Færsluflokkur: Lífstíll
Í vagna varanlega leyfð
verjunum til góðs.
Þau sitja öll óhreyfð
öngvan bíta til blóðs.
Gæludýr til góðs
Á dögunum bárust þær gleðifregnir úr ranni Strætós þess efnis að byggðasamlagið hyggst sækja um varanlegt leyfi til þess að hafa gæludýr í vögnunum.
Tilraunaverkefni hefir tekist vel til & segjast um helmingur vagnstjóra & vagnverja vera ánægt með þessa tilhögun að hafa gæludýr í vögnunum. En ekki hvað???
Aðeins um tíu athugasemdir hafa borist Strætó frá vagnverjum vegna dýranna sem er nú ekki mikið miðað við umfang leiðakerfisins, fjölda vagna & vagnverja.
Þetta gleður hinn kattþrifna dr. Gylforce & augljóst með öllu að öngvinn hundur er í okkur vagnverjum.
Amen!
Myndir: frettabladid.is & stundin.is
Lífstíll | 5.9.2019 | 21:42 (breytt kl. 21:45) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gylforce-inn í sýruferð sat
seinkun, hann beið & beið.
Enginn í vagni - ekkert plat
& ekki var hann á leið!!!
Dr. Gylforce rak heldur betur í rogastans hvar hann í sakleysi sínu hugðist taka leið 3 síðdegis í gær á fögrum haustdegi. Nema hvað.
Dr.-inn beið & beið við Hlemmtorgið & eptir um tíu mínútna seinkun kom loksins þristurinn á B-vachtinni. Doksi kallinn sá aukinheldur að ansi margar leiðir fóru úr skorðum þennan dag & nokkrir vagnar voru búnir að hringa hvern annan eins & sagt er. Hvað um það.
Dr. Gylforce hapði setið aðeins stutta stund í vagninum hvar hann tók eptir því að hann var eini vagnverjinn. Í skyndi ók vagnstjórinn skrýtna leið sem leið 3 fer alls ekki aukinheldur sem hann nam hvergi staðar.
Hva va a sge??? Var þetta ekki leið 3??? Eða Hraðferð-Kleppur??? Eða hraðvagninn sem hvergi nemur staðar eins & eftirminnilegt var í stiklu Radíusbræðra hér forðum daga. Hraðvagn Radíusbræðra
Nú voru góð ráð dýr, rándýr.
Eptir mikinn glannaakstur & nokkur hundruð Maríubænir doktorsins, grát & gnístran tanna stöðvaði vagnstjórinn loksins för við Mjódd okkar Breiðhyltinga & doksi hoppaði (bókstaflega) út.
Hjúkk!
Hvaða rugl var nú þetta? Gerðist þetta eða var þetta bara draumur???
Lífstíll | 3.9.2019 | 08:23 (breytt kl. 08:35) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Í glæsivagninum geðþekka
sá görótti til taks.
Mögnuð var ferðin til Mekka
mig langar aptur strax.
Hún var heldur betur eftirminnileg nóttin sem dr. Gylforce átti í þessum unaðsvagni ásamt unnustunni um helgina. Maður lifandi!
Á Kjalarnesi hafa einhverjir snillingar tekið sig til & breytt tveimur gömlum strætisvögnum í hótelgistingu. Óhætt er að segja að ákaflega vel hafi tekist til en þarna er að finna Volvo liðvagn & venjulegan sænskættaðan vagn.
Já, þetta var efalítið ein besta nótt doksa í háa herrans tíð & getur hann vart beðið eptir að komast í unað þennan aptur.
Yfir&út!
Lífstíll | 1.9.2019 | 18:44 (breytt 2.9.2019 kl. 20:55) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vagninn í aðra átt
á öfugum vegi?
Mun nást saman sátt?
Slíkt veit ég eigi.
Vill strætó á öfugar akreinar
Hún er allra athygliverð tillagan sem framkvæmdastjóri Strætós setti fram á Rás 2 í morgun. Reyndar hefir þetta heyrst áður en nú er ljóst að aðgerða er þörf & bið er eigi í boði lengur.
Framkvæmdastjórinn vill að vagnarnir fái að aka á akrein í hina áttina á annatíma, hvar fáir eru á ferli í gagnstæða átt við umferðarþungann. Eðli málsins samkvæmt eru allir á sömu leið & því vel hægt að nota eina akrein í hina áttina fyrir vagnana. Þetta er í senn vel gerlegt og spennandi verkefni.
Hinsvegar þarf væntanlega töluverðar framkvæmdir til þess að unnt sé að koma þessu í kring & huga sérstaklega vel að öryggisþættinum.
Þar sem þetta hefir verið gert erlendis er opt notast við steypuklumpa sem eru ofan í jörðu & settir eru upp á ákveðnum tímum, t.d. á morgnana virka daga & síðdegis.
Vonandi verður þetta skoðað strax af alvöru því ljóst er að umferðarmálin eru í ólestri í borginni & ekki nóg að bíða bara eptir Borgarlínunni.
Strætó er alveg jafn fastur í umferðinni á flestum stöðum eins & aðrir. Alltof fáar sérakreinar eru fyrir hendi en um það hefir dr. Gylforce rætt & ritað hér á þessum vettvangi í urmul ára.
Koma svo!
Yfir&út!
Lífstíll | 30.8.2019 | 12:28 (breytt kl. 16:25) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Lífið eru lyklar
er leita að skrá.
Leiðir eru miklar
sem langar mig að sjá.
Nú sem fyrr eru vagnarnir - vinir vorir - heldur betur í þjóðfélagsumræðunni. Nema hvað - maður lifandi!
Umferðarþunginn á höfuðborgarsvæðinu á morgnana virðist vera að ná nýjum hæðum eða lægðum öllu heldur, hvar halarófurnar lengjast bara og lengjast. Illu heilli.
Vefmiðillinn mbl.is fór á stúfana & hefir verið að velta umferðartöfunum fyrir sér. Eitt innslagið leit dagsins ljós í dag hvar skólameistari Borgarholtsskóla í Grafarvogi var tekinn tali vegna umferðarþungans. Af loptmynd af skólalóðinni hjá honum að dæma virðist hver einasti nemandi - 1350 stykki - vera á bíl með tilheyrandi plássi fyrir þann fararskjóta. Það eru MÖRG bílastæði!
Skólameistari vill frítt í strætó
Skólameistarinn ræddi þar að margir nemendur hans séu um 1,5-2 klst. á leið til og frá skóla. Ef við gefum okkur það að nokkur hundruð nemendur séu einn & hálfan tíma til & frá vinnustað sínum virðast þeir vera um 45 mínútur hvora leið, ekki satt? Það finnst meistaranum alltof langur tími ef dr.-inn skilur viðtalið rétt.
Ósjálfrátt fór dr. Gylforce að líta í eigin barm. Kom þá upp úr dúrnum að dr.-inn er 32 mínútur frá Stútulautarseli sínu að mennta- & menningarsetrinu við Kársnes. Hafa ber í huga að Borgarholtsskóli er lengst upp í Grafarvogi & seint talinn í miðju höfuðborgarsvæðisins eða hvað???
M.o.ö. það er ekki skelfilegur ferðatími fyrir ungmenni að ferðast 45 mínútur í skólann sinn. Þá klykkti skólameistarinn út með því að langbest væri að gefa grunn- & framhaldsskólanemendum frítt í strætó. Það er fín hugmynd svo sem - tökum hana síðar.
Hvað um það. Á morgun hyggst dr. Gylforce taka sér far með einum blágulum vagni & halda í vesturátt. Hipp-hipp húrreyyy!
Í blágulan brátt held
Borgarnes mér kynni.
Í kósístund & kveld
með kærustunni minni.
Lífstíll | 29.8.2019 | 22:32 (breytt kl. 22:34) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hinn lúrni & letilegi dr. Gylforce lagði af stað í unaðinn - vagnana - í morgunsárið, hvar hann loksins gat litið aðeins á stemmninguna snemmindis. Nema hvað.
Munaður í morgunferð
með mínum vinum.
Bíltúrinn af bestu gerð
bið ég fyrir hinum.
(sem ekki nýta sér unað þennan)
Dr. Gylforce fékk vitaskuld rafvagn á leið 4 & var ekki lengi að nýta sér töskuhólfið í þessum kynngimagnaða & umhverfisvæna vagni frá kommúnistunum í Kína. En ekki hvað???
Ferðin var þéttskipuð - góðu heilli - & aksturslag vagnstýrunnar til fyrirmyndar.
Dr.-inn gerði svá stuttan stans í leið 35 frá þeim Kynnisferðum til þess eins jú að komast í mennta- & menningarsetrið hér við Kársnes & kastala. Hann var heldur kaldur & napur stutti Iveco Crossway vagn þeirra & greinilega ekki búið að hita hann nógu vel upp fyrir okkur vagnverjana.
Koma svoooo Kynnisferðir - koma svoooo!
Lífstíll | 29.8.2019 | 08:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Öngvin árskort til?
Hún er heldur skrýtin fréttin þess efnis um að einhver handvömm hafi orðið þess valdandi að ekki eru til nein árskort til þess að gefa út hjá Strætó bs þessi dægrin. Maður lifandi!
Vonandi kippir starfsfólkið því í liðinn en það kemur aukinheldur farm í fréttinni að hægt er að notast við Strætóappið á meðan á þessu óþægindatímabili stendur.
App er happ!
Vörumerking í vitleysu
verjar með ekkert kort.
Verðum að vera án reisu
vont er að líða skort.
Lífstíll | 28.8.2019 | 23:15 (breytt kl. 23:19) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Er lífið á tundr´& tjá
& tilgangslaus þula?
Finndu þína ferðaþrá
farðu með þeim gula.
Farþegum fjölgar
Það berast heldur betur ánægjuleg tíðindi úr ranni Strætós bs. hvar farþegum/vagnverjum hefir fjölgað um heil 400.000 á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við árið í fyrra. Hipp-hipp-húrrey!!!
Það hefir nú verið kveikt í vindlum við minna tilefni - maður lifandi!
Eins & optsinnis hefir verið rætt & ritað um hjer þarf stjórn & starfsfólk byggðasamlagsins að hafa þolinmæði í störfum sínum & einnig sveitarstjórnarmenn á höfuðborgarsvæðinu.
Dropinn holar steininn.
Nú er bara að halda áfram á sömu braut & reyna með öllum tiltækum ráðum að hækka hlutfall Strætós í heildarferðum fólks á höfuðborgarsvæðinu. Illu heilli hefir sú tala - sem er í dag 4% - staðið í stað í of mörg ár.
Nú er lag.
Yfir&út!
Lífstíll | 27.8.2019 | 23:46 (breytt kl. 23:52) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hinn dagfarsprúði & dreymandi dr. Gylforce dólaði sér í hringleiðirnar um Kársnes þeirra Kópvæginga í gærkvöldi. Nema hvað.
Leiðir 35 & 36 virðast hafa svipaðan fjölda af vagnverjum samkvæmt talningu byggðasamlagsins sem er gleðiefni. Doksi kallinn tók tvo rúnta með leið 35 & einn með leið 36 síðla kvölds hvar það örlaði á örlítilli rigningu. Maður lifandi!
Vagnstjórar á leiðum 35 & 36 hepðu mátt hafa puttann aðeins betri á púlsinum hvar þeir lögðu í bæði skiptin tveim mínútum of seint af stað úr Hamraborginni. Hvað um það.
Dr. Gylforce lauk ferðum sínum með fjarkanum frá Hamraborginni háu & fögru yfir í fegursta lautarsel jarðarinnar. Ekki spillti fyrir að fá hinn umhverfisvæna vagn úr Austri. Nema hvað.
Um Kársnesið ég keyrði
kósí leið & greið.
Horfði ýmist & heyrði
er hann var á leið.
Lífstíll | 21.8.2019 | 19:50 (breytt kl. 19:51) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Strætó kynnir með stolti
stystu leiðina pent.
Nauthóll að Norðlingaholti
nú er komin í tvennt.
Í dag hófst ný leið hjá Strætó bs. sem þó er ekki ný af nálinni. Byggðasamlagið hefir nefnilega stytt leið 5 - er ekur jafnan frá Nauthól að Norðlingaholti - & gert að tveimur leiðum á annatíma & á kvöldin virka daga. Hefir nýja leiðin fengið númerið átta. Nema hvað.
Dr. Gylforce beið öngvra boða & brunaði að BSÍ um leið & hægja tók á skylduverkum dagsins. En ekki hvað???
Ekki voru margir vagnverjar í þessari stuttu ferð sem er einungis frá BSÍ að Nauthól & Háskólanum í Reykjavík.
Með breytingu þessari er fyrst & fremst verið að reyna að bæta stundvísi leiðar 5 & vonum vér allir vagnverjar að sú verði nú raunin í framhaldinu.
Dr. Gylforce býður leið 8 velkomna á vígvelli veganna þótt honum finnist þessi eina breyting fyrir veturinn heldur snubbótt.
Yfir&út!
Lífstíll | 19.8.2019 | 23:17 (breytt 20.8.2019 kl. 07:58) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar