Færsluflokkur: Lífstíll
Í strætóskýlum stafrænu
standa þar verjar senn.
Í gegnum þau dökkgrænu
gustar þó vindur enn.
Strætóskýlin stafrænu
Nú hafa verið sett upp tvö svokölluð stafræn strætóskýli sem vér vagnverjar munum vonandi taka fagnandi. Aðallega er dr. Gylforce spenntur fyrir nýjum "fídus" í þeim hvar hægt verður að vita hvursu langt er í næsta vagn. Nema hvað.Sett verða upp 210 stafræn skýli en í aðeins um 50 þeirra verður stafrænt rauntímakort & hægt að vita hvenær næsti vagn kemur. Af hverju það er aðeins í um fjórðung skýlanna áttar dr.-inn sig ekki á en vonandi verðum þeim svo fjölgað hægt & rólega.
Dropinn holar jú steininn.
Annað af skýlunum er að finna við Kringlumýrarbraut & í þessum töluðu orðum (eða því sem næst) er dr. Gylforce á leiðinni þangað.
Yfir&út!
(efri mynd: mbl.is)
Lífstíll | 17.8.2019 | 10:37 (breytt kl. 10:42) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vetrarætlunin volduga
Vetraráætlun Strætó bs. hefst sunnudaginn 18. ágúst eða í reynd mánudaginn þann 19. Nema hvað.
Ekki verða gerðar margar breytingar fyrir veturinn eins & fyrr hefir komið hér fram en þó ert vert að tæpa á því helsta. En ekki hvað???Leiðir sem fengu illu heilli 30 mínútna tíðni í sumar snúa aptur í kortersæluna. Það eru leiðir 18, 24 & 28.
Gott verður að tylla sér á ný í þær & má segja að leiðir þessar verði á vetur setjandi með þessari breytingu.
Dr. Gylforce hepði viljað sjá Strætó bs. aðeins framsæknara & breyta fleiru eins & margopt hefir verið minnst hér á. Vonandi nær byggðasamlagið að einfalda & betrumbæta leiðakerfið í Firðinum næst & einnig að huga að tengingum milli vesturbæjar í Reykjavík, Seltjarnarness & Granda svo fátt eitt sé nefnt.Aukinheldur vonar dr. Gylforce að sem flestir festi nú fjár í samgöngukorti en slíkt er 12 mánaðakort á verði 9 mánaða & sparar vagnverjum heldur betur.
Bráðlega nú brestur á
með breytingum fáum.
Vetraráætlunin - vá
með verjunum knáum.
Við stóru dekkin dáum
& drifkraftinn ó-já.
Í sparseminni spáum
& spjöllum saman smá.
Efstu 3 myndir: Facebook-síða Strætó
Lífstíll | 15.8.2019 | 18:16 (breytt kl. 18:23) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Auka fyrir Edara
svo allir sjái
þennan mikla meistara
músikina dái.
Eddi og aukavagnarnir
Hinn rauðbirkni tómatsósuunnandi hefir gert allt vitlaus á Fróni þessa helgina, hvar vinir vorir - vagnarnir - hafa ekki farið ekki varhluta af því. En ekki hvað???
Reikna má með um 50.000 manns á tvenna tónleika með hinum geðþekka Ed Sheeran & því ljóst að mikinn fjölda aukavagna þarf til að mæta öllu þessum vagnverjum. Strætó bs. hefir sent um 40 aukavagna á vígvelli veganna auk þess sem strætóskutlur hafa ekið frá Kringlu að Laugardal. Það er því nóg um að vera um helgina. Nema hvað.
Ekki eru þó allir sáttir við framkvæmd tónleikanna & ekki annað að sjá en talsverð sýra hafi verið hjá tónleikahöldurum varðandi skipulagið.
Eintóm sýra Sheeran
Hvað um það. Hvað veit dr.-inn um það???
Yfir&út!
Lífstíll | 11.8.2019 | 20:06 (breytt kl. 20:29) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Af stað er hrint hinsegin
með hátíðarvagni.
Í göngunni ég öreiginn
arka mun með lagni.Gleðirendur, prjál & glys
glingur í miklu magni.
Um alla borg ys & þys;
endum fjör í vagni.Hinsegin dagar eru hafnir í henni Reykjavík & góðu heilli tekur Strætó bs. fullan þátt í þeim í þriðja sinn. En ekki hvað???
Strætó hefir skreytt fallega 107 rafvagninn & vonandi sést hann á sem flestum leiðum næstu daga. Nema hvað.Margt & mikið verður um að vera á Hinsegin dögum og munu þessir dýrðardagar ná hámarki með gleðigöngunni margrómuðu hinn 17. ágúst næstkomandi.
Vonandi njóta vagnverjar allra litbrigða lífsins meðal vagna & fjölbreytileikanum megi þeir hvarvetna í hvívetna fagna.
Amen.
(næst efsta mynd: dv.is, hinar: straeto.is)
Lífstíll | 10.8.2019 | 00:04 (breytt kl. 00:11) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Einn & yfirgefinn
ætl´um borg & bý.
Hverfur allur efinn
er ég sit þeim í.
Malbikun við Mathöll á miðvikudegiVonandi gekk vagnverjum vel að komast leiðar sinnar við Hlemm & Mathöll hvar malbikun á Snorrabraut milli Laugavegs og Hverfisgötu kann að hafa sett strik í reikninginn þennan annars fagra miðvikudag. Nema hvað.
Illu heilli átti dr. Gylforce ekki heimangengt við Hlemmtorgið að þessu sinni til þess að sjá hvurning gekk. Á morgun er svá gert ráð fyrir því að allt detti í ljúfa löð & vagnar verði á réttu róli & vappi.
Yfir&út!
Lífstíll | 7.8.2019 | 20:59 (breytt 10.8.2019 kl. 00:08) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sá bláguli nú bíður þín
brunar út í Eyjar
í vindlinga & hellings vín
& villtar meyjar.
Sá bláguli siglir
Dr. Gylforce vonar að vagnverjar nýti sér aukaferðirnar með þeim blágula á leið 52 ef þeir hyggja á hina stórskemmtilegu Þjóðhátíð í Eyjum um verslunarmannahelgina.
Góða skemmtun!
Lífstíll | 2.8.2019 | 14:00 (breytt kl. 14:06) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sá guli okkur sparar spöl
spóka ég mig í vagni.
Sit í honum ef indælis öl
ég teyg´í miklu magni.
Hinn fyrrum rauðbirkni & ratvísi dr. Gylforce hefir ráð undir rifi hverju & rjátlaðist loxins á vit vagna. Nema hvað.
Rafvagnar voru fyrirferðarmiklir á kvöldvachtinni. Það gladdi hið gamla hró dr.´s að sjá alla fjóra vagnana á fjarkanum vera hljóðláta & umhverfisvæna. En ekki hvað???Þetta þýddi urmul af þrásetum í þessum geðþekku rafvögnum sem ættaðir eru frá kommúnistunum í Austri & voru ferðir þessar hvorki þurrtruntulegar né þungsóttar, heldur uppfullar af andagift & unaði. Hvað um það.
Það var ákaflega gott að komast á ný á vit vagna & mun dr. Gylforce efalítið verða sem eilífur augnakarl í vinum vorum á morgun.
Góðar stundir - í vögnunum.
Amen.
Lífstíll | 1.8.2019 | 23:48 (breytt kl. 23:49) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Virtur að vettugi
vont er ómakið.
Bílstjóri syndugi
segðu afsakið.
Virtur að vettugi
Það bárust ekki góðar fréttir af vagnstjóra einum - líklega á leið leiðanna, leið 1 - varðandi samskipti hans við vagnverja einn. Sá er bundinn hjólastól og vildi vitaskuld taka sér far með vinum vorum, vögnunum.
Vagnstjórinn hafnaði því & taldi sig ekki þurfa að aðstoða verjann við að komast inn í vagninn. Það er gegn vinnureglum Strætó og veit dr.-inn mætavel að byggðasamlagið mun bregðast hratt og örugglega í þessu máli.
Góðu heilli heyra svona leiðindaatvik til undantekninga.
Yfir&út!
Lífstíll | 22.7.2019 | 08:59 (breytt kl. 09:00) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fullur af víni var hann
vitlaust þetta geim.
Laganna verðir - löggan
lullaði með hann heim.
Víndrukkinn vagnverji
Dr. Gylforce, sem hvorki er haldinn þröngsýni né þurrafúa, þaut á vit vagna um leið & færi gafst í mildu og fallegu veðri hér í höfuðborginni. En ekki hvað???Dr.-inn sá ekki betur en að flestir vagnverjarnir væru allsgáðir - góðu heilli - en doksi kallinn nældi sér í ljúfar langdvalir með leiðum 12 & 18 að þessu sinni. Nema hvað.
Dr. Gylforce komst enn & aptur i kynni við rafvagna á leið 18. Hann nýtti sér heiðgulu körfuna & setti þar allar vörur sínar (sem voru nú ekki ýkja margar!). Hvað um það.
Dr.-inn þrýsti sér í þrásetu góða á leið 12 frá Ártúni að Hlemmtorgi.
Það gladdi hans gamla hró að sjá hve vel vagninn var nýttur en hin tólfta leið er orðin sú næst fjölmennasta í hinu lostfagra leiðakerfi okkar.
Amen.
Lífstíll | 17.7.2019 | 17:02 (breytt kl. 17:06) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Rafvagnar á randi
rétt náðum í þá.
Veit að þeirra vandi
viðbótin´að fá.
Hinn ungi & aldni vagnverji héldu í unaðsrúnt frá selinu góða að Mjódd okkar Breiðhyltinga í gær. Nema hvað.
Vitaskuld fengu feðgarnir rafvagn, hvar hann skilaði þeim á hárréttum tíma á kórréttan stað. En ekki hvað???Fleiri rafvagnar litu dagsins ljós í Mjóddinni. Enn bólar þó ekkert á hleðslustöðvum fyrir þá og meðan svo er geta þessir umhverfisvænu vinir okkar úr Austri ekki verið í fullri notkun. Illu heilli.
Að vissu leyti skilur maður stöðu byggðasamlagsins varðandi hleðslu á rafvögnunum. Hvar á hún að vera? Í fyrstu hlýtur Hlemmur að vera hentugur staður en erfitt gæti verið að réttlæta kostnaðinn við að koma upp hleðslustöð þar þvi flutningur vagnanna þaðan stendur fyrir dyrum á allra næstu árum.
Í Mjóddinni stoppa leiðirnar stutt við svo erfitt gæti verið að hafa hleðslustöðina þar.
Þá eru til svokallaðar þakhleðslustöðvar sem ná að hlaða vagninn í allt að 80% á undraskömmum tíma. Slíkar stöðvar útheimta þó mikið rafmagn og eru eflaust dýrar í uppsetningu.
Hvað sem því líður er heldur slappt að rafvagnarnir nái ekki að vera í notkun frá morgni til miðnættis en skipta þarf þeim út á miðjum degi og hlaða þá uppi á Hesthálsi.
Lífstíll | 17.7.2019 | 10:41 (breytt kl. 10:45) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Ágúst 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.8.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 28
- Frá upphafi: 124034
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar