ekki yrði um rafvagna frá Kína að ræða enda 14 slíkir komnir til landsins nú þegar & um að gera að sjá hvernig þeir pluma sig á vígvöllum veganna. Aukinheldur eru þeir dýrir í innkaupum þótt það jafni sig fljótt út þegar bensín/dísilreikningurinn er borinn saman við rafhleðsluna. Hvað um það.

Strætó bs. festi fjár í tveimur notuðum - en þó nýlegum - metanvögnum frá Scania sem er fagnaðarefni. Fyrir á byggðasamlagið tvo gamla sænskættaða vagna sem ganga fyrir metan & því löngu tímabært að fá fleiri. Auk þess eru þrír metanvagnar í notkun hjá Strætisvögnum Akureyrar, SVA, nyrðra.

metanstraetoAnnar af tveimur vögnunum kom til landsins á dögunum. Hér er um lítið ekinn & vel með farinn sýningarvagn að ræða sem er enn skjannahvítur en mun væntanlega breytast í fagurgulan innan tíðar.  

Copy_of_Straeto_mid (1)Vonandi bregður honum fyrir á vígvöllum veganna eins fljótt & auðið er. Dr. Gylforce getur vart beðið - maður lifandi!

Brátt við fáum bljúgan metan
sem bætir umhverfið.
Sannanlega góð er setan
& sæla fyrir vistkerfið.

 




Efsta mynd: Guðmundur Heiðar

 

 

 




Blíðlátur & bíllaus dagur ...

Billas_dagur_Fritt_i_straetoDýrlegur dagur er bíllaus 
drífum okkur af stað.
Allir í vagna - ekkert raus
unaður - nema hvað!

Allir í vagninn!

Kæru höfuðborgarbúar! 

Nú er tækifæri fyrir þá sem ekki hafa uppgötvað unað vagnanna. Það er frítt í strætó allan liðlangan daginn í tilefni af bíllausa deginum :)

Njótið, njótið!


Vakna kæru vagnstjórar ...

33581692 10155698027558348 4257207094584803328 nDr. Gylforce hefir tekið sér gott frí frá bloggi þessu en mætir nú tvíefldur til leiks. En ekki hvað??? Strætó og almenningssamgöngur virðast nú daglegt brauð í fréttamiðlum landsins sem er yfirleitt vel enda umferðarhnútar & óáran með mesta móti í höfuðborginni þetta haustið. Nema hvað.

62206_432037993347_1520205_nÍ slíku ástandi er líklegt að vagnverjum fjölgi & því mikilvægt að upplifun þeirra sé sem best frá byrjun. Tölur sýna að æ fleiri nýta sér vagnana & vonandi verður framhald á því. 

Verjunum fjölgar


18452331_10154733362473348_1405239922_oÞó hefir borið á vagnstjórum sem virðast á hálum ís & vegi við vinnu sína. Það skal hinsvegar skýrt tekið fram að reynsla dr. Gylforce er að flestir séu þeir til mikillar fyrirmyndar og sinni starfi sínu af alúð & yfirvegun. En ávallt eru einhverjir sem virðast ekki vera með sín dekk & drif í lagi. Illu heilli.

 Vagnstjóri í ruglinu

Vagnstjórar: Þið vaknið nú
viðhorf ykkar bætið.
Eflið vagnsins von & trú
& verjana kætið. 


Leitað lausna út fyrir landsteina ...

6Verið lausna að leita
lykkjurnar tefja för.
Öllum brögðum beita
sem bæta okkar kjör.

Bandarískir námsmenn leita lausna

borgarlínanDr. Gylforce hefir tekið eptir ungmennum í gulum vestum við Mjódd okkar Breiðhyltinga, hvar þau vaða á oss vagnverja & spyrja okkur í hvaða leið við ætlum næst. 

1E06FD7C CE81 4F98 B835 AD33ED7A268CHér er um hóp bandarískra nema að ræða sem koma hingað í verkefnavinnu & er m.a. ætlað að vinna að umbótum í almenningssamgöngum fyrir oss höfuðborgarbúa. Ekki er nú vanþörf á því - maður lifandi!

Þau fylgjast með okkur, kortleggja ferðir okkar & er svo vitaskuld ætlað að koma með úrlausnir á þessu stóra máli. En ekki hvað???

Nemarnir koma frá Worcester tækniháskólanum sem er skammt frá Boston. Það verður aukinheldur fróðlegt að fylgjast með hvað ungmenni þessi hafa fram að færa en líklega verður nú erfitt að hafa upp á niðurstöðum þeirra þegar þar að kemur - eða hvað??? Nema hvað???


Gælu(dýra)verkefni Strætós ...

28423605_10156438082595676_199208421627925556.width-1220Í vagna varanlega leyfð
verjunum til góðs.
Þau sitja öll óhreyfð
öngvan bíta til blóðs.

Gæludýr til góðs

Á dögunum bárust þær gleðifregnir úr ranni Strætós þess efnis að byggðasamlagið hyggst sækja um varanlegt leyfi til þess að hafa gæludýr í vögnunum.

Ki8YHQp21fHa_720x720_G97J2gYQTilraunaverkefni hefir tekist vel til & segjast um helmingur vagnstjóra & vagnverja vera ánægt með þessa tilhögun að hafa gæludýr í vögnunum. En ekki hvað???

Aðeins um tíu athugasemdir hafa borist Strætó frá vagnverjum vegna dýranna sem er nú ekki mikið miðað við umfang leiðakerfisins, fjölda vagna & vagnverja.

Þetta gleður hinn kattþrifna dr. Gylforce & augljóst með öllu að öngvinn hundur er í okkur vagnverjum. 

Amen!




Myndir: frettabladid.is & stundin.is 


Vonbrigði vagnverjans ...

22473396_10155163429443348_934312076_oVandræði helvítis herjans
hægagangur & slen.
Vonbrigði eru vagnverjans
vonandi skánar - amen!

Hann var heldur rislítill & raunalegur doktor Gylforce eptir vagnaferðir morgunsins, hvar margt vakti furðu í ferðum hans. Nema hvað.

40633642 306428910135525 6841013167355592704 nDr.-inn gekk galvaskur að skýli sínu við Stútulautarselið um kl. 7:25 & ætlaði að skella sér í leið 4. En ekki hvað??? 

Það gladdi hið gamla hró dr.´s hvar sænskættaður 114 Scania Omnilink kom askvaðandi en var merktur sem leið 3 - aukavagn!!! 

Ef dr. Gylforce væri nýr vagnverji að taka vagn í fyrsta sinn myndi hann ugglaust reka upp stór augu ef leið 3 kæmi í biðskýli hvar eingöngu tímatafla er fyrir leið 4. Dr.-inn hefir minnst á þetta áður, þetta er ruglingslegt en vagninn ekur frá Mjódd niður í miðbæ sem leið 3 en um Breiðholtið sem leið 4.

61445724_427405004723258_5798605457652187136_nDr. Gylforce skipti um vagn í Mjódd okkar Breiðhyltinga & fékk 186 Crossway vagn á fjarkarnum. Það virtist varla renna blóðið í vagnstjóranum á þeirra leið; vagninn ók hægt, hann var lengi að fara af stað á hverri stoppistöð enda skilaði hann vagninum tveimur mínútum of seint í Hamraborgina - illu heilli!

Dr.-inn missti því af leið 36 er hann hugðist taka. Vagnstjórinn á þeirri leið var hinsvegar í lófa lagið að hinkra í nokkrar sekúndur því vagninn var á brúnni á Digranesveg, beint á móti leið 4.

En nei, hvarflaði ekki að honum að horfa til hliðar & velta því fyrir sér að mögulega ætlaði einhver að hoppa úr leið 4 yfir í leið 36.

Dapurt & vart til þess fallið að auka ánægju vagnverja eða fjölga þeim.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband