Færsluflokkur: Samgöngur

Fleiri að hoppa á vagninn ...

Kolla hvetur til vagnaferða

56917848_750595128674594_8861325221722849280_ndownload (1)Það er alltaf ánægjulegt þegar fleiri kjósa að hoppa á vagninn hvað almenningssamgöngur varðar. Fyrir stuttu reit ritstjóri Fréttablaðsins góðan leiðara hvar hann hvatti t.d. forstjóra til þess að gefa einkabílstjóra sínum frí & einhenda sér í unaðinn & prófa að taka vagnana. Vel gert!

Maður á nú samt eptir að sjá það gerast - maður lifandi!

StodinByrjun Borgarlínu

Þá hefir borgarráð gefið borgarstjóra umboð til þess að undirrita samninga tvo & hrinda Borgarlínunni þar með úr vör. Nema hvað.

Ef allt fer að óskum skal hafist handa við fyrsta áfanga línunnar í upphafi ársins 2021.

Sá hluti sem varð fyrir valinu er línan frá Hamraborg, vestur um Kársnes, yfir fyrirhugaða Fossvogsbrú & áleiðis niður í miðbæ aukinheldur sem lögð verður lína þaðan að Ártúnsbrekku. 

Spennandi, spennandi - en ekki hvað???

Víst er manna misjöfn dyggð
metið úr ýmsum gögnum.
Ég hef mína trú og tryggð
er tengist unaðsvögnum.


Í bljúgum blágulum ...

59749773_406001686902798_5357439989103722496_nKamba keyrðum niður
komum í blómabæ.
Fastur, ljúfur liður
leið á honum ei fæ.

59968138_536085920256383_4577355722060201984_nHinn létti & netti dr. Gylforce hélt með ungviðið í strætóvalinu í sína árlegu ferð austur fyrir fjall í sérdeilis fallegu en svölu veðri í gær, frjádag. Nema hvað.

44474698_249924592536365_6628654316200656896_nÞað ku vera þriggja vagna rúntur að skella sér frá mennta- & menningarsetrinu við Kársnes að Shellskálanum í Hveragerði. Til þess að komast í Hamraborgina háu & fögru fengum við okkur til fulltingis leið 36. Frá Voginum fagra í átt að Breiðhyltingum einhentum við okkur í leið 4 & svá lox var það leið 51 til þess að komast austur fyrir fjall.

Ferðin gekk snurðulaust & því ljóst að öngvin snurða hljóp á þráð okkar Kársnesinga. Áttum við saman unaðsstund eystra aukinheldur sem 408 bláguli vagninn á leið 51 var magnaður.  

Yfir&út!


Friðsæld á ferð ...

akúrtÞað er ekki fallegt að birta myndir af fólki án leyfis. Hinsvegar getur dr. Gylforce vart annað eptir að hafa setið í leið 4 með þessari fallegu & friðsælu vagnverju.

Hún kom inn, tyllti sér tignarlega niður & hvíldi sig; upplifði unaðinn & vellíðan vagnverjans.

Vel gert!



Í huggulegri hlýju
hávaði afstaðinn.
Kemur & fær sér kríu
kannar unaðinn. 


Amen.


Ársskýrslan unaðslega ...

árskýrslaGylforce-inn er mjög glaður
gengur um í fínu.
Ársskýrslan er unaður
upp í rúmi mínu.

Ársskýrslan unaðslega

Aðalfundur byggðasamlagsins var haldinn í vikunni, hvar dr. Gylforce var vant við látinn við uppfræðslu ungmennanna vestur á Kársnesi. Nema hvað.

Ársskýrsla Strætós verður því að duga að þessu sinni enda um margt hið merkilegasta plagg. Maður lifandi!

Dr. Gylforce hefir áhuga á vögnunum & er umhugað um að vér vagnverjar fáum nýlega, umhverfisvæna & þægilega vagna á vígvelli veganna. En ekki hvað???

Það er því fagnaðarefni að í lok þessa árs er stefnt að fimm nýjum vetnisvögnum. Fyrir á fleti eru 14 rafvagnar ættaðir úr Austurvegi & tveir gamlir Scania metanvagnar. Það er aukinheldur ánægjulegt að sjá forsvarsmenn byggðasamlagsins vera áfjáða um að fjölga umhverfisvænum vögnum þótt ýmis tilstand kann að fylgja slíkum ákvörðunum.

árskýrsla2Þá hefir verið í umræðunni að Strætó endurnýi & fjölgi metanvögnum sínum. Töluverður kostnaður kann að hljótast að því að fá fleiri metanvagna hvar lögnin fyrir metangasið er staðsett í nokkurri fjarlægð frá höfuðstöðvum vagnanna við Hestháls. 

Hvað um það. Dr.-inn hlakkar mikið til vetnisvagnanna & vonar að tímasetningar standist & við sjáum þá á vígvöllum veganna á þessu ári.




Lítt á leið ...

Lítt í vögnum verið
virkilega sárt.
Eru samt akkerið
það er alveg klárt!

Hinn skarpsýni & skýri dr. Gylforce hefir ekki siglt á sælum sel hvað vagna varðar, hvar alltof margir dagar hafa liðið frá síðustu vagnarannsóknum doktorsins. Illu heilli! Hva e a sge???

Gylforce-inn þarf að gera bragarbót á þessu - maður lifandi.

Þetta er hneisa, háðung, & hneyksli; sneypa & smán. Punktur.



Borgarlínan brunar af stað ...

CaptureUppbygging borgarlínu

Hepst nú ferlið formlega
í fyrstu þessu kveið.
Verkefnið met´& vega
velja fyrstu leið.

Í ár hefst formleg uppbygging á Borgarlínunni svokölluðu sem gerbreyta mun almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu.

Þótt framkvæmdin sé umdeild - enda afar dýr framkvæmd & ekki alveg fyrirséð hvernig íbúar munu taka Borgarlínunni - er ljóst að drastískra aðgerða er þörf í umferðinni - & þótt fyrr hepði verið. Um það eru allir sammála.

1093913Auk Borgarlínu er í deiglunni töluverðar vega- og göngustígaframkvæmdir sem er líka mikilvægt en fram til ársins 2030 gera spár ráð fyrir um 40% aukningu á heildarakstri á höfuðborgarsvæðinu, & um 24% miðað við breyttar ferðavenjur (fleiri ferðir með almenningssamgöngum, hjólandi og gangandi). Maður lifandi!

Líklegt má teljast að í 1. áfanga af Borgarlínu verði hafist handa við línur frá Hafnarfirði að miðbænum & annaðhvort frá Grafarvogi eða Mosfellsbæ áleiðis niður í bæ. Línur þessar hafa fengið merkinguna A & B & eru í dag meðal fjölförnustu leiða í leiðakerfi Strætós. 

StodinAukinheldur hefir Strætó bs. hrint af stað vinnu við að aðlaga hið lostfagra leiðakerfi vagnanna að Borgarlínunni enda meikar það lítinn sens að hafa t.d. leiðir 1 & 6, sem aka frá Firði & Grafravogi í miðbæinn, í núverandi mynd þegar línan hefur göngu sína. 

Enn & aptur; það eru því afar spennandi tímar framundan!


Gaflarar taka gleði sína ...

44Gleði meðal Gaflara
sem göfga mun Fjörðinn.
Aukin tíðni - alvara
upp fylla í skörðin.

Nýtt leiðakerfi í Firðinum

dr costco2Hið opinbera kerfi tekur sér ávallt dágóðan tíma til ákvarðana sem er máske ágætt. Þessi misserin hefir leiðakerfið í Firðinum verið til skoðunar & vonandi rofar nú til svo nauðsynlegar breytingar nái fram að ganga á þessu ári. Nema hvað.

112Enda þótt dr. Gylforce sé ekki eilífur augnakarl í Firðinum góða, þá hefir honum ávallt fundist leiðakerfið þar innabæjar óreiðukennt, að ekki sé nú minnst á leiðanúmer vagnanna. Maður lifandi!

Alltof mörg leiðanúmer eru á vögnunum aukinheldur sem akstur þeirra hefir vakið furðu doksa
kallsins.

Nú er lagt til að einungis þrjár leiðir verði hjá Göflurunum; leið 1, 21 & nýtt leiðanúmer 41 (lúkkar vel) aukinheldur sem leið 21 mun aka á 15 mínútna fresti á annatímum. Vel gert!

57194-1507108690Einhverjar stoppistöðvar munu heyra sögunni til en aðrar líta dagsins ljós eins & von er þegar svona drastískar breytingar eiga sér stað. Skoða þarf vel hvernig það kemur út fyrir oss vagnverja.

Vonandi verða þessar breytingar að veruleika í ágúst svo einfaldara verði að taka vagninn suður í Firði. Enn ekki hvað???

Amen.


Neðsta mynd: 1819.is



Reitur & hæð ...

1037458Fólki á hæðinni fínu
fjölgar saman smám.
Betra fyrir Borgarlínu
bölvað fyrir nám.

Sjómannaskólareitur & Veðurstofuhæð

borgarlínanReykjavíkurborg heldur áfram þéttingarstefnu sinni & hyggst á næstu misserum breyta Sjómannaskólareitnum og Veðurstofuhæðinni í byggð. Nema hvað.

Nú hefir verið samþykkt breytingartillaga við aðalskipulag svæðisins hvar gert verður ráð fyrir enn fleiri íbúum á svæðinu en í fyrstu.

StodinÞað mun hafa góð áhrif á fyrirhugaða Borgarlínu sem verður að öllum líkindum allt þarna í kring. Hvað um það.

Aukinheldur hefst nú Strætó bs. á næstunni handa við að aðlaga leiðakerfi sitt að að Borgarlínunni & hefir sett starfshóp á laggirnar. 

Spennandi - en ekki hvað???


Meira af metan ...

57415238_428905894539102_8021642506716315648_nGylforce brenndur & bitur
böðlast samt á leið.
Fráleitt er verjinn vitur
sem væflast í bifreið.

Hinn sívali & síþreytti dr. Gylforce sá í gögnum byggðasamlagsins að gert er ráð fyrir um 300 milljónum króna til vagnakaupa árlega á næstu fimm árum. Máske þykja mönnum það dágóð upphæð en er það svo???

Ef festa á fjár í umhverfisvænum vögnum, eins & fleiri rafvögnum úr Austurvegi, fást um fjórir vagnar á hverju ári. Það eru nú öll herlegheitin aukinheldur sem ólíklegt þykir að fleiri komi þaðan; bíða skal & sjá hvernig þessir fjórtán sem þegar eru hér, reynast á vígvöllum veganna.

57176837 2135848529838466 2417021338637041664 nLíklegt má telja að eigi fleiri rafvagnar komi í bili enda hefir Strætó bs. gefið það út að ætlunin sé að kaup metanvagna í ár. Jibbíkóla!

Dr.-num líst afar vel á það. Akureyrarbær er með þrjá slíka í rekstri - & gengur vel - aukinheldur sem verð á einum slíkum er umtalsvert lægra en á rafvagni. Kaupa má um sjö metanvagna fyrir um 300 milljónir króna í stað fjögurra rafvagna.

12345Vonandi verður umboðsaðili Scania hlutskarpastur í útboði sem nú stendur fyrir dyrum & vér vagnverjar komum til með að sjá nýja sænskættaða metanvagna á vígvöllum veganna hér syðra á þessu ári.

Maður lifandi!!!

Amen. 


Ömurð Oddeyringa ...

57726535_310930282936376_306259570823528448_nDagar tveir ömurð ein
öngvinn er þá vagn.
Endalaust vol & vein
virkilegt bölv & ragn.

Undirskriptir um breytingar

Það er ljóst að tíðni vagna hér nyrðra skorar ekki hátt hjá hinum létta & netta dr. Gylforce. Maður lifandi!

Á þjáningardeginum mikla hugði dr. Gylforce taka leið 6 við Hafnarstrætið. Nema hvað.

Vagninn á að koma þar ca. 55 mínútur yfir heila tímann. En ekkert gerðist.

57415238_428905894539102_8021642506716315648_nDr. Gylforce beið & beið - & beið & beið. Þá fékk hann uppljomun & uppgötvaði; líklega er öngvinn akstur hvorki á föstudaginn langa né páskadag hér nyrðra.

AlbumImage (12)Illu heilli.


Sem betur fer var dr. Gylforce sem eilífur augnakarl í metanvagninum á skírdag & tók nokkra unaðshringi. En ekki hvað???

Þessi tíðni nyrðra - maður minn! Hér verður að gera betur enda öngvu líkara en að hluti af íbúum vilji aukna þjónustu eins og sjá má í slóðinni efst.

Amen.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband