Hið bljúga bílleysi ...

downloadEkki þarf bíl að brúka
ef bruna þarf út.
Í umferðinni að húka
við endum niðurlút.

Bíllaus lífsstíll 

Hér að ofan er fyrirtaksgrein um ágæti þess að nota aðra samgöngumáta heldur en einkabílinn. Viðkomandi hefir verið án bifreiðar í 18 mánuði & tekið vagninn grimmt & líkað það vel. En ekki hvað???

Það er jú byrjunin.

Dr. Gylforce hefir einmitt ljáð máls á þessu hér & hvatt fólk hvarvetna í hvívetna til þess að hafa ferðamáta sína sem fjölbreyttasta.

Höfum það í huga; það þarf ekki að fara allar ferðir sínar með óvininum því vagnarnir eru vinir okkar!



Nafnasamkeppnin hafin ...

octopusStórgóð keppni fer af stað
stemmning eins& sportið.
Vagnverja fyrir - nema hvað
sem vinna árskortið.

Nafnasamkeppni

Mínir virðulegu vagnverjar!

Nú er röðin komin að ykkur. Nafnasamkeppni á heildar greiðslukerfi sem Strætó hyggst koma á legg er hafin. 

Eins & segir í frétt frá Strætó mun nýja greiðslukerfið veita aðgang í Strætó á höfuðborgarsvæðinu og Borgarlínu.  Aukinheldur eru áætlanir uppi um að kerfið greiði leið að fleiri vistvænum samgöngumátum eins og hjólaleigum og deilibílum og jafnvel enn frekari þjónustu í framtíðinni.

61cfe32d29a5a4626311Fyrirmyndir af korti þessu eru t.d. frá London með Oyster-kortinu, Rejsekort í Kaupmannahöfn og OV-chipkaart í Amsterdam.

Koma svo vagnverjar - leggið höfuðið í bleyti & komið upp með skemmtilegt nafn.

Illu heilli getur dr. Gylforce ekki tekið þátt í þessu hvar hann situr í dómnefndinni. Og verðlaunin eru ekki af verri endanum - árskort í unaðinum - maður lifandi!


Ferðamáti & loftslagskvíði ...

DtY_2Oz_qamq_2400x1260_Z1s0OL9m_fbLoftslagskvíði leitar á
landsmenn - ekki skrýtið.
Ferðamáti til & frá
frekar breytist lítið.

Loftslagskvíði

Í fréttum Ríkissjónvarpsins um helgina kom nokk merkilegt fram hvar fréttamaður fór á stúfana & spurði fólk um loftslagskvíða og ferðamáta.

62206_432037993347_1520205_nÞar kom fram að töluverður hluti fólks hefir áhyggjur af loftslagsmálum. Aukinheldur var vísað í könnun hvar fram kemur að um fimmtungur landsmanna ber nokkurn kvíðboga varðandi þessi mál. 

nýtt leiðanetÖngvu að síður hapði enginn viðmælandi fréttastofu breytt ferðavenjum sínum. Kannski er það ekki skrýtið en svo virðist sem illa gangi að fá höfuðborgarbúa til þess að nota t.d. almenningssamgöngur. Hlutfall ferða hefir staðið í stað um alllangt skeið, er aðeins um 4% af öllum ferðum, og virðist ganga erfiðlega að hækka þá tölu.

Strætó bs. er vitaskuld meðvitað um þetta og hefir hafið sókn með nýju leiðaneti sem er í vinnslu samfara hinni margumtöluðu Borgarlínu.

Vonandi verður breyting á þessu á næstu árum & áratugum enda fátt í boði annað en að hvetja almenning til þess að ferðast á sem fjölbreyttastan hátt. 


Fjölga þarf í flotanum ...

Annar hvítur kominn hér
keyrir um á metan.
Sænskættaður eðall er
umhverfisvæn er setan.

Strætó bs. hefir sett í umferð annan hvítan metanvagn handa oss vagnverjum & umhverfinu til heilla. Nema hvað.

Byggðasamlagið hefir því þrjá umhverfisvæna metanvagna til umráða - einn heldur gamlan - ásamt rafvögnunum fjórtán úr Austri. 

Samt sem áður er alltof fáir vagnar í þessum flokki eða aðeins um 11-12%; gera þarf gangskör í því að fjölga vögnum þessum & veit dr. Gylforce að stjórn samlagsins er því sammála. Á þessu ári er ætlunin að gefa vel í varðandi endurnýjun vagnaflotans & vonandi ber forvígismönnum Strætós gæfa til þess að festa eingöngu fjár í vistvænum vögnum. En ekki hvað???

MBL0099136Aukinheldur er það allra athyglisvert að hvorugur verktakinn sem annast akstur fyrir Strætó sér hag sinn í að nota umhverfisvæna vagna. Af hverju ætli það sé???

Hvað sem því líður hyggst dr. Gylforce fara á fjörurnar við hinn nýja hvíta víking eins fljótt & kostur er.

Amen.


Strætóbíó á Safnanótt ...

10933110-3x2-700x467
Bílabíó

Það var einkar vel til fundið hjá Kvikmyndasafni Íslands & Hafnarfjarðarbæ að bjóða upp á bílabíó á Safnanóttinni. 

Enn betra var að hafa forláta strætisvagn til taks fyrir þá sem ekki voru á einkabílnum - óvininum - en vildu koma & upplifa þessa skemmtilegu stemmningu. 

3901_500Sýndar voru myndirnar Stuttur frakki og Sódóma Reykjavík & hepði nú dr. Gylforce mikið viljað vera þarna en það tókst ekki að þessu sinni. Illu heilli.

Vonandi verður þetta endurtekið með vagninum svá doksi kallinn geti komið, setið & notið mynda í botn í unaðslegum strætisvagni.

Bílabíó á Safnanátt
bus-inn góð hugmynd.
Kók & popp, á hjalla kátt
komst þó ekki - synd!



Yfir&út!


Þrúgandi þvottavélasleikur ...???

kissVagnverjinn vill góða nánd
vera kátur & keikur.
Í athöfninni er varla sánd
aðeins djúpur sleikur. 

Sleikur-inn

Vitaskuld eru vagnverjar misjafnir eins & þeir eru margir. Einn nokk þekktur Twittermaður & verji tísti á dögunum um reynslu sína af vagnaferð & virtist ekki vera par sáttur.

busses-2107-29954b7f4d9cbcdb83e3ea664db3b699@1xI sætinu fyrir framan hann var par sem var opt & einatt í sæmilega góðum sleik; virtist þetta trufla upplifun hans af unaðinum, illu heilli.

Dr.-inn tekur nú ekki undir þetta. Hann hefir endrum & sinnum setið í vögnum hvar amorinn svífur yfir vötnum (vögnum?). Honum finnst það bara fallegt & truflar hann ekki hætishót. 

Það var verra hér í denn þegar menn voru að gera þarfir sínar í næturvagninum sem þá ók frá Lækjartorgi upp í Hamraborg, austur Álfhólsveg að Mjódd & endaði suður í Firði. 

Í þeim ferðum gerðist margt mjög skrýtið enda voru þær ekki langlífar. Maður lifandi!


Ungviðinu kennt á strætó ...

61818259 371759333470825 5134378891195973632 nÍ framtíðarferðamátum
fjör er og gaman.
Lengi sitjum, ei með látum
losunin dregst saman.

Í nokkur ár hefir dr. Gylforce farið fyrir athyglis- & áhugaverðum áfanga fyrir mennta- & menningarsetrið við Kársnes hvar hann kennir ungviðinu að nýta sér kosti vagnanna. En ekki hvað???

74237647_1224974477691873_914946214368116736_nÍ stuttu máli er nemendum úthlutað verkefni sem aðallega er fólgið í því að komast frá Kársnesskóla að einhverri ákveðinni tengistöð i kerfi Strætós, t.d. Spöng, Háholti í Mosfellsbæ eða Firði í Hafnarfirði. Hver og einn fær aðeins strætómiða frá dr.-num & á ungviðið að komast fram & tilbaka & sanna að það hafi gengið eptir með því að senda frá sér Snapchat.

Í sem skemmstu máli hefir valáfangi þessi slegið í gegn vestur á Kársnesi & komast yfirleitt færri að en vilja. En ekki hvað???

brú-2Dr. Gylforce elur þann draum i brjósti að hægt verði að fá enn yngri nemendur til þess að spreyta sig næst og jafnvel víkka áfangann út & horfa til allra vistvænna ferðamáta. Nema hvað???

Að mati dr.´s er Kársnesið í Kópavogi í dauðafæri að vera leiðandi samfélag um vistvænar ferðir íbúanna vegna legu sinnar og brúarinnar yfir Fossvog sem mun gjörbreyta & bæta lífsgæðin á nesinu fagra.

Yfir&út!


Vorið kemur með væntingar ...

72954652_1224973924358595_2857662121095725056_nHönnunarteymið hossast af stað
hér geturðu um það lesið.
Hamraborg/Hlemmur - nema hvað
mun "hæpa" upp Kársnesið.

Hönnunarteymi á vegum Borgarlínunnar er komið á fullt & hyggst koma með drög í vor að fyrstu áföngunum tveimur á línunni.

Áfangarnir eru alls um 13 kílómetrar að lengd; annar frá Hamraborginni háu & fögru í Voginum að Hlemmtorgi en hinn verður frá Hlemmi að Ártúni.

Fyrstu-tveir-áfangar-Borgarl-1024x722Aukinheldur mun teymið koma með tillögur um hvers konar vagnar eigi að vera í Borgarlínunni (rafmagns-, vetni- eða metanvagnar).

Ennfremur verða drög að nýju leiðakerfi kynnt svo fátt eitt sé nefnt.

borgarlina_infographic_9Með Borgarlínu & brú frá Kársnesi yfir í Vatnsmýrina skapast gríðarleg tækifæri fyrir nesverja & efalítið verður þetta mikil lyftistöng fyrir svæðið og það eftirsóknarverðara en ella. En ekki hvað???

Mennta- & menningarsetrið við Kársnes, hvar dr. Gylforce starfar, mun ekki láta sitt eptir liggja. Setrið hyggst verða leiðandi á næstu misserum & árum í því að leiðbeina ungviðinu um ágæti vistvænna ferðamáta enda rímar slíkt afar vel við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna sem nú eru mjög í brennidepli.

Það er því vor í lopti hvað betri almenningssamgöngur varðar & ekki hægt að segja annað en að dr. Gylforce sé fullur tilhlökkunar.

Amen.  


Áberandi auglýsingar ...

world classMerkingar hófust í haust
halda áfram í vetur.
Verkefnið er óvitlaust
og hægt að gera betur.

Huggulegar heilmerkingar

Eins & ugglaust flestir vagnverjar hafa glögglega tekið eptir ákvað Strætó bs. að heimila auglýsingar á vinum vorum - vögnunum - á ný eptir um 11 ára hlé. Nema hvað.

hvíturÍ fyrstu hafa einungis verið um svokallaðar heilmerkingar á vögnum að ræða, aðallega rafvögnum, sem margar hverjar hafa heppnast vel að mati dr. Gylforce.

1092471Nýjasta afurðin í þessum flokki er glæstur & glæsilegur rauðbirkinn World Class vagn sem vér vagnverjar komum til með að sjá á vígvöllum veganna næstu vikurnar. 

Í tilefni af þeim rauða lét fyrirtækið gera skemmtilegt myndband sem sjá má í fréttinni í hlekknum.

Njótið, njótið.


Nafnasamkeppni á næsta leiti ...

Oyster_CardOysterkort finnst í Englandi
Octopus ku vera í Kína.
Megi yfir oss koma andi
allir láti ljós sitt skína.

octopusÁ næstunni efnir Strætó bs. til nafnasamkeppni á nýju greiðslukerfi sem taka á í notkun á vordögum. Jibbíkóla!

61cfe32d29a5a4626311Í ýmsum löndum hefur vel tekist til með nafnagift þessa & má þar til dæmis nefna Rejsekort í Danmörku og Oystercard í London.

Illu heilli getur dr. Gylforce ekki tekið þátt í keppninni hvar hann mun sitja í dómnefnd fyrir byggðasamlagið - en ekki hvað???

Dr.-inn vill aptur á móti hvetja alla vagnverja til þess að leggja höfuðið í bleyti & koma upp með hnyttið & huggulegt nafn sem festast mun eins & flís við rass við greiðslukerfið.

Koma svooooo!!!

Nýtt greiðslukerfi hjá Strætó


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband